Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 38
38 Eurovísir 25.–27. maí 2012 Helgarblað
Vissir þú að …
… Katrina and the
Waves sem unnu
fyrir Bretlands hönd
með laginu Love
Shine a Light árið
1997 höfðu starfað
saman frá 1978?
Frægasta lag þeirra
er þó án efa Walking on
Sunshine frá 1983. Þau hættu þó sam-
starfi fljótlega eftir sigurinn þar sem þeim
tókst ekki að halda frægðarsólinni á lofti.
Árið 2011 hótuðu þau málaferlum við
bandarískan forsetaframbjóðanda sem
notaði Walking on Sunshine í kosninga-
baráttu sinni.
… Dana, sem vann
fyrir Írland árið 1970
með laginu All Kinds
of Everything, reyndi
fyrir sér í tónlist og leik-
list áður en hún sneri sér
að stjórnmálum? Hún varð í þriðja sæti
í forsetakosningum á Írlandi árið 1997
og tveimur árum síðar var hún kosin á
Evrópuþingið. Í seinni tíð hefur hún þó
einbeitt sér að skemmtana-
bransanum á ný.
… Vicky Leandros
keppti árið 1967 fyrir
Lúxemborg með laginu
L‘amour est bleu? Þrátt
fyrir að lagið endaði í 4. sæti
náði það gífurlegum vinsældum og hefur
verið flutt af fjölda listamanna, þar á
meðal er Frank Sinatra. Hún sigraði hins
vegar í keppninni árið 1972 með laginu
Après Toi.
… Bucks Fizz flutti lagið
Making Your Mind Up í
Dublin árið 1981 og vann
keppnina? Lagið varð
geysilega vinsælt og
komst á vinsældalista
í mörgum Evrópulöndum
auk þess sem það varð vinsælt í Ástralíu,
á Nýja-Sjálandi og Suður-Afr-
íku.
… Marokkó hefur einungis
einu sinni tekið þátt í keppn-
inni en það var árið 1980?
… hin úkraínska
Ruslana sem fór með
sigur af hólmi árið
2004 var heiðruð
af forseta landsins
í kjölfarið? Hún
reyndi einnig fyrir
sér í stjórnmálum og sat
á úkraínska þinginu á árunum 2006 og
2007. Hún varð síðar gerð að velgjörðar-
sendiherra fyrir Úkraínu hjá UNICEF.
… þegar Lordi vann fyrir Finn-
land árið 2006 með Hard
Rock, Hallelujah þá var það
í fertugasta skiptið sem
Finnland keppti?
… Olsen-
bræður höfðu
nokkrum sinnum
áður sent lög í
dönsku keppnina
áður en þeir unnu
hana árið 2000? Þegar
í aðalkeppnina var komið var Fly on the
Wings of Love í forystu alla stigagjöfina
en engum hafði tekist það síðan Abba
sigraði með Waterloo árið 1974.
L
aufey Eiríksdóttir er ekki bara
heitasti aðdáandi Jóns Jóseps
Snæbjörnssonar, sem er
betur þekktur sem Jónsi, þau
eru líka góðir vinir. Hún bíð-
ur spennt eftir komandi Eurovison-
kvöldum, en Jónsi og Gréta keppa í
undankeppninni sama dag og blaða-
maður og ljósmyndari hitta Laufey á
vinnustað hennar, svæðisskrifstofu
fatlaðra á Reykjanesi. Laufey er mætt
með úrklippubókina sem geymir
myndir, minningar og blaðaúrklipp-
ur tengdar popparanum til að sýna
blaðamanni. Laufey er sko alveg til
í að spjalla um Jónsa. Þegar hún er
spurð hvernig henni eigi eftir að líða
þegar hún sér Jónsa og Grétu á svið-
inu í Bakú segist Laufey líklegast eiga
eftir að gráta af gleði hvernig sem fer.
Búningarnir flottir
Laufey hefur fylgst með ferli Jónsa
í langan tíma og er hljómsveitin Í
svörtum fötum í miklu uppáhaldi
hjá henni. Það kemst líklegast eng-
inn annar tónlistarmaður með tærn-
ar þar sem Jónsi hefur hælana, nema
vera skyldi Páll Óskar Hjálmtýs-
son, í huga hennar. Það fór því ekki
á milli mála með hverjum hún hélt
í íslensku undankeppninni og var
gleði hennar bæði mikil og einlæg
þegar úrslitin voru kunngjörð. „Mér
finnst búningarnir flottir,“ segir hún
um sviðsframkomuna og segist vera
búin að horfa á tónlistarmyndband-
ið nokkrum sinnum.
Bauð henni á ball
Í apríl bauð Jónsi henni á ball með
sér á skemmtistaðnum Spot í Kópa-
vogi og var mikið um dýrðir þegar
Laufey og vinkonur hennar skelltu
sér á dansgólfið og dönsuðu fram á
rauðanótt. „Það var skemmtilegt,“
segir Laufey skælbrosandi og aug-
ljóst er að það var ógleymanlegt
kvöld. Hún segist hlakka til að fara
aftur á ball með Jónsa þegar hann
kemur aftur frá Bakú.
Fær sér bjór yfir Eurovison
Það verður mikið um dýrðir
heima hjá Laufeyju á laugardag-
inn þegar íslenski hópurinn keppir
til úrslita. Það verður sannkallað
Eurovision-partí. „Ég ætla að fá mér
bjór og skemmta mér vel,“ segir hún.
Áður en við kveðjum bætum við ör-
litlu við úrklippubókina hennar, en
blaðamanni barst tölvupóstur frá
Jónsa í Bakú þar sem hann segir
Laufeyju vera sér einstaklega hjart-
fólgna. „Það er alltaf gaman að hitta
vini í vinnu og frístundum og ég hef
verið svo heppinn að hitta Laufeyju
í báðum kringumstæðum. Laufey
er mér sérstaklega hjartfólgin. Hún
ber tilfinningar sína fölskvalaust á
borð og nærvera hennar er hlý og
glaðvær. Hún hefur alltaf jákvæð
áhrif á alla aðra sem með henni eru
og brosið hennar er alveg einstakt.
Hún er frábær stelpa,“ segir Jónsi
og Laufey hreinlega tryllist af gleði
þegar blaðamaður les þetta fyrir
hana. „Vá-vá-vá!“ segir hún.
„Vá-vá-vá!”
n Laufey Eiríksdóttir er heitasti aðdáandi Jónsa
Grætur af gleði Laufey segist
eiga eftir að gráta af gleði þegar
hún sér Jónsa og Grétu stíga á svið í
Bakú. Mynd: SiGtryGGur Ari JóHAnnESSon.
Úrklippubókin Það er næsta víst að það
á eftir að bætast hressilega við úrklippubók
Laufeyjar á næstu dögum.
Bauð á ball Jónsi bauð Laufeyju og vinkonum hennar á ball í vetur. Það var ógleymanleg stund.