Fréttablaðið - 06.12.2014, Blaðsíða 6
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
FISKELDI Umhverfisstofnun hefur
veitt Matorku ehf. starfsleyfi
vegna fiskeldisstöðvar að Fells-
múla í Landsveit. Matorka má
framleiða allt að 350 tonn saman-
lagt af bleikju- og borraseiðum en
leyfi gildir ekki til slátrunar.
Fiskeldið í Fellsmúla mun sam-
kvæmt umsókn ekki valda fækk-
un tegunda í lífríki Minnivalla-
lækjar. Ekki er talin hætta á að
fiskur sleppi úr eldinu því setþró
sé þannig að eingöngu yfirfall fari
út í lækinn og renni í um ristar. - shá
Segja lífríki ekki í hættu:
Ala 350 tonn af
bleikju og borra
Fjölvítamín frá náttúrunnar hendi
Jóladagatal
Miðborgarinnar
okkar
VIÐSKIPTI Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra,
sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær
að framkvæmdanefnd um afnám
fjármagnshafta myndi skila full-
mótuðum tillögum í þessari viku.
Samkvæmt heimildum upplýs-
ingum fréttastofu hefur þessum
tillögum nú verið skilað. Slita-
stjórnir Glitnis, Kaupþings og
Landsbankans hafa verið boðaðar
á fund á Grand hóteli á þriðjudag
með framkvæmdanefnd um afnám
fjármagnshafta.
Á meðal þess sem framkvæmda-
nefndin leggur til er tillaga um
flatan útgönguskatt á allt fjár-
magn í eigu slitabúanna, sam-
kvæmt upplýsingum fréttastofu.
Nefndur hefur verið 35 prósenta
flatur skattur á fjármagn í eigu
slitabúanna en sú tala hefur þó
ekki fengist staðfest.
Þá verða kynntar hug myndir
um framtíðareignarhald á
Íslandsbanka og Arion banka,
sem í dag eru báðir í eigu erlendra
kröfuhafa, það er slitabúa Glitnis
annars vegar og Kaupþings hins
vegar.
Fundurinn með slitabúum föllnu
bankanna og undanþágan sem
slita bú Landsbankans fékk til að
greiða forgangskröfuhöfum vegna
Icesave þykir vera til marks um
að hjólin séu raunverulega farin
að snúast þegar kemur að afnámi
fjármagnshafta. - þþ
Ráðgjafar ríkisstjórnarinnar hafa skilað tillögum að fullbúnum hugmyndum um afnám fjármagnshafta:
Boða slitastjórnir föllnu bankanna á fund
BOÐAR TIL FUNDAR Bjarni Benedikts-
son segir tillögurnar fullmótaðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Save the Children á Íslandi
KJARAMÁL „Vinnuálagið er orðið
óeðlilega mikið,“ segir nýr for-
maður Sjómannasambands
Íslands, Valmundur Valmunds-
son. Óviðunandi aðstæður sjó-
manna voru ræddar á þingi Sjó-
mannasambands Íslands sem
sett var á fimmtudag, þar á
meðal ónóg hvíld sjómanna.
„Hvíldarákvæði kjarasamn-
inga eru brotin, við fréttum af
því oftar en áður að sjómenn
fái ekki þá sex tíma samfleyttu
hvíld sem þeim er tryggð sam-
kvæmt lögum,“ segir Valmundur.
Hann segir mannfæð um að
kenna og hefur miklar áhyggjur
af aukinni slysahættu. „Það er
okkar mat að slysahætta eykst
og það er mikið áhyggjuefni. Ef
hvíldina vantar þá býður það
hættunni heim.“
Valmundur tekur við af Sævari
Gunnarssyni sem hefur verið
formaður Sjómannasambands-
ins í 20 ár. Hann stundaði sjó-
mennsku í 33 ár en lét af henni
fyrir fjórum árum. Áður var
Valmundur formaður Sjómanna-
félagsins Jötuns í Vestmanna-
eyjum.
Hann segir sjómenn lang-
þreytta á aðstæðum sínum, þá
helst vinnuálagi og fámenni á
sumum fiskiskipum. Þeir hafi
verið án kjarasamnings í fjögur
ár. „Það hefur bitnað á okkur að
enn hefur ekki verið lagt fram
nýtt frumvarp um stjórn fisk-
veiða. Það hefur ekki verið vilji
til að ræða við okkur um kjör
um langa hríð vegna breytinga í
útgerðinni. Það er fráleitt því það
er um margt annað að semja,“
segir Valmundur.
