Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 50
Hvað er að
gerast?
Föstudagur
Sunnudagur
Laugardagur26
maí
25
maí
27
maí
Nemendasýning
Á laugardaginn opnar árleg ljós-
myndasýning fyrsta árs nema við
Ljósmyndaskólann. Þar munu 19
nemendur sýna verk sín þar sem
ýmislegt verður tekið fyrir en þar
má meðal annars nefna portrett,
landslag, kynferðislegt ofbeldi,
tísku og átröskun.
Ljósmyndaskólinn er til húsa við
Hólmaslóð 6. Sýningin er öllum
opin og stendur til 3. júní.
Leitin að því hver við
erum
Trans er nýtt leikrit eftir Sigtrygg
Magnason sem sýnt verður á
laugardaginn. Sýningin leiðir
áhorfendur inn á kampavínsklúbb
þar sem þeir hitta fyrir Lovísu, 26
ára konu með typpi, föður hennar,
manninn sem hún trúir ekki að elski
hana og trúnaðarvinkonu hennar,
Önnu Frank.
Sýningin fer fram á Strawberries í
Lækjargötu og hefst klukkan 13.00.
Miðaverð: 1.300 krónur.
Goðsögn í Hörpu
Bryan Ferry, einn farsælasti
dægurtónlistarmaður samtímans,
mun halda tónleika ásamt hljóm-
sveit í Hörpu á hvítasunnudag.
Þetta verða sannkallaðir stórtón-
leikar en Ferry er með á fjórða tug
tónlistar- og tæknimanna í för til
að sjá um að bæði tónlist og sjón-
ræni hluti tónleikanna skili sér með
þeim brag sem hæfir goðsögninni.
Tónleikarnir eru í samstarfi við
Listahátíð í Reykjavík, og eru á
dagskrá hátíðarinnar sem haldin er
dagana 18. maí–3. júní. Tónleikarnir
fara fram í Eldborg á hvítasunnu-
dag 27. maí og annan í hvítasunnu
kl. 21.00. Verð 6.990–16.990
krónur.
50 25.–27. maí 2012 Helgarblað
„Tvöfaldur skolli“Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Tiger Woods
PGA Tour 13
H
ljómsveitin Bee Gees,
sem naut nánast
óslitinna vinsælda
frá útgáfu lagsins
Massachusetts árið
1967, var skipuð bræðrunum
Barry, Robin og Maurice Gibb.
Bræðurnir fæddust á Isle of
Man en ólust fyrstu árin upp í
Chorlton í Manchester á Eng-
landi. Yngsti bróðirinn, sem
naut nokkurra vinsælda sem
tónlistarmaður, hét Andy en
hann varð aldrei hluti af Bee
Gees. Andy var átrúnaðargoð
unglinga á níunda áratugnum
en hann lést af völdum hjarta-
vöðvabólgu árið 1988.
Fjölskyldan flutti til Ástr-
alíu síðla á sjötta áratugnum,
til Queensland nánar tiltekið,
og þar hófst tónlistarferill
bræðranna.
Reyndar má segja að
hljómsveitin hafi veri í lægð
lungann úr áttunda áratug
síðustu aldar en með tilkomu
diskótónlistar tókst bræðrun-
um að blása nýju lífi í nánast
kulnaðar glæður.
Hljómsveitin varð þekkt
fyrir þéttan, þríraddaðan söng
en fyrstu árin sá Robin að
mestu leyti um sönginn. Seint
á áttunda áratugnum og á
þeim níunda varð aðalsmerki
hljómsveitarinnar falsetta
Barrys og þéttur þríraddaður
söngur bræðranna.
Líkt við Bítlana
Bræðrunum tókst ekki að
hasla sér völl á tónlistarsvið-
inu í Ástralíu og ákváðu þeir
að flytja til Englands árið 1966.
Áður en bræðurnir fluttu til
Englands sendi faðir þeirra,
Hugh Gibb, upptöku til Brians
Epstein, umboðsmanns Bítl-
anna. Brian kom upptökunni í
hendur Roberts Stigwood sem
leist vel á.
Stigwood hafði síðar á orði
að bræðurnir væru eftirtektar-
verðustu nýliðar ársins 1967.
Önnur smáskífa bræðranna,
New York Mining Disaster
1941, var send til útvarps-
stöðva með engum upplýsing-
um öðrum en nafni lagsins.
Margir skífuþeytarar töldu
að um væri að ræða nýtt lag
með Bítlunum og léku lagið í
tíma og ótíma og komst það
inn á topp 20 lagalista beggja
vegna Atlantsála.
En það varð þó ekki fyrr
en með laginu Massachusetts
sem ferill bræðranna tók
stakkaskiptum fyrir alvöru.
Skarð höggvið í Bee Gees
Ferill Bee Gees var nánast
óslitinn til ársins 2003 en 12.
janúar 2003 lést Maurice úr
hjartaslagi. Barry og Robin
hugðust í fyrstu halda nafni
Bee Gees og halda ótrauðir
áfram en tóku síðan sinna-
skiptum og urðu ásáttir um að
Bee Gees sem hljómsveit ætti
að tengjast bræðrunum þrem-
ur, en ekki tveimur.
Barry og Robin fetuðu að-
skildar slóðir og gáfu út sóló-
plötur, en komu fram endrum
og sinnum saman.
Þann 20. nóvember síðast-
liðinn fregnaðist að Robin
væri með lifrarkrabbamein.
Falsettunum fækkar
n Bræðurnir Barry, Robin og Maurice Gibb voru Bee Gees – Barry Gibb lifir bræður sína„Robert
Stigwood
hafði síðar á orði að
bræðurnir væri eftir-
tektarverðustu nýlið-
ar ársins 1967.
Helstu smellir
Bee Gees
n Massachusetts – 1. sæti, Bret-
land, 1967
n I’ve Gotta Get A Message To
You – 1. sæti , Bretland, 1968
n How Can You Mend A Broken
Heart? – 1. sæti, Bandaríkin, 1971
n Jive Talkin’ - 1. sæti, Banda-
ríkin, 1975
n How Deep Is Your Love? - 1.
sæti, Bandaríkin, 1977
n Stayin’ Alive - 1. sæti,
Bandaríkin, 1978
n Night Fever - 1. sæti, Banda-
ríkin og Bretland, 1978
n Tragedy - 1. sæti, Bandaríkin
og Bretland, 1979
n You Win Again - 1. sæti, Bret-
land, 1987
Ungir að árum Bee Gees koma
fram í hollenska sjónvarpinu 1968.
The Bee Gees Barry, fremstur,
hefur lifað alla bræður sína.
Á hátindi diskótímabilsins
Vinsældir Bee Gees gengu í
endurnýjun lífdaga á áttunda áratug
síðustu aldar.
Ímyndaðu þér
Nú er tækifæri til að upplifa
John Lennon einu sinni enn og
það í Gamla bíói. Just Imagine er
ógleymanlegt ferðalag í gegnum
tónlist og líf þessa stórkostlega
listamanns. Myndir, vídeó og
sögur spila stórt hlutverk en ekki
síður tónlistin sem hljómsveit Tim
Pipers flytur af mikilli snilld. Og
ekki skemmir fyrir að Piper sjálfur
þykir keimlíkur Lennon bæði í útliti
og framkomu auk þess sem söng-
röddin þykir nánast nákvæmlega
eins. Ekki missa af gestasýning-
unni Just Imagine frá Los Angeles
– Eingöngu nokkrar sýningar!
„Einelti hefði jafnvel
drepið þessa mynd“
Bully (Grimmd)
Lee Hirsch