Fréttablaðið - 06.12.2014, Page 48

Fréttablaðið - 06.12.2014, Page 48
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 48 Það getur reynst nnflytj-endum sem setjast að hér á landi erfitt að fá menntun sína metna eða fá starf sem hæfir menntuninni. Mörg dæmi eru um að háskólamenntaðir innflytjendur sinni láglaunastörf- um hérlendis. Ástæðurnar eru margvíslegar. Sumir hafa átt erf- itt með að fá menntun sína viður- kennda og þá sérstaklega þeir sem koma frá löndum utan EES. Marg- ir þeirra sem Fréttablaðið hefur rætt við telja líka að það sé erfið- ara að fá vinnu við sína menntun hérlendis beri maður erlent nafn. Flestir sem koma hingað fara fyrst um sinn að vinna í láglauna- störfum meðan þeir koma sér inn í samfélagið. Tungumálið reynist þeim mörgum fjötur um fót til að byrja með. Fréttablaðið hefur undanfarið kynnt sér hvers vegna það getur reynst innflytjendum svo snúið að fá menntun sína metna eða starf við hæfi. Þyrfti að einfalda Samtök kvenna af erlendum upp- runa segja marga lenda í vand- ræðum með að fá námið metið. Stjórnar konurnar Angelique Kelly og Anna Katarzyna Wozniczka benda á að það þurfi að líta á nám sem auðlind sem eigi að nýtast, hvort sem það er erlend menntun eða íslensk. „Ísland er að missa af tækifæri til þess að nota menntun og þekkingu þessa fólks,“ segir Anna. Þær benda á að það myndi hjálpa mörgum ef það yrði gert aðgengilegra og auðveldara fyrir fólk að fara í gegnum ferli til þess að láta meta nám sitt. Einnig mætti gera íslenskunám hagnýt- ara að einhverju leyti þannig að það tengist ákveðnum deildum. Þannig ætti að vera auðveldara að fara til starfa í því sérstaka fagi sem viðkomandi er menntaður í. Auðveldara fyrir fagmenntaða Auðveldara reynist iðn- og fag- menntuðum að fá metna sína menntun heldur en háskólamennt- uðum, eftir að svokallað raunhæfni- mat var tekið upp, samkvæmt Mar- gréti Steinarsdóttur, lögfræðingi og framkvæmdastjóra Mannréttinda- skrifstofu Íslands. Matið felur í sér verklegt mat á kunnáttu. „Einstak- lingur er settur í slíkt mat og mögu- lega uppfyllir hann öll skilyrði eða það vantar kannski eitthvað upp á og þá er honum leiðbeint með það og getur þá bætt við menntun sína.“ Hún hefur unnið að málefnum inn- flytjenda frá árinu 2004 og segir algeng erindi til Mannréttindaskrif- stofunnar snúa að því að fá hjálp við að fá menntun sína viður kennda. Óþarfi að hræðast Samkvæmt þeim fjölmörgu sem Fréttablaðið hefur rætt við reynist hvað erfiðast að fá menntun á heil- brigðissviði metna. Kröfurnar eru háar vegna eðli starfsins en mörg- um þykir þær of strangar. Í síðustu viku var sögð saga Liönu Belinski sem er menntaður kvensjúkdóma- læknir frá föðurlandinu Úkraínu og hefur búið hér í ellefu ár. Hún hefur starfað á leikskóla í átta ár þar sem það hefur reynst henni erfitt að fá nám sitt metið hér. Eiginmaður hennar er menntaður skurðlæknir en vinnur í eldhúsi og vörumótttöku á spítala. Margrét bendir á í þessu samhengi einnig á að það sé óþarfi að hræðast erlenda menntun. „Í flestum ríkjum þar sem fólk er með háskólamenntun þá er það fullnægjandi menntun þannig að ég held við þurfum ekk- ert að vera hrædd við það.“ Telur það ekki erfiðara hér Leifur Bárðarson, starfandi land- læknir, segist ekki kannast við að erfiðara sé að fá metið læknisnám hér heldur en annars staðar. „Þetta er ekkert flókið í sjálfu sér. Við þurfum að fá góða og gilda sönnun fyrir því að viðkomandi hafi lokið námi einhvers staðar og það upp- fylli ákveðin skilyrði. Menntun á þessum stöðum er oft með öðrum hætti heldur en hér. Við viljum tryggja að menn hafi þá reynslu og þekkingu sem almennt tíðkast hér.“ Ekki séríslenskt fyrirbæri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköp- unarsviðs Samtaka atvinnulífsins, sagði í samtali við Reykjavík síð- degis í vikunni, að henni fyndist vera leifar af gömlum for dómum sem snúa að menntun sem kemur annars staðar frá en Íslandi. Vinnumarkaðurinn stæði frammi fyrir þeirri áskorun að viðurkenna menntun annars staðar frá. Hún sagði ekki vera um séríslenskt fyrir bæri að ræða, staðan væri svipuð í nágrannalöndum okkur. Hún telur þó að þetta sé að breyt- ast. „Fólk gerir sér grein fyrir því að við þurfum á öllum hæfileikum að halda. Hvar sem þeir eru í sam- félaginu.“ Hagnýt íslenskukennsla Óskar Dýrmundur Ólafsson, hverfis stjóri í Breiðholti, er yfir tilraunaverkefninu Menntun núna sem fram fer í Breiðholti og Norðvesturkjördæmi. Mark- mið verkefnsins er að auka ráð- gjöf og stuðning við menntun inn- flytjenda. Liður í því er að hjálpa fólki að fá menntun sína metna hér lendis. Óskar segir reynsl- una af verkefninu vera góða en megin áhersla hefur verið lögð á þá sem eru með litla menntun eða enga. Engu að síður þekkir hann til þeirra sem eru mikið mennt- aðir en fá ekki störf við hæfi eða menntun sína metna. Að hans mati eru nokkur atriði sem mætti hafa í huga til að hjálpa fólki að eiga greiðari leið inn á vinnumarkað og fá starf sem hentar þeirra mennt- un. Nefnir hann hagnýta íslensku- Innflytjendum reynist oft erfitt að fá starf sem hæfir menntun Innflytjendur sem setjast að hér á landi geta átt í erfiðleikum með að fá menntun sína metna eða starf við hæfi. Háskóla- menntað fólk með erlendan uppruna sinnir oft láglaunastörfum hérlendis, í fyrstu til að reyna að ná tökum á tungumálinu. Okkur finnst þetta skrítið af því Ísland er að missa af tækifæri til þess að nota menntun og þekkingu þessa fólks. Við myndum vilja að þetta yrði skoðað betur og reynt að einfalda þetta. Angelique Kelley, í stjórn Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Viðhorfið þarf að breytast, líka meðal stofnana og atvinnuveit- enda, og það þarf að byrja að horfa á menntun innflytjenda, sem og á menntun almennt, sem auðlind og allar auðlindir þarf að nýta skynsamlega. Anna Katarzyna Wozniczka, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Ein af þeim áskor- unum sem vinnumark- aðurinn stendur frammi fyrir er að viðurkenna menntun og reynslu annars staðar heldur en frá okkur Íslendingum sjálfum. Ég held við séum öll af vilja gerð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköp- unarsviðs Samtaka atvinnulífsins. Þetta er ekkert flókið í sjálfu sér. Við þurfum að fá góða og gilda sönnun fyrir því að viðkomandi hafi lokið námi einhvers staðar og það uppfylli ákveðin skilyrði. Leifur Bárðarson, starfandi landlæknir. Í flestum ríkjum þar sem fólk er með háskólamenntun þá er það fullnægjandi menntun þannig að ég held við þurfum ekkert að vera hrædd við það. Margrét Steinarsdóttir, lög- fræðingur og framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands. Ég held það sé mikilvægt að það sé auglýst eftir fólki þar sem bakgrunnur þeirra sem innflytjandi er metinn sem kostur. Óskar Dýrmundur Ólafsson, hverfisstjóri Breiðholts. kennslu, ráðgjafaþjónustu og að atvinnurekendur taki það föstum tökum að ráða inn fólk af erlendum uppruna. „Það þyrfti íslenskunám sem er sniðið að þörfum hvers og eins, ráðgjafaþjónustu frá fyrsta degi sem gæti hjálpað fólki mjög hratt og örugglega í gegnum kerf- ið og að atvinnurekendur, hvort sem það eru opinberir aðilar eða einka aðilar, taki það mjög alvar- lega að ráða inn fólk af erlendum uppruna með þessa hæfni,“ segir hann. „Það gerist ekkert nema við setjum þetta inn sem stefnu,“ segir hann. „Eins með stjórnir fyrir- tækja, rétt eins og við viljum jafna kynjahlutfall þá mætti alveg kveða sterkar að orði í mannauðsstefnu stofnana og fyrirtækja um þetta,“ segir hann. Stacia Zakarauskiené flutti til Íslands árið 2007. Hún er frá Litháen og menntuð sem dýralæknir þaðan. Hún vann við dýralækningar þarlendis í nokkur ár og ýmis störf tengd menntun sinni. Þegar hingað var komið fékk hún menntun sína metna en hefur ekki starfað sem dýralæknir. Hún fékk samning til reynslu hjá dýralækni en endaði á að vinna í kjötvinnslu þar sem hún hefur átt í erfiðleikum með að ná tökum á íslenska tungumálinu. „Ég reyndi að vinna sem dýralæknir en það stoppar mig að ég er ekki góð í íslensku. Ég get ekki talað mjög flókið og útskýrt hluti.“ Núna vinnur hún í kjötvinnslu og kann vel við sig. „Íslendingar eru yndislegir. Vinnufélagar mínir hafa stutt mig mjög mikið og mér finnst mjög gott að vera hér,“ segir hún. „Ég mun samt vonandi einn daginn starfa við það sem ég menntaði mig til, þegar ég hef náð betri tökum á íslenskunni.“ Dýralæknir frá Litháen sem vinnur í kjötvinnslu ÁNÆGÐ Í VINNUNNI Stacia fékk menntun sína metna en vegna þess að hún hefur ekki náð góðum tökum á íslensku hefur hún ekki treyst sér til að vinna sem dýralæknir. Hún útilokar þó ekki að vinna við menntun sína hér á landi seinna meir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ég kom hingað fyrst sem aupair árið 2001. Síðan kynntist ég manninum mínum og þá ákvað ég að setjast að hérna,“ segir Alina Kerul sem er frá Litháen. Hún er menntuð sem saumafræðingur frá heimalandinu. „Fyrstu árin var ég að læra tungumálið og komast inn í samfélagið. Síðan langaði mig að gera meira og þess vegna skráði ég mig í hagfræði í háskólanum.“ Alina segist hafa haft einstaklega gaman af náminu og fengið góðar einkunnir þrátt fyrir að hafa verið með pínulítið barn á þessum tíma. Þegar hún útskrifaðist úr BS-náminu leitaði hún að vinnu í átta mánuði en varð ekkert ágengt í þeim efnum. „Ég ákvað þá að taka master í fjármálahagfræði.“ Þaðan útskrifaðist hún með fyrstu einkunn. Eftir útskrift fór hún að sækja um störf á nýjan leik en ekkert gekk. „Ég sótti um 200 störf og fékk fjögur viðtöl. Þetta var ömurlegt. Ég horfði upp á samnemendur mína sækja um sömu störf og fá þau.“ Hún segist auðvitað ekki geta sagt það með vissu en hana grunar að það hafi eitthvað að gera með það að hún beri erlent nafn. Þeim umsóknum sé tekið á annan hátt en ef nafnið er íslenskt. „Þetta tók mjög á. Þetta hafði mikil áhrif á sjálfstraustið hjá mér því þetta er það sem ég hef svo gaman af og langaði að vinna við,“ segir hún. Í dag vinnur hún í Jafnréttishúsi við ýmis skrifstofustörf. „Amal bjargaði mér. Ég hitti hana einu sinni og var að segja henni frá þessum vandamálum og hún bauð mér vinnu,“ segir hún og vísar þar til Amal Tamimi sem rekur Jafnréttishús. Hún hefur þó ekki gefist upp og vonast til þess að hún muni einn daginn starfa sem hagfræðingur. „Hjarta mitt er í hagfræðinni og það er það sem ég elska að gera. Vonandi fæ ég vinnu við það einhvern tímann en núna er allavega ekkert í boði.“ Sótti um 200 störf en fékk ekki starf við það sem hún lærði HJARTAÐ TILHEYRIR HAGFRÆÐI Alina útskrifaðist með master í fjármálaverkfræði og hefur sótt um fjölda starfa án þess að fá vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.