- kbg
Nýr formaður Sjómannasambandsins hefur áhyggjur af slysahættu:
Sjómenn fá ekki sex tíma hvíld
ÞINGEYJARSVEIT Sveitarstjórn Þing-
eyjarsveitar ákvað á aukafundi á
fimmtudaginn að grunnskólastig
Þingeyjarskóla yrði sameinað á
einum stað frá og með 1. ágúst á
næsta ári. Ákvað sveitarstjórn að
skólinn yrði staðsettur í húsnæði
Hafralækjarskóla og loka skóla-
haldi í Litlulaugaskóla.
Þrjár skýrslur voru gerðar um
skólahald í Þingeyjarsveit og hafa
verið harðar deilur í sveitarfé-
laginu allt frá því það var stofnað.
Þingeyjarskóli var sameinaður í
eina stofnun með starfsstöðvar á
tveimur stöðum, annars vegar í
Hafralækjarskóla og hins vegar í
Litlulaugaskóla.
Um fjörutíu börn eru á hvorum
stað og mikill sparnaður á að nást
með lokun Litlulaugaskóla. Upp-
sagnir eru óumflýjanlegar, að mati
Margrétar Bjarnadóttur, varaodd-
vita Þingeyjarsveitar.
Einnig hefur meirihluti sveitar-
stjórnar sent bréf til íbúa þar sem
færð eru rök fyrir ákvörðuninni.
„Okkur er ljóst að þetta er sárs-
aukafull og erfið ákvörðun en
aldrei er hægt að gera öllum til
hæfis. Það verða alltaf ein hverjir
sem hafa aðrar skoðanir og sýn
á málin og vilja að önnur leið sé
farin,“ segir Margrét.
Í Þingeyjarsveit eru um 900
íbúar og skólahald því mjög stór
hluti af rekstri bæjarfélagsins.
Til marks um það töldu þrír af sjö
sveitarstjórnarfulltrúum sig vera
vanhæfa á fundinum á fimmtudag.
Þurfti því að kalla inn þrjá vara-
menn til að geta tekið ákvörðunina.
Ragnar Bjarnason, oddviti
minnihlutans í sveitarstjórn Þing-
eyjarsveitar, telur þetta sýna að
sveitarfélagið sé of lítið til að sinna
þessu stóra máli. Þá telur hann
engin fagleg rök fyrir staðarvali
meirihlutans.
„Við vitum það að málefni skól-
anna þarf að klára en það sem ég
gagnrýni, og almenningur einnig,
er hvernig vinnubrögðin við þessa
ákvörðun eru,“ segir Ragnar sem
kveður engin rök vera sett fram.
„Menn telja að ákvörðunin hafi
verið tekin fyrir löngu síðan. Þetta
lítur út eins og að leikrit hafi verið
sett upp.“
Mikill hiti er í bæjarbúum sem
telja sig hafa verið svikna og að
meirihluti sveitarstjórnar hafi
haldið illa á málinu, sem skipti
gríðar lega miklu máli fyrir lítið
sveitarfélag eins og Þingeyjar-
sveit er.
Ekki náðist í Arnór Benónýsson
oddvita við vinnslu fréttarinnar.
Hann mun hafa talið sig vanhæfan
við afgreiðslu málsins eins og tveir
aðrir í sveitarstjórninni.
sveinn@frettabladid.is
Þrír af sjö vanhæfir
til að loka skólanum
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tók þá ákvörðun að loka Litlulaugaskóla og færa
starfsemina í Hafralækjarskóla. Íbúar afar ósáttir við ákvörðun sveitarstjórnar.
Þrír sveitarstjórnarmenn, þar með talinn oddvitinn, töldu sig vanhæfa í málinu.
SVEITARSTJÓRNARFUNDUR Íbúar Þingeyjarsveitar telja sveitarstjórn hafa haldið
illa á málinu. MYND/HERMANN
Menn telja að ákvörð-
unin hafi verið tekin fyrir
löngu síðan. Þetta lítur út
eins og að leikrit hafi
verið sett upp.
Ragnar Bjarnason, oddviti minnihlutans
í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar.
BARÁTTA FRAMUNDAN Sjómenn hafa
verið án kjarasamninga í fjögur ár og
útvegsmönnum hefur þótt lítið tilefni
til þess að setjast að samningaborðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR