Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 106
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN TÆKNI | 66
Stjarneðlisfræðin er stór-kostlegt fræðasvið, lík-lega það stórkostlegasta. Þar freista vísindamenn þess að svara spurning-um sem eru jafnaldrar
mannkyns: Hvaðan komum við?
Af hverju erum við hér? Þannig
rýnir stjarneðlisfræðin í hið risa-
vaxna, hinn mælanlega alheim, en
um leið hið agnarsmáa.
Í upphafi var alheimurinn til-
tölulega leiðinlegur. Hann var
reyndar nokkuð óspennandi í um
100 milljón ár eða svo. Vetni og
helíum, forverar alls, áttu leik-
sviðið þangað til að efnin þétt-
ust í gasský sem á endanum féllu
saman og mynduðu fyrstu sól-
stjörnurnar. Í samrunaofnum
fyrstu stjarnanna litu þyngri
frumefni dagsins ljós. Með ofsa-
fengnum dauða stjarnanna
þeyttust þessi efni út í víðátt-
ur alheimsins. Þetta var upphaf
þeirrar þróunar sem færði okkur
alheiminn eins og hann er í dag
–nokkuð spennandi alheimur í
raun.
Þeir sem rýna í alheiminn til
forna eru fornleifafræðingar
stjarnanna. Hlutverk þeirra er
að útskýra hvernig og af hverju
hlutirnir eru eins og þeir eru.
Doktors neminn Ása Skúladóttir
er einn af þeim og nýjasta rann-
sókn hennar er liður í þessari
löngu leit.
Fyrir leikmanninn eru ný-
legar rannsóknarniðurstöður
Ásu og kollega hennar við Kapt-
eyn-stjarneðlisfræðideildina í
Groningen-háskóla lítið annað en
frumskógur framandi tákna og
orðfæris. Undirritaður var því
nokkuð stressaður fyrir símtal-
inu frá Hollandi, þar sem Ása býr
og vinnur. Röddin á hinum end-
anum var glaðvær, í raun hress-
andi. „Það er allar stærðargráður
að finna í stjarneðlisfræðinni. Það
stærsta og það agnarsmáa,“ segir
hin 32 ára Ása hlæjandi.
Leyndarmál Myndhöggvarans
„Það sem ég geri er að skoða yfir-
borð þessara fornu stjarna, til að
sjá hvernig þær mynduðust, hvern-
ig aðstæður voru þegar þær mynd-
uðust og í raun úr hverju heimur-
inn var gerður þegar þær urðu til.“
Rannsókn Ásu tekur til athugana
á stjörnu í hinni ævafornu Sculp-
tor-dvergvetrarbraut (stjörnu-
merkið Myndhöggvarinn). Eftir að
hafa hellt sér yfir rannsóknargögn
kom í ljós að þessi fábrotna stjarna
var einstök í vetrarbraut sinni.
„Sculptor-dvergurinn er lítil,
einn þúsundasti af massa Vetrar-
brautarinnar. Stjörnurnar þar
mynduðust fyrir tíu milljörðum
ára en það sem við sáum var að ein
stjarnan var allt öðruvísi en hinar.“
Það sem Ása og félagar sáu í töl-
unum var að stjarnan er gríðar-
lega rík af kolefni. Leit að slíkum
stjörnum hefur staðið yfir árum
saman. Í ljósi uppgötvunarinnar
lagði Ása land undir fót, áfanga-
staðurinn var fullkomnasta
stjörnuathugunar stöð heims (VLT-
sjónaukinn) í Atacama-eyðimörk-
inni í Síle.
„Þar fengum við að rannsaka
stjörnuna í smáatriðum,“ segir
Ása. „Og þar fengum við staðfest-
ingu á uppgötvuninni.“
Arfur öldunganna
En af hverju að standa í þessu?
Hvaða máli skiptir að finna
kolefnis ríka stjörnu? Til að finna
svarið verðum að leita aftur til
frum goðanna: fyrstu stjarnanna,
sem gáfu okkur allt.
Það kemur ekki á óvart að vís-
indamenn hafi áhuga á uppruna
kolefnis. Það er fjórða algengasta
frumefnið í Vetrarbrautinni, á
eftir vetni, helíum og súrefni, og
er efnafræðileg forsenda lífs. Lík-
ami okkar er 18% kolefni.
Sólin okkar framleiðir þyngri
frumefni í miklum mæli, hún er
járnrík og tilheyrir afar fjölmenn-
um hópi stjarna. Járnrýrar stjörn-
ur aftur á móti eru mun sjaldgæf-
ari.
„Það sem við höfum séð er að
þessar járnrýru stjörnur eru upp
til hópa kolefnisríkar,“ segir Ása.
„Enn sem komið er getum við ekki
séð fyrstu kynslóð stjarna. Með
því að rýna í efnin sem þau skildu
eftir sig komumst við nær þeim.
