Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 2
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
Ólöf Nordal, nýr innan-
ríkisráðherra, kvaðst
reiðubúin í ráðherrastól
þrátt fyrir erfi ð veikindi
fyrir skömmu. Skipun
Ólafar í embættið kom
þingmönnum Sjálfstæðisfl okksins á óvart.
Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri benti á
að græða þyrft i upp yfi r
milljón hektara lands.
Hann sagði umræðuna
um að stöðva jarðvegs-
eyðinguna hafa gleymst.
FIMM Í FRÉTTUM NÝR RÁÐHERRA OG ÞAKKLÆTI
Kærleikskúla ársins var afhent við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur
á miðvikudag. Kúlan ber nafnið Mandarína og er eftir Davíð Örn Halldórs-
son. Kúlan er seld til styrktar Reykjadal, sem rekur sumarbúðir og helgardvöl
fyrir fötluð börn og unglinga. Handhafar kærleikskúlunnar í ár eru systurnar
Snædís Rán og Áslaug Ýr Hjartardætur. Þær
hafa þrátt fyrir ungan aldur verið virkar í rétt-
indabaráttu fatlaðs fólks, meðal annars skrifað
greinar, komið fram í fjölmiðlum og notað
samfélagsmiðla til þess að vekja athygli á bar-
áttu sinni. „Þannig hafa þær verið fötluðu fólki
mikilvæg hvatning og fyrirmyndir og eiga án
efa eftir að verða enn öflugri á næstu árum,“
segir í tilkynningu en kærleikskúlan verður
seld til 19. desember í ýmsum verslunum.
Systur fengu kærleikskúluna
ÚKRAÍNA Mikil átök hafa verið í úkraínsku borginni Dónetsk undan-
farna mánuði og fulltrúar deiluaðila eiga nú í viðræðum um vopna-
hléssamkomulag sem myndi ná til Dónetsk-héraðs. Mikil átök hafa
geisað í kringum flugvöllinn í borginni síðustu daga.
Fulltrúar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu stýrðu friðarvið-
ræðunum, en stofnunin hefur fylgst náið með ástandinu í Úkraínu allt
frá því að átök hófust þar í apríl síðastliðinn.
Samið var um vopnahlé í september en það hefur ítrekað verið brotið.
Hafa rúmlega þúsund manns látist síðan og fjölmargir særst. - glp
Enn er barist í Úkraínu en menn njóta friðarins á milli:
Stund milli stríða í Dónetsk
FISKVEIÐI Menn veiða sér í soðið í austurhluta Dónetsk. Mikil átök hafa verið í
borginni að undanförnu. NORDICPHOTOS/AFP
Ellen Calmon, formaður
Öryrkjabandalags Íslands,
gagnrýndi tillögu fj árlaga-
nefndar Alþingis um að
hækka almannatrygginga-
bætur um þrjú prósent en
ekki 3,5 prósent eins og til stóð.
Margrét Steinarsdóttir,
framkvæmdastjóri Mann-
réttindaskrifstofu
Íslands, sagði að skoða
þyrft i betur hvers vegna
innfl ytjendum reyndist
erfi tt að fá menntun sína metna.
➜ Sebastian Andrzej
Golab, Pólverjinn sem
var stunginn með hnífi
í hjartað, lýsti yfi r
þakklæti til læknanna
sem björguðu lífi hans.
Hann ætlar nú
að lifa lífi nu
á annan
hátt.
LÖGREGLUMÁL Lögfræðingar
Umhverfisstofnunar áttu fund
með embættum Sérstaks sak-
sóknara og Ríkissaksóknara í
vikunni. Tilgangur fundarins var
að ræða um umhverfisbrot með
auðgunarásetningi.
Fulltrúar Umhverfisstofnunar
kynntu þá málaflokka sem heyra
undir stofnunina, nýmæli í lög-
gjöf og fóru yfir helstu mál sem
komið hafa upp síðustu misseri.
Fundarmenn voru einhuga um
mikilvægi þess að umhverfisbrot
hljóti aukið vægi og lýstu yfir
vilja til frekara samstarfs. - shá
Saksóknarar funda með UST:
Leggja áherslu á
umhverfisbrotin
STJÓRNSÝSLA Starfsmenn Fiski-
stofu sendu Sigurði Inga Jóhanns-
syni sjávarútvegsráðherra bréf
í gær og óskuðu upplýsinga um
áætlaðan kostnað við flutning
höfuðstöðva Fiskistofu til Akur-
eyrar. Einnig vilja þeir að ráð-
herra vísi í gögn til stuðnings
fullyrðingum um að viðlíka flutn-
ingur stofnana í Noregi hafi orðið
til þess að þær blómstruðu.
„Jafnframt ítrekum við starfs-
menn Fiskistofu rúmlega þriggja
vikna gamla beiðni um fund full-
trúa okkar með ráðherra,“ segir í
bréfinu. - gar
Fiskistofumenn vilja svör:
Hvað kostar
flutningurinn?
