Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Page 28

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Page 28
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM leiðsluskýrslur eru t. d. ekki fyrir hendi hvað viðvíkur listmunum né handunnum hlutum. Mjög erfitt hefur og verið að upplýsa útgjöld einstaklingu vegna ýmiss konar þjónustu. Heildarniðurstöður töflunnar eru þær, að einkaneyzla landsmanna hafi numið 3 533 mkr árið 1957 og 4 096 mkr árið 1958. Til saman- burðar má geta þess, að einkaneyzlan, fund- in sem afgangsstærð eftir leiðum tekjufram- talsaðferðarinnar, var 3 347 mkr og 3 788 mkr hvort þessara ára. Þær niðurstöður eru því lægri um 186 mkr og 308 mkr. Hafa mikilvæg- ir leiðréttingaliðir, er komið hafa fram við neyzlurannsóknina, þá þegar verið teknir með í útreikningana frá teknahliðinni, svo sem mismunur skattmetinnar og áætlaðrar leigu í eigin húsnæði, og vinna við byggingu eigin íbúða. Mismunur sá, er eftir stendur og greint er frá hér að ofan, á rót sína að rekja til fjöl- margra atriða, sem ekki er fært að gefa tölu- legt gildi, a. m. k. ekki að svo komnu máli. En þessi atriði má flokka í höfuðdráttum þannig: a) vantaldar tekjur á skattaframtöl- um, b) þörf ítarlegra leiðréttinga á tekju- og frádráttarliðum framtala til þess að niður- itaðan samsvari tekjum af framleiðslustarf- semi eða rekstri almennt, c) mismunur á mati þeirra liða, sem ekki eru bein útgjöld, svo sem neyzlu matvara af eigin framleiðslu, d) öll frá- vik frá raunveruleikanum, er vera kunna í niðurstöðum neyzlurannsóknarinnar, sökum ófullnægjandi heimilda og grófra áætlunarað- ferða við ákvörðun sumra liða. Auk þessara meginatriða má bæta við, að þær leiðréttingar, sem gerðar hafa verið við niðurstöður framtala í heild, kunna að víkja nokkuð frá því raunverulega innihaldi fram- talanna, sem þeim er ætlað að leiðrétta. Þeg- ar þess er gætt, að þessar tvær áætlanir um neyzluna eru gerðar sín á hvorum grundvelli, næstum alveg óháðar livor annarri, er eðli- legt, að talsverðu muni. Það fyrirbæri þekkist í hagskýrslum allra landa og oft birt tölulega sem upphæð hagskýrslumisræmis (Statistical discrepaiicy). Ljúft er og skylt að geta þess, að fjölmörg fyrirtæki, auk stofnana ríkis og sveitarfélaga, hafa látið í té margháttaðar upplýsingar, veitt aðgang að verðreikningum smum og fram- leiðslureikningshaldi, og miðlað af reynslu sinni með ýmsum hætti. An þessarar mikil- vægu aðstoðar hefði ekki verið unnt að fram- kvæma rannsókn þessa. Aðilar þessir eru fleiri en svo, að fært sé að geta þeirra allra. Skulu þeim öllum hér með tjáðar beztu þakkir. Hinir ýmsu liðir meðfylgjandi skýrslna eru byggðir á mörgum heimildum, og skiljanlega mjög misjafnlega áreiðanlegum. Er því leitazt við að gefa áreiðanleika þeirra til kynna í sér- stökum dálki. Þetta er gert með þrenns kon- ar einkunnum: A, B og C. Þýðing þeirra er: A: tölur byggðar á opinberum skýrslum, B: tölur byggðar á nokkuð áreiðanlegum áætlunum, C: tölur byggðar á lauslegum áætlunum. Línur voru merktar B, jafnvel þótt magn væri fengið samkvæmt opinberum skýrslum, ef verð var fengið samkvæmt sýnishornum verðreikninga, og ef sameina varð mismunandi verðflokka, t. d. pakkaðar og ópakkaðar vör- ur, til þess að fá heildarniðurstöður. Athygli skal sérstaklega vakin á eftirfarandi atriðum: A) Sú athugun, sem hér er gerð á neyzlu einstaklinga, er ekki fyllilega sambærileg við sams konar athugun í öðrum löndum, einkum í tvennu: 1) Ilúsaleigukostnaður. I ýmsum löndum öðrum er raunveruleg húsaleiga svo nærri hinni lögleyfðu, að rétt þykir að meta húsaleigu samkvæmt fyrir- mælum leigulaganna. Húsaleiga hér á 26

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.