Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 100
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN AÐVENTAN | 60
Það fer ekkert að gerast í jólaundirbúningi fyrr en ég og dóttir mín erum búin að baka hveitikök-urnar. Þetta er vest-firskt fyrirbæri og hafa
þessar kökur fylgt jólunum frá því
að ég man eftir mér. Þær eru bak-
aðar á aðventunni og svo teknar
upp á Þorláksmessu og borðaðar
með hangikjötinu,“ segir Bald-
ur Trausti. Hann er þessa dag-
ana að æfa fyrir Sjálfstætt fólk
sem frumsýnt verður um jólin í
Þjóðleikhúsinu og leikur í Kon-
unni við 1000 gráður. Það hefur
þó engin áhrif á jólabaksturinn.
„Ég gef mér tíma til að baka. Við
dóttir mín stöndum í bakstrinum,
svo kemur restin og borðar þetta.
Hveitikökurnar passa með öllum
mat, skötustöppu, hangikjöti, með
afgöngum af hamborgarhryggn-
um og eru æðislegar með rauð-
beðusalati. Við kaupum ekkert
brauð yfir hátíðirnar heldur borð-
um allt með þessu.“
Baldur Trausti hefur síðastliðin
sextán ár bakað Sörur á aðvent-
unni eftir uppskrift sem hann
fékk frá Guðrúnu Erlu Sigur-
bjarnadóttur, starfsfélaga í Þjóð-
leikhúsinu. „Ég hef aðeins þróað
stærðina, því ég vil hafa þær
svona þrjá munnbita, og svo hef
ég möndlurnar grófar í botnun-
um því ég vil hafa botninn gróf-
an,“ segir Baldur og bætir við að
fyrstu árin hafi hann verið svolít-
ið nískur á Sörurnar. „Einhvern
tímann sá ég síðan að frystikistan
var full af Sörum um páska því ég
hafði verið svo sparsamur. Eftir
það er ég slakari og er á því að
maður eigi að borða þær á aðvent-
unni enda nóg annað að borða yfir
jólin.“
Hveitikökur
7-8 kökur
3 bollar hveiti
3 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1 msk. sykur
2,5 dl mjólk
2,5 dl rjómi
Hnoðað saman í hrærivél. Búin til
pylsa og skorið í 7-8 kökur. Flatt út
með kökukefli. Stinga í hverja köku
með gaffli. Steikt á pönnu, helst
þykkbotna og eldgamalli. Bakað við
meðalhita.
Sörur
Botn
5 eggjahvítur
6 dl flórsykur
400 g möndlur
Eggjahvítur stífþeyttar í tíu mín-
útur. Flórsykri og möndlum bætt
við og hrært vel, en hægt og rólega.
Möndlur ekki maukaðar heldur rétt
brotnar í höndunum. Ríflega sett í
teskeið og á plötu og bakað við 180
gráður í 10-15 mínútur.
Krem
½ dl sykur
½ dl vatn
5 eggjarauður
300 g smjör
2 msk. kakó
2 ½ tsk. kaffiduft
1 msk. Swiss Miss
Sykur og vatn soðið saman í 10-15
mínútur við vægan hita og svo látið
kólna vel. Eggjarauður stífþeyttar
og vatninu svo hellt varlega saman
við í mjórri bunu. Smjöri, kakó,
kaffidufti og Swiss Miss bætt við.
Þeytt saman. Smurt á botninn á
kökunum. Sett í frysti og látið bíða
í einn dag.
Súkkulaði
300 g Nói Siríus suðusúkkulaði
1 tsk. olía
Gufubrætt saman og svo er kökunum
dýft ofan í súkkulaðið. Raðað upp og
sett í frysti.
Vestfirskar hveitikökur
steiktar á aðventunni
Baldur Trausti Hreinsson leikari lætur ekki annatíma í leikhúsinu trufla
jólabaksturinn. Jólaundirbúningurinn hefst á hveitikökubakstri og eru
kökurnar geymdar fram að jólum. Ljúffengu Sörurnar má borða strax.