STJÓRNSÝSLA Á meðan Ólöf Nor-
dal tók formlega við sem nýr inn-
anríkisráðherra á Bessastöðum
barst bæjarstjóranum á Horna-
firði, Birni Inga Jónssyni, til-
kynning um nýja reglugerð um að
sveitar félagið Hornafjörður teld-
ist til umdæmis lögreglustjórans
á Austurlandi.
Með ákvörðun sinni ákvað
þáverandi dómsmálaráðherra,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra, að lögreglan á
Höfn yrði áfram í hans kjördæmi,
Norðausturkjördæmi. Þannig
stöðvaði ráðherrann áform um
flutning lögregluembættisins yfir
í Suðurkjördæmi. Reglugerðin var
síðasta verk Sig-
mundar Davíðs
sem dómsmála-
ráðherra.
„Ég trúði ekki
eigin augum, ég
hugsaði með mér
að þetta hlyti að
vera prentvilla,“
segir Björn Ingi
Jónsson.
Undirbúningur að því að flytja
lögregluna á Höfn í Suðurkjör-
dæmi hefur staðið yfir síðan í
sumar og var kominn á lokastig.
Flutningurinn var áætlaður um
áramót og var tilkominn vegna
frumkvæðis frá innanríkisráðu-
neytinu.
Nýja reglugerðin kom sveitar-
stjórn Hornafjarðar og öllum í Sam-
tökum sunnlenskra sveitarfélaga
því á óvart, að sögn Björns Inga.
„Í sumar var óskað sérstaklega
yfir því að sveitarfélagið lýsti
því yfir hvernig það sæi fyrir sér
framtíð löggæslu. Eftir að þess
var óskað fórum við í þá vinnu og
kynntum niðurstöðuna, sem var sú
að það væri langeðlilegast að lög-
gæsla fylgi kjördæma mörkum.
Það átti að taka tillit til okkar
óska,“ segir bæjarstjórinn.
Búið var að fastsetja vaktir lög-
reglu og hjúkrunarfólks, lögreglu-
stjóri Suðurlands heimsótti bæjar-
stjóra og bæjarstjórn í haust og
ræddi fyrirkomulagið, skipurit,
almannavarnir og fleira varðandi
löggæsluna.
„Um miðjan desember á ég svo
boðaðan fund með lögreglustjór-
anum sem ætlaði að hitta alla
framkvæmdastjóra sveitarfélaga
í sínu umdæmi,“ segir Björn Ingi.
„Sigmundur Davíð setur svo reglu-
gerð sem gengur þvert á það sem
búið er að tala um undan farnar
vikur og algerlega án nokkurs
samráðs, tíu mínútum áður en
hann missir valdið. Þetta eru
vinnubrögð sem eiga ekki að eiga
sér stað nú á árinu 2014. Það er
mjög erfitt að túlka gjörninginn
öðruvísi en að það hafi verið ein-
hver þrýstingur.“
Björn Ingi skrifaði strax bréf
til þingmanna og nýs innanríkis-
ráðherra, Ólafar Nordal, og rekur
hann málavexti. Meðal annars segir
hann frá því að ráðuneytið hafi
óskað eftir skoðun sveitarfélags-
ins á framtíðarskipulagi lögreglu-
umdæmisins.
Bæjarráð Hornafjarðar hefur
tekið undir sjónarmið sem fram
komu á fundi Samtaka sveitar-
félaga á Suðurlandi, að hags-
munum sveitarfélagsins verði best
borgið með því að skipan lögreglu-
mála fylgi kjördæmismörkum.
„Við vorum fullvissuð um að
hlustað yrði á afstöðu okkar.
Við fengum fregnir af því að við
ættum að fara að skipuleggja
flutning á Suðurland og höfðum
enga ástæðu til að ætla annað,“
segir Björn Ingi sem fer fram á að
þingmenn beiti sér í því að þessi
ákvörðun verði endurskoðuð.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þing-
kona Sjálfstæðisflokks í Suður-
kjördæmi, deilir á forsætisráð-
herra. „Þetta er ákvörðun sem
gengur gegn allri vinnu sem unnin
hefur verið, hann þarf að útskýra
hana.“ kristjanabjorg@frettabladid.is
Flutningur lögreglu
stöðvaður á lokadegi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ákvað á síðasta degi sínum sem
dómsmálaráðherra að lögregluembættið á Höfn skyldi vera áfram í hans eigin kjör-
dæmi en ekki í Suðurkjördæmi. Bæjarstjórinn á Höfn trúir ekki eigin augum.
Sig mundur
Davíð setur
svo reglugerð
sem gengur
þvert á það
sem búið er að
tala um undanfarnar vikur
og algerlega án nokkurs
samráðs, tíu mínútum áður
en hann missir valdið.
Björn Ingi Jónsson,
bæjarstjóri Hornafjarðar.
UNNUR BRÁ
KONRÁÐSDÓTTIR
SÍÐASTA EMBÆTTISVERKIÐ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lét dómsmálin í hendur Ólafar Nordal á fimmtudag. Þá um dag-
inn var tilkynnt um færslu lögreglunnar á Hornafirði í Norðausturkjördæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA