Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 42
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 Mig langar að segja hennar sögu því við eigum á hverj-um degi að vera þakklát fyrir það sem við höfum. Það getur allt breyst á örskotsstundu eins og hjá mömmu,“ segir Hrafn. Valdís móðir hans lést eftir skyndilegt hjartastopp sem hún fékk eftir að hafa farið í vel heppn- aða skurðaðgerð vegna krabba- meins í ristli. Aðgerðin gekk vel en nokkrum dögum síðar fór hún í hjartastopp, algjörlega ótengt aðgerðinni. „Þetta var ótrúlega mikið áfall enda höfðum við búist við því að það versta væri yfirstað- ið,“ segir Hrafn. Margir þekkja nafn Valdísar Gunnarsdóttur og muna eftir rödd hennar enda var hún ein þekktasta útvarpskona landsins til margra ára. „Við mamma vorum rosalega náin. Við vorum eiginlega bara eitt. Við áttum okkar eigið tungumál og létum eins og fífl fyrir framan hvort annað,“ segir Hrafn um náið mæðginasamband þeirra. Það var því mikið áfall þegar móðir hans greindist með ristilkrabbamein. „Það var eitthvað búið að vera að angra mömmu í maganum í nokkr- ar vikur og við skildum ekki af hverju það lagaðist ekki,“ segir hann. Valdís fór til heimilislækn- is sem sendi hana í ristilskoðun. „Ég beið rólegur úti í bíl á meðan hún fór í skoðunina. Svo hringir mamma í mig hágrátandi og segir mér að hún sé með illkynja ristil- krabbamein. Ég gjörsamlega fraus enda hefði mér aldrei dottið í hug að þetta myndi einhvern tímann koma fyrir hana,“ segir hann. Vel heppnuð aðgerð Valdís fór í aðgerð sem heppnað- ist vel og æxlið var fjarlægt. „Allt gekk eins og í sögu. Þetta leit allt rosalega vel út og læknirinn sagði að við þyrftum ekki að hafa áhyggj- ur. Ég held ég hafi aldrei grátið jafn mikið af gleði,“ segir Hrafn einlægur. Annað áfall átti þó eftir að dynja á þeim. „Mamma var byrjuð að geta gengið og borðað. Hún stóð sig vel í endurhæfingu og það þýddi að það væru bara nokkrir dagar þangað til hún gæti komið heim. Ég heimsótti hana á hverjum degi á spítalann og sagði henni frá deginum mínum. Meðan hún lá inni þá töluðum við alltaf saman í símann í klukkutíma áður en við fórum að sofa jafnvel þótt ég væri nýfarinn frá henni á spítalanum,“ segir hann. „Þann 29. október sendi ég mömmu skilaboð því við höfðum ekki spjallað saman í síma kvöldið áður og spurði hvort það væri allt í lagi. Mamma svaraði til baka: „Æi ég sofnaði var þreytt ástin mín, elska þig þín mamma,“ segir hann og heldur áfram: „Hálf- tíma seinna þá hringir systir mömmu í mig meðan ég er í skól- anum. Hún gat ekki talað og eina sem ég heyrði var: „Hún datt“ og „komdu upp á spítala strax“, ég hljóp í gegnum skólann, beint út í bíl og beint á spítalann.“ Skyndilegt áfall Valdís hafði farið í óvænt hjarta- stopp. „Ég vissi ekkert hvað hafði gerst. Ég kom inn í aðstand- endaherbergi og þar voru systur mömmu hágrátandi og þá vissi ég að eitthvað hræðilegt hafði gerst,“ segir hann alvarlegur. Valdís hafði farið í hjartastopp. Læknar höfðu náð að lífga hana við en henni var haldið sofandi í öndunarvél. „Ég varð aðeins rólegri þegar ég heyrði að þeir höfðu náð að lífga hana við. Ég hélt að slæmu fréttirnar væru búnar en svo reyndist ekki vera. Læknarnir tilkynntu okkur að hún hefði orðið fyrir miklum heila- skaða,“ segir hann. Næstu dagar voru erfiðir. „Ég var svo hræddur og vissi ekki neitt. Hugsunin um að ég að ég gæti ekki talað við mömmu aftur var eins og að líf mitt væri búið. Allt var stopp.“ Læknar gerðu fjölskyldunni ljóst að þótt hún myndi vakna þá yrði hún ekki söm. Hrafn segir þau þó hafa haldið í vonina þó að innst inni hafi þau vitað eins og var, að þetta væri búið. Fjölskyldan var hjá Val- dísi síðustu dagana, spilaði uppá- haldsmúsík hennar og talaði við hana. „Það hjálpaði mér líka mikið. Ég skreytti herbergið á spítalanum með dótinu sem henni þótti vænst um og við gerðum það eins heimil- islegt og við gátum. Við spjölluðum mikið við hana og létum hana vita að við elskuðum hana,“ segir Hrafn. Þyrfti ekki að hafa áhyggjur í byrjun desember í fyrra var hún svo flutt á líknardeildina í Kópa- vogi. „Við skreyttum með jóladóti og reyndum að gera allt heimilis- legt þar líka. Við vissum að það myndi gefa henni orku til þess að halda áfram,“ segir hann. Þó var vitað að baráttan væri á enda. Þann 8. desember kvaddi hún svo þennan heim. „Ég sagði við hana að hún væri besta mamma sem hægt væri að óska sér og að ég elskaði hana meira en allt í heiminum og ég ætlaði að gera hana stolta. Ég hvísl- aði í eyrað á henni að hún mætti fara og hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur af mér. Ég væri með svo gott fólk í kringum mig, fólk sem hefur stutt mig eins og klett í þessu öllu,“ segir hann. „Eftir að ég hvísl- aði þessu að henni tók hún síðasta andardráttinn. Þegar við löbbuðum út af stofunni hljómaði lagið War is over með John Lennon, uppá- haldstónlistarmanninum hennar mömmu, sem dó sama dag mörgum árum fyrr. Það var svolítið tákn- rænt,“ segir hann. Ákvað að lifa ekki í sorg Hrafn segir næstu vikur og mán- uði hafa verið erfiða. Aðeins 19 ára gamall hafði hann misst móður sína og sinn besta vin. Þrátt fyrir að það hafi verið langt frá því að vera auðvelt þá hafi hann ákveðið strax frá byrjun að lifa ekki í sorg því það hefði móðir hans ekki vilj- að. „Ég er svo heppinn að hafa átt svona góða mömmu. Það eru ekkert nema mistök að lifa í sorginni. Ég sagði við sjálfan mig að hún myndi vilja sjá strákinn sinn standa sig vel í öllu því sem hann gerir og það hef ég gert,“ segir hann. Hrafn tók prófin í skólanum, hélt áfram í handbolta og vann með. Hann hefur fengið góða hjálp frá ættingjum og vinum. Hann viðurkennir að auð- vitað hafi árið verið erfitt, hann leyfi sér að syrgja en líka að vera hamingjusamur. Ótrúleg í alla staði „Það sést ekki alltaf utan á manni en ég leyfi mér líka að syrgja. Ég sakna hennar rosalega og græt þegar ég vil gráta. En það verð- mætasta sem maður á eru minn- ingar og ég rifja upp góðar minn- ingar á hverju degi,“ segir hann. Eftir að móðir hans lést flutti hann inn til góðra vina móður sinnar. Hann þurfti með góðri hjálp að tak- ast á við mjög fullorðinslega hluti eins og að skipuleggja jarðarför og ganga frá eigum hennar. „Ég hef þroskast mikið á þessu eina ári og lært það að maður veit aldrei hvað gerist næst,“ segir Hrafn og minn- ist móður sinnar með bros á vör. „Mamma var ótrúleg í alla staði, gullfalleg, góður vinur, góð mann- eskja – hún hafði bókstaflega allt. Ég er svo stoltur af því að vera sonur hennar og hún kenndi mér svo margt,“ segir hann brosandi. „Maður á að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur í lífinu því það getur allt breyst á morgun og maður á ekki að sjá eftir neinu.“ Fædd 10. 11. 1958– dáin 08.12.2013 Maður á að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur í lífinu því það getur allt breyst á morgun og maður á ekki að sjá eftir neinu. Ákvað að lifa ekki í sorg Þann 8. desember í fyrra lést útvarpskonan Valdís Gunnarsdóttir eftir skammvinn veikindi. Hún hafði greinst með ristilkrabba- mein og fór í aðgerð vegna þess. Aðgerðin heppnaðist vel en í bataferlinu fékk hún óvænt hjartastopp. Hrafn Valdísarson segir sögu móður sinnar og hvernig hann hefur tekist á við lífið eftir að hafa misst móður sína sem var einnig hans besti vinur. LEYFIR SÉR AÐ SYRGJA Hrafn ákvað strax að lifa ekki í sorg en leyfir sér þó að syrgja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Valdís Gunnarsdóttir var um árabil ein þekktasta útvarpskona landsins. Hún lést eftir skammvinn veikindi, 8. desember í fyrra, aðeins 55 ára gömul. Valdís starfaði um ára bil við fjöl miðla, fyrst á Rás 2 og svo lengst af á Bylgj unni sem dag skrárstjóri og þátta gerðar kona ásamt því að starfa sem flugfreyja hjá Flug leiðum hf., síðar Icelanda ir. Valdís tók upp á mörgu skemmtilegu og óvenjulegu í þáttagerð sinni og kynnti þjóðina meðal annars fyrir Valentínusar deginum. Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.