TVÆR UPPÁHALDSSORTIRNAR Bald ur Trausti bakar alltaf hveitikökur og Sörur fyrir jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HVEITIKÖKUR OG SÖRUR Hveitikökubakstur er vestfirsk hefð en uppskriftina að
Sörunum fékk Baldur hjá starfsfélaga í leikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vigdís Sigurðardóttir býr á
Ítalíu og vinkonu hennar, sem
rekur eigið fyrirtæki í bænum,
langaði að gefa viðskiptavinum
sínum íslenskar piparkökur fyrir
jólin. Kökurnar áttu að vera
ætar og fallegar. Vigdís tók að
sér verkið en segir að við undir-
búninginn hafi nánast allt farið
úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis.
„Upphaflega ætlaði ég að hafa
fjögur mismunandi form og
kökurnar áttu að vera hvítar og
rauðar. Eftir mikla leit að nógu
stórum formum gafst ég upp og
ákvað að gera bara hjörtu. Eftir
að hafa prófað nokkra mismun-
andi matarliti og endað með
allavega fjórar skálar af bleikri
leðju gafst ég upp.“
Baksturinn og skreytingarnar
tóku tíu daga og á þeim tíma var
heimilið gjörsamlega undirlagt.
„Við borðuðum í stofunni því það
var ekki pláss fyrir okkur í eld-
húsinu, það voru box og bökunar-
plötur úti um allt,“ segir Vigdís
en segist vera ánægð með útkom-
una þótt hún hafi verið langt frá
upphaflegu hugmyndinni. „Þetta
var frumraun og tókst vel. Þetta
snerist aðallega um mikla þolin-
mæði. Ég elska snjókorn og var
með svoleiðis þema, en reyndi
að hafa kökurnar ekki einhæfar.
Mesta áskorunin fólst í að hafa
engar tvær kökur eins en þær
voru rúmlega 150 talsins.“
Skreytt hjörtu
Sérstaklega þykkur glassúr úr
flórsykri, eggjahvítu og pínulitlu
vatni notaður til að gera útlínur á
hjörtun. Leyft að þorna yfir nótt.
Fyllt upp í eyðurnar með þynnri
glassúr. Þegar kökurnar eru þornað-
ar er notaður örmjór sprautupoka-
stútur, númer eitt, til að skreyta
kökurnar ásamt kökuglimmeri og
sykurkúlum.
Heimilið var undirlagt
Vigdís Sigurðardóttir fékk það verkefni að gera fal-
legar og ætar piparkökur fyrir ítalska vinkonu sína.
SKREYTT HJÖRTU Kökurnar voru alls 150 talsins og reyndi Vigdís að hafa
engar tvær eins. Heimilið var undirlagt meðan á bakstrinum stóð, eða í tíu
daga.
EKKI BAKARAMEISTARI Vigdís hefur
gaman af því að skreyta kökur en seg-
ist bara vera áhugamaður í faginu.
PIPARKÖKUJÓLATRÉ Stjörnum er raðað upp, stærstu neðst og minnstu efst.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
skreytir piparkökur árlega
ásamt fjölskyldu mannsins síns í
Grindavík. „Mágkona mín, Fríða
Egilsdóttir, vinnur grettistak á
hverju ári, tekur á móti okkur og
hýsir þennan piparkökubakstur.
Undirbýr allt og svo komum við
hin og vöðum beint í glassúrinn,“
segir Þórdís. Í stað þess að setja
saman piparkökuhús býr fjöl-
skyldan til piparkökujólatré. „Ég
mæli eindregið með þessu fyrir
litla fingur enda ekki eins vanda-
samt og að láta veggi og þak tolla
saman. Stjörnum er raðað upp og
svo er rjómasprauta notuð til að
skreyta og litlu krakkarnir ráða
vel við föndrið.“
Piparkökujólatré
Misstórar stjörnur búnar til með
stjörnuformum. Stjörnum raðað á
víxl, hverri ofan á aðra og minnsta
stjarnan sett á rönd á toppinn.
Smjörkrem með grænum matarlit
sett í rjómasprautu og sett krem
á hverja „grein“. Greinar skreyttar
með glassúr, snjókorn eða
jólaskraut. Lengja með rauðum
jólakúlum vafin um tréð.
Hentugt fyrir litla putta
Piparkökujólatré þykja einfaldari en piparkökuhúsin.
JÓLASTEMNING Jólasveinninn var
í heimsókn hjá Þórdísi og vildi fá að
vera með á mynd með jólatrénu fína.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM