Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 136
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 96
„Þetta byrjaði nú eiginlega sem
djók, en svo áttuðum við okkur á
að þetta væri að vissu leyti okkar
listayfirlýsing,“ segir Sigurður
Ámundason teiknari. Hann ásamt
sjö félögum sínum hefur opnað Hina
konunglegu teiknisýningu í galleríi
Ekkisens.
„Eins og flestir vita þá finnst
listamönnum þeir yfirleitt vera
snillingar og miklu betri en hinir.
Við tökum okkur mjög hátíðlega og
er það undirtónninn í sýningunni
hjá okkur, þótt hver mynd kannski
tákni eitthvað annað. Þegar við
tökum okkur svona hátíðlega þá
myndast smá keppni innan hópsins.
Við viljum enga falska hógværð,“
segir Sigurður léttur.
Hann segir hópinn vera eins og
nokkurs konar saumaklúbb sem
hittist og teiknar saman. Þeir hafi
flestir á einhverjum tímapunkti
verið saman í skóla og þannig
kynnst innbyrðis.
„Okkur fannst hálfhallærislegt
fyrst að við værum bara strákar, en
svo ákváðum við bara að snúa því
upp í grín og láta eins og við værum
miklar karlrembur, sem við erum
ekki,“ bætir Sigurður við. Þetta er í
fyrsta sinn sem þeir halda sýningu
saman, en þeir stefna að því að gera
hana að árlegum viðburði.
„Við erum að vona að hópurinn
stækki svo að í framhaldinu sé hægt
að búa til eins konar konungsfjöl-
skyldu á Íslandi. Þá verður þetta á
endanum bara teiknisýning,“ segir
hann. Sýningin var opnuð í fyrra-
kvöld í kjallara Bergstaðastrætis
25B í galleríi Ekkisens. - asi
Félagar sem taka sig hátíðlega
Átta teiknarar hafa opnað Hina konunglegu teiknisýningu í galleríi Ekkisens.
KONUNGLEGU TEIKNARARNIR Matt-
hías Rúnar Sigurðsson, Karl Torsten
Ställborn, Sigurður Ámundason, Arn-
grímur Sigurðsson, Héðinn Finnsson,
Gylfi Freeland Sigurðsson, Sölvi Dúnn
Snæbjörnsson og Arnór Kári Egilsson
standa að Hinni konunglegu teikni-
sýningu. MYND/SIGURLAUG GÍSLADÓTTIR
TÓNLIST ★★★★ ★
Kiasmos
Kiasmos
ERASED TAPES
Kiasmos er samstarfsverkefni
þeirra Ólafs Arnalds, sem hefur
getið sér ágætis orð fyrir tilrauna-
kennda tónlist undir klassískum
áhrifum, og hins færeyska Janusar
Rasmussen, sem er þekktastur sem
aðaldriffjöðrin í rafpoppsveitinni
Bloodgroup. Hafa þeir félagar starf-
að saman um nokkurt skeið og sent
frá sér stuttskífur með óreglulegu
millibili. Í lok októbermánaðar leit
fyrsta breiðskífa piltanna dagsins
ljós og er gripurinn samnefndur
samstarfsverkefninu/hljómsveit-
inni.
Um er að ræða vandaða plötu
sem flokkast til raftónlistar og
sem slík er hún jafnvel nokkuð til-
raunakennd. Klassísk áhrif frá Ólafi
koma berlega í ljós og þá notast þeir
félagar við talsvert af „live“ hljóð-
færum sem gefa hljómnum aðra
vídd. Taktarnir eru útpældir, hljóm-
urinn er mjúkur, ef svo má að orði
komast, og erfitt að henda reiður á
hvort tónlistin sé dansvæn eða ekki.
Kæmi til þess að platan yrði spiluð
á klúbbi, væri það líklega rétt fyrir
lokun þegar hugur gesta er orðinn
tómur og fljótandi. Ef til vill myndi
enska orðið „atmospheric“ hæfa
hér – en því miður virðist íslenskan
ekki geta fangað þá stemningu sem
orðinu fylgir. En raftónlistaráhuga-
menn vita. Þeir vita.
Þeir Ólafur og Janus ná að mynda
ágætan heildarsvip, platan er jöfn
og sterk frá upphafi til enda. Bestu
lögin eru níu mínútna súpurnar
Thrown og Burnt en hápunkt inum
er náð í Bent – sem er líklegasta
lagið til að slá í gegn á klúbba-
gólfum Evrópu, hafi það ekki gert
það nú þegar.
Platan er sem fyrr segir einkar
vönduð. Helsti galli hennar, ef galla
skyldi kalla, væri að hún er of vönd-
uð. Orðsporið sem fer af þeim Ólafi
og Janusi er að þeir séu miklir full-
komnunarsinnar, sem er auðvitað
jákvætt. En hljómurinn mætti vera
aðeins meira „dirty.“ En það mætti
auðvitað segja um allt. Já, allt!
Björn Teitsson
NIÐURSTAÐA: Flott skífa frá metnaðar-
fullum tónlistarmönnum sem hafa lagt
mikla vinnu í verkið. Mögulega of mikla,
hljómurinn mætti vera smá „dirty.“
Mjúkir taktar með klassískum áhrifum
Chris Martin, söngvari Coldplay,
hefur greint frá því að hljóm-
sveitin sé að vinna að sinni sjö-
undu hljóðversplötu og að titillinn
hafi þegar verið ákveðinn, A Head
Full of Dreams.
Forsprakkinn lét þessi tíðindi
flakka í viðtali við útvarpsmann-
inn Zane Lowe á BBC Radio 1.
Platan mun fylgja í kjölfar Ghost
Stories, sem kom út á þessu ári.
„Við höfum ekki sagt neinum
þetta. Við erum að gera plötu sem
heitir A Head Full of Dreams. Við
erum að vinna í henni en vegna
þess að þetta ert þú og Radio 1
þá finnst mér í lagi að segja þér,“
sagði Martin. „Þetta er sjöunda
útgáfan okkar og við lítum á hana
eins og síðustu Harry Potter-bók-
ina. Ekki það að við gefum ekki
meira út einhvern tímann síðar
en með þessari plötu erum við að
ljúka einhverju.“
Ghost Stories kom út í maí og
fór á toppinn í Bretlandi. Hljóm-
sveitin fylgdi plötunni eftir með
stuttri tónleikaferð um heiminn,
þar sem hún spilaði m.a. í Royal
Albert Hall í London.
Nafn komið á sjöundu plötuna frá Coldplay
Næsta hljóðversplata bresku hljómsveitarinnar heitir A Head Full of Dreams. Sú síðasta kom út á þessu ári.
CHRIS MARTIN Söngvarinn lét tíðindin
flakka í viðtali við útvarpsmanninn
Zane Lowe. NORDICPHOTOS/GETTY
Cameron Diaz segir að söngur
sinn í kvikmyndinni Annie hafi
verið „það hræðilegasta sem ég
hef gert í kvikmynd“.
Hin 42 ára leikkona tekur lagið
í söngvamyndinni en Óskarsverð-
launahafinn Jamie Foxx leikur
einnig í myndinni. „Þetta var það
hræðilegasta sem ég hef gert í
kvikmynd,“ sagði hún.
Henni þótti auðveldara að leika
í kynlífsatriði í gamanmyndinni
Sex Tape þar sem hún reyndi að
stunda kynlíf með eiginmanni
sínum [Jason Segel] á rúllu-
skautum. En bætti við: „Mér líður
best að vera bara eins og ég er.“
Leikstjóri Annie er Will Gluck
sem er þekktastur fyrir myndina
Friends with Benefits með Justin
Timberlake og Milu Kunis í aðal-
hlutverkum.
Hræðilegt að
syngja í Annie
CAMERON DIAZ Leikkonan er ekki
mikið gefin fyrir að syngja.
NORDICPHOTOS/GETTY
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3
ellingsen.is
Munið
gjafabréfi
n!
Jólagjöfin fæst
í Ellingsen
Snjallar
jólagjafir
LEGGHLÍFAR
GAITER 420 HD
6.990 KR.
EASTON GÖNGUSTAFIR
12.990 KR.
SILVA RANGER S
ÁTTAVITI
6.495 KR.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
4
1
5
9