Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 88
FÓLK|HELGIN
■ HUGVEKJA OG SÖNGUR
Aðventuhátíð Bergmáls verður haldin í Háteigskirkju sunnudaginn
7. desember klukkan 16.
Þar verður boðið upp á jólasálma, hugvekju og söng. Drengja-
kór Þorfinnsbræðra syngur ásamt einsöngvurunum Guðbjörgu R.
Tryggvadóttur, Aðalsteini Má Ólafssyni og Guðmundi Davíðssyni.
Við píanóið verða Kristinn Örn Kristinsson og Ingimar Pálsson.
Bergmál er líknar- og vinafélag krabbameinssjúkra og langveikra
sem rekur hvíldarheimili, Bergheima að Sólheimum.
Allir vinir og velunnarar sem vilja næðis njóta eru velkomnir. Eng-
inn aðgangseyrir er að hátíðinni. Að lokinni dagskrá verða veitingar í
Safnaðarheimili Háteigskirkju.
AÐVENTUHÁTÍÐ BERGMÁLS
Hugljúf stund í Háteigskirkju á vegum líknar- og
vinafélags krabbameinssjúkra og langveikra.
BERGHEIMAR
AÐ SÓLHEIMUM
Það hafa verið stífar æfingar und-anfarnar vikur hjá mér en eftir að tónleikarnir með Borgardætrum
og okkur KK fara í gang kemst meiri
rútína á,“ segir Ellen Kristjánsdóttir,
tónlistarkona.
„Jólatónleikarnir hjá Borgardætrum
hafa verið haldnir árlega frá því við
gáfum út plötu fyrir fjórtán árum og ég
og KK gerðum jóladisk árið 2005 sem
við fylgdum eftir og höfum haldið áfram
með jólatónleika síðan þá. Þetta gengur
vel hjá okkur og er gaman, við erum
alveg ótrúlega heppin.“
Þar sem Ellen hefur nóg að gera
í desember segist hún hafa lært að
skipuleggja sig vel. Hún bakar með
barnabörnunum í nóvember og segir
alla fjölskylduna vera orðna vana því að
hún sé upptekin á þessum tíma.
„Barnabörnin mín grínuðust einmitt
með það um daginn að ég væri bara
búin að gleyma þeim en ég er svo rík að
eiga fjögur börn, fjögur barnabörn og
eina stjúpdótturdóttur. Elsta dóttir mín,
Sigríður, á þrjú þeirra, miðstelpan mín,
Elísabet á einn strák og svo á Elín eina
stjúpdóttur.“
DÁSAMLEGT AÐ VINNA MEÐ BÖRN-
UNUM
Fjölskylda Ellenar er, eins og flestir vita,
mikil tónlistarfjölskylda en öll börn
þeirra Ellenar og Eyþórs Gunnarssonar
tónlistarmanns hafa lagt tónlistina fyrir
sig. „Allar stelpurnar mínar, Sigga, Elísa-
bet og Elín, eru saman í hljómsveitinni
Sísí Ey. Þær hafa verið að ferðast um
erlendis og eru svolítið að slá í gegn þar.
Strákurinn okkar, hann Eyþór Ingi, er í
Tónlistarskóla FÍH og er á fullu að semja
og svo er Eyþór með mér í Borgardætr-
um og í Baggalút.“
Verandi í tónlistarbransanum og
þekkja hann því og hve harður hann
getur verið reyndu þau Ellen og Eyþór
að beina börnum sínum frá því að
leggja tónlistina fyrir sig.
„Samt sem áður finnst okkur það
dásamlegt að þau séu í þessu. Þessi
bransi er auðvitað oft upp og niður en
við erum vön því og börnin hafa alist
upp við það og við getum í raun ekki
kvartað. Við elskum það sem við gerum
og þá er ekki hægt að biðja um meira,“
segir Ellen og brosir.
Hún bætir því við að fjölskyldubönd-
in eflist í gegnum tónlistina og að það
sé gaman fyrir hana að fá að vera með
börnunum sínum í henni. „Við komum
sjaldan fram saman en við mæðgur
vorum saman með tónleika á dögunum
og í febrúar ætlum við að vera með
stóra fjölskyldutónleika í Salnum þar
sem við ætlum að að blanda alls konar
tónlist saman.“
BEST AÐ SYNGJA MEÐ BRÓÐURNUM
Ellen skaut upp á stjörnuhimininn árið
1979 þegar hún söng lagið Einhvers
staðar einhvern tímann aftur með
Mannakornum. Hún hefur sungið með
fjölda tónlistarmanna en segir þó KK,
bróður sinn, vera uppáhaldstónlistar-
manninn sinn.
„Að sjálfsögðu er KK uppáhalds en
fyrstan ber auðvitað að nefna mann-
inn minn, hann er algjör snillingur og
það eru forréttindi að fá að vinna með
honum. Svo er mjög gott að vinna með
Borgardætrum og Mannakornum,
Maggi Eiríks og Pálmi Gunnars eru
eins og bræður mínir. Svo eru auðvitað
miklu fleiri og ég gleymi örugglega að
nefna einhvern sem er frábær. Ég hef
verið svo heppin að fá að vinna með
alveg ótrúlega skemmtilegu fólki.“
VERKEFNI Í PÍPUNUM
Ellen hefur gert meira af því undan-
farin ár að semja tónlist og stefnir á að
gera enn meira af því á næsta ári. „Ég
er með smá verkefni í pípunum, jafn-
vel plötu. Þetta er mjög spennandi og
skemmtilegt og eitthvað sem mig langar
virkilega að gera og hef trú á.“
Eyþór, eiginmaður Ellenar, tekur
þátt í þessu verkefni með henni en þau
höfðu ekki unnið mikið saman fyrr en
þau gerðu plötuna Sálmar árið 2004.
Aðspurð segir Ellen þau stundum verða
þreytt hvort á öðru þar sem þau búa
og vinna saman. „Við erum bara eins
og venjuleg hjón en okkur þykir svo
vænt hvoru um annað og höfum sem
betur fer þroskast og höfum verið lengi
saman í þessum bransa,“ segir hún og
hlær.
Helgarnar hjá Ellen eru yfirleitt undir-
lagðar af vinnu en þegar hún fær frí
finnst henni gaman að fá barnabörnin í
heimsókn.
„Oft höfum við kósíkvöld eða förum
saman eitthvert út í náttúruna. Mér
finnst gaman að fara á hestbak og
þegar ég syng úti á landi nýti ég mér
tækifærið þar sem eru hestaleigur og
fer á bak. Í janúar fer Eyþór út að spila
í heilan mánuð og þá ætla ég að kíkja í
heimsókn til hans og við ætlum að fara
saman til Parísar.“
JÓLIN EIGA AÐ SNÚAST UM AÐ
HJÁLPA ÖÐRUM
Jólin hjá fjölskyldunni eru hefð-
bundin en annríki aðventunnar
verður lokið rétt fyrir aðfangadag.
„Um hver jól ætla ég að hafa lítið tré
en hef aldrei komist upp með það,“
segir Ellen og hlær. Hún bætir við að
öll fjölskyldan verði saman heima
hjá þeim Eyþóri á aðfangadags-
kvöld. „Það verður eflaust einhver
hamagangur enda fjórir krakkar á aldr-
inum sex til tólf ára að taka upp gjafir.“
Á aðventunni leitar hugur Ellenar til
þeirra sem minna mega sín og er hún
að reyna að finna upp á einhverju til að
gera til að létta þeim sem eiga erfitt lífið.
„Ég mun auðvitað spila einhvers
staðar þar sem það er vel þegið en mér
finnst við hér á landi oft of gjörn á að
kvarta þó við búum í raun í paradís mið-
að við önnur lönd. Þó margt megi betur
fara hér ættum við samt að geta hjálpað
þeim sem eiga virkilega erfitt og mér
finnst að jólin eigi að snúast um það.“
■ liljabjork@365.is
KK BRÓÐIR Í MESTU UPPÁHALDI
SÖNGFUGL Aðventan er annasamur tími hjá Ellen Kristjánsdóttur tónlistarkonu. Hún heldur rúmlega tíu tónleika með KK, bróður
sínum, auk þess sem frumsýning á jólatónleikum Borgardætra var í vikunni en þeir verða líka tíu.
ELLEN Á aðventunni
leitar hugur Ellenar til
þeirra sem minna mega
sín og leitar hún leiða til
að leggja sitt af mörkum
til að létta meðborgur-
unum lífið.
MYND/STEFÁN