Það gæti verið að þetta mikla
magn kolefnis komi frá fyrstu
stjörnunum.“
Niðurstöður Ásu kalla á frekari
rannsóknir, það verkefni er þegar
hafið. Ása, fornleifafræðingur
stjarnanna, er rétt að hefja sína
leit. „Skemmtilegasta eðlisfræðin
á sér stað úti í geimnum,“ segir
Ása. „Þar er dramatíkin. Þetta er
svo mikil tenging við okkar dag-
lega líf.“
Fornleifafræðingar alheims
leita fyrstu stjarnanna
Myndhöggvarinn hefur verið afkastamikill undanfarið. Þið finnið hann á norðurhimni, að nætur-
lagi. Þar dvelur hann í 280 þúsund kílómetra fjarlægð og þrýstir, lemur og mótar sólstjörnur sem
aldrei fyrr. Af milljónum stjarna í þessari vetrarbraut er ein sem fangað hefur athygli íslensks
stjarneðlisfræðings. Stjarnan hefur nefnilega stórkostleg leyndarmál að geyma.
VLT-SJÓNAUKINN Ása notaði sjónaukann í Síle við rannsóknir sínar.
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Það er
allar stærðar-
gráður að
finna í
stjarneðlis-
fræðinni. Það
stærsta og
það agnarsmáa.
Ása Skúladóttir, doktorsnemi við
Groningen-háskóla í Norður-Hollandi
THE SAVAGE LOVECAST
Dan Savage er kynlífsráðgjafi í Seattle í
Bandaríkjunum. Í gegnum appið nálgast
ég poddkastið hans sem ég hlusta á í
hverri viku og svo er það troðfullt af
alls konar fróðleik.
INSTAGRAM
Ég fylgi vinum og vandamönnum
og svona 3.000 skeggjuðum
karlkyns módelum.
ARION-APPIÐ
Því ég þarf að vita hvort
ég á pening.
TINDER
Það segir sig sjálft,
verandi einhleyp kona.
UP
Appið sem vinnur með Jawbone-armband-
inu mínu sem telur skrefin mín og skráir
hversu djúpt ég sef.
QUIZUP
Ég er spurninganörd og þetta app er að
gera mig að semi-keppnismanneskju.
ITUNES
Mér er sagt að það sé ógeðslega gamal-
dags, en ég kaupi ennþá tónlist þar. Að
auki nota ég það til að hlusta á hljóð-
bækur og poddköst.
MESSENGER
Til að halda sambandi við annað fólk.
UPPÁHALDS
ÖPPIN8
Ragnheiður
Haralds og
Eiríksdóttir
hjúkrunar-
fræðingur
3G 9:41 AM
Tinder Arion appið Itunes
Instagram Savage Lovecast up Quizup
Messenger
HYRULE WARRIORS
★★★ ★★
Wii U BARDAGALEIKUR
Hyrule Warriors er bardagaleikur sem
byggir á Zeldu-leikjunum en flokkast
þó ekki sem „alvöru“ Zeldu-leikur
heldur hliðarafurð. Hann er samstarfs-
verkefni Nintendo og fyrirtækisins
Koei Tecmo, byggir á grunni Dynasty
Warriors-leikjanna og flokkast einnig
til þeirrar leikjaraðar. Í Hyrule Warriors
berjast spilarar við ógrynni óvina með
það að markmiði að stöðva ill öfl í
því að ná yfirráðum í Hyrule (en ekki
hvað).
Leikurinn er skemmtilegur og heldur
manni við efnið með áhugaverðum
söguþræði. Allar helstu hetjurnar eru
til staðar og eru þar Link og Zelda
vitanlega í fararbroddi. Sérstaklega
er ánægjulegt að finna kunnuglegar
fjársjóðskistur og vopn. Einnig
þegar leikurinn leiðir mann í borð sem
byggja á gömlum Zelda-leikjum, nánar
tiltekið Twilight Princess, Skyward
Sword og Ocarina of Time. Þar skjóta
gamalkunnar persónur upp kollinum
og spila inn í atburðarásina.
Eftir því sem líður á leikinn safnar
maður sér smám saman fleiri pers-
ónum til að spila og er þar sniðugt að
geta einnig valið óvini sem hafa fallið
í valinn og nýtt sér eiginleika þeirra og
vopnabúr. Alls eru persónurnar sem
hægt er að velja úr þrettán og er hægt
að dunda sér við að auka styrk þeirra
og hæfileika.
Bardagarnir í Hyrule Warriors
eru nokkuð einhæfir með miklum
sverðasveiflum. Einhvern veginn
virkar þetta allt samt ágætlega. Ekki
síst þar sem leikurinn er mjög góður í
tveggja manna spili þar sem reynir oft
á útsjónarsemi, herkænsku og góða
samvinnu. Þá er árásarfimi persónanna
sem hægt er að velja úr oft mjög til-
komumikil. Maður nýtur þess að sigra
óvini með loftköstunum sem hægt er
að framkalla með fjarstýringunni.
Kjörinn leikur fyrir aðdáendur Zeldu
sem bíða spenntir eftir risaleiknum
sem von er á fyrir Wii U á næsta ári.
tinni@frettabladid.is
Bardagaveisla
í boði Zeldu
Í NÝJUM GÍR Zelda, Link og félagar berj-
ast af miklum móð í Hyrule Warriors.
1 Mortal Kombat X
2 Metal Gear Solid V: The
Phantom Pain
3 The Order: 1886
4 The Legend of Zelda Wii U
5 Uncharted 4: A Thief’s End
TOPP 5 2015
Nokkrir leikir sem beðið er
með eftirvæntingu