Fréttablaðið - 06.12.2014, Page 110

Fréttablaðið - 06.12.2014, Page 110
6. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 70 undur en Agatha Christie og persónur Kristnihaldsins megi raunar alls ekki dæma eftir mælistiku eintóms raunsæ- is. En þessa glámskyggni hinnar gömlu glæpasagnadrottningar fannst mér ellefu ára þó auðvelt að fyrirgefa, það var annað sem mér fannst miklu verra og heimsku- legra við Farþegann frá Frankfurt. Það var þegar í ljós kom hver stóð að baki hinu lymskulega samsæri nas- ista um að kollvarpa Vesturlöndum með hippa, rokkmúsík og eiturlyf að vopni. Það var nefnilega ekki sonur Adolfs Hitlers sem þó er persóna í bókinni með hakakross tattúeraðan á aðra ilina, held- ur var forsprakki samsærisins öldruð greifynja, Charlotte von Waldsausen. Hún hafði fyrrum verið ákafur fylgis- maður Hitlers og vildi endurreisa hina nasísku stjórnarhætti og ná heimsyfir- ráðum en hún sjálf ætlaði að verða For- inginn, og meira að segja sonur sjálfs Hitlers skyldi óhikað kveðinn í kútinn í því valdabrölti hennar. Og þegar þetta meginatriði plottsins var orðið ljóst þá fyrst sagði hinn ellefu ára lesandi hingað og ekki lengra, nei, þetta er svo fráleitt að það getur engan veginn staðist. Þessi bók er bull, bull og meira bull! Christie orðin elliær Það var ekki kynferði greifynjunnar sem vafðist fyrir mér. Þvert á móti. Mér fannst ekkert athugavert við að nýr For- ingi gæti verið kona. Það var aldur henn- ar sem truflaði mig svona ærlega. Hún var orðin hundgömul, kerlingin, og mér fannst einfaldlega ekki koma til nokk- urra mála að svo roskin manneskja væri að standa í alls konar illverkum og undir- ferlum og samsærum til að raka að sér völdum sem hún gæti auðvitað ekki notið nema í takmarkaðan tíma, þá myndu árin taka af henni völd og hún dæi sínum drottni. Mér fannst þetta í fúlustu alvöru, það væri svo mikið rugl að gömul mann- eskja væri að sanka að sér völdum í gríð og erg, nánast eins og fársjúk af valda- fíkn og yfirgangssemi og hikaði þá til dæmis ekki við að troða á og jafnvel hreinlega útrýma sér mun yngra fólki í valdasýkinni, mér fannst þetta hljóta að ganga gegn náttúrulögmálunum þar sem alltaf hlyti nýtt að taka við af gömlu. Og engin manneskja myndi troða svo vísvit- andi á þeim lögmálum. Það væri einfaldlega ekki rökrétt. Og ég kastaði frá mér Farþega til Frankfurt og bað þá ruglbók aldrei þríf- ast, kerlingin bersýnilega orðin elliær og hætt að skilja mannlegt eðli og nátt- úrulögmálin, hafi hún þá einhvern tíma gert það. Hrifsa völdin á sjötugsaldri Svo leið og beið og það rann um síðir upp fyrir mér að mannlegt eðli lætur ekki stjórnast af náttúrulögmálum og þaðan af síður af því sem rökrétt er. Og að þess væru ótal dæmi í sögunni að menn þekktu ekki sinn vitjunartíma frekar en Waldsausen greifynja og væru langt fram á hin efstu elliár að reyna í ofboði að sölsa undir sig meiri og meiri völd jafnvel þótt þeir gætu svo augljóslega ekki notið þeirra lengi. Það er meira að segja að grimmdin í valdagræðginni getur virst enn meiri hjá þeim gömlu en hinum yngri, kannski einmitt af því þeir vita að þeir muni ekki lengi enn fá notið þess að deila og drottna. Má ég minna á Rómarkeisarana Pupi- enus sem var hálfáttræður og félaga hans Balbinus á sjötugsaldri sem í sam- einingu hrifsuðu völdin af hinum rúm- lega fertuga Gordíanusi II en enduðu svo á því að slást í ellimóðri örvæntingu um hin nýfengnu völd uns lífvörðum þeirra blöskruðu lætin í öldungunum og hjuggu þá báða í spað? Eða Stalín sem var að undirbúa víðtækar hreinsanir á yngri mönnunum í sovéska kommún- istaflokknum þegar einhver þeirra fékk nóg og eitraði fyrir honum – að öllum líkindum. Og kannski það hafi verið Lavrentí Bería sem endurreisti þannig náttúru- lögmálin, hvað veit ég? Jón Arason valdasjúkur öldungur? En þessar hugleiðingar um valdablindu þá sem virðist líka geta gripið gam- alt fólk, ekki síður en ungt, og Agatha Christie vissi þannig sínu viti, þær héldu svolítið fyrir mér vöku fyrir nokkrum vikum af ansi óvæntu tilefni – eða þegar ég fór að hugleiða feril Jóns Arasonar biskups á Hólum. Því ég hef aldrei skilið þann góða mann. Í mjög yfirborðskenndri útgáfu er saga Jóns Arasonar svona: Hann var íslenskur kaþólskur biskup og baráttu- þjarkur sem streittist af miklu þolgæði gegn danskri ásælni og nýjum trúarsið er gekk í berhögg við þá trú sem hann hafði í heiðri. Og í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld var farið að líta á Jón sem „síð- asta Íslendinginn“ – svo ötullega hefði hann barist fyrir íslenskt þjóðerni og sjálfstæði. En þegar betur er að gáð er saga Jóns allt önnur. Sína þrotlausu bar- áttu háði hann helst um jarðir og áhrif við aðra íslenska stórbokka, en átti lengst af friðsamlega sambúð við erlent kon- ungsvald og nýja kirkjuskipan. Það var ekki fyrr en hann var kominn á efri ár og gerðist ellimóður sem hann bjóst til að ganga af fáránlegri fífldirfsku á hólm við danska konungsvaldið og lét þá engu gilda hverjum hann tróð um tær eða stofnaði í hættu. Okkur er ævinlega hollt að endur- skoða gamlar hetjur. Kemur kannski í ljós þegar að er gáð að Jón Arason var fyrst og fremst valdasjúkur og yfir- gangssamur öldungur líkt og Wald- sausen greifynja? FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson trúði því ekki að gamalt fólk hefði mikinn áhuga á að sanka að sér völdum sem það gæti svo ekki notið lengi. En vís- bendingar um slíkt er þó víða að finna. Ellefu ára gamall eða árið 1971 komst ég fyrst í kynni við merkilegt sögulegt viðfangsefni eða ætti ég að segja leyndar-dóm sem ég átti lengi síðan erfitt með að botna í, en það er valdagræðgi gamals fólks. Og þessum leyndardómi kynntist ég fyrst í 69du skáldsögu Agöthu Christie og þeirri hennar sem ég held að óhætt sé að kalla hennar allra, allra versta verk. Bókin heitir Farþegi til Frankfurt og kom út árið sem Christie varð áttræð eða 1970. Rétt fyrir jólin það ár kom hún svo út í íslenskri þýðingu. Ég held að í þá daga hafi verið afar sjaldgæft að svo splunkunýjar erlendar bækur kæmu út hér á landi, svo mikils hefur líklega verið vænst af þessu glóðvolga verki drottn- ingar leynilögreglusagnanna, konunnar sem hafði fært þakklátri veröld ódauð- legar persónur eins og Hercule Poirot, ungfrú Jane Marple og Hastings ofursta. Sjálfur keypti ég bókina á bókamarkað- inum ári seinna og óhætt er að segja að hún hafi valdið mér heilmiklum heila- brotum en þó kannski ekki alveg á þann hátt sem Christie ætlaðist til. Umrót hippatímans rakið til nasista Söguþráð Farþega til Frankfurt hirði ég ekki um að rekja. Jafnvel ellefu ára gamall lesandi áttaði sig fljótlega á því að hann var í besta falli illskiljanlegur en í versta falli tóm heimskuleg þvæla. Hins vegar var rót sögunnar greinilega tilraun hins aldna rithöfundar árið 1970 til að skilja breytta tíma í samfélaginu – byltingu unga fólksins með tilheyrandi frjálsum ástum, agaleysi og mótþróa gegn foreldravaldinu, eiturlyfjaneyslu og allt annarri tónlist en áður hafði heyrst. Þetta var svo róttæk umbylting að Chris- tie virðist ekki hafa getað trúað því að þetta væri allt sjálfsprottið upp úr sam- félaginu, heldur hlyti þetta allt að vera samsæri og stjórnað af vondum mönnum. Og hin enska Agatha Christie vissi nátt- úrlega ekki af neinum verri mönnum en þýskum nasistum, og því var allt umrót hippatímans í bókinni rakið til undirferla þýskra nasista sem stefndu að heimsyfir- ráðum og Fjórða ríkinu. Allt er þetta afar þokukennt í bókinni, ekki biðja mig að skýra það í neinum smáatriðum. En alla vega er það niður- staðan – gamlir þýskir stuðningsmenn Hitlers hafa einhvern veginn komið öllu í bál og brand með því að beita fyrir sig Bítlunum og Rolling Stones og ætlunin er að sómakæru fólki blöskri svo aðfarir hippanna að það sætti sig við nýja nas- istastjórn. Forsprakkinn gat ekki verið öldruð greifynja Einhvern veginn svona held ég að Christie hafi hugsað þetta, þótt ég ítreki að hugsunin að baki bókinni sé afar laus í reipunum, svo ég orði það nú kurteis- lega. Þótt ég væri enginn hippi þegar ég var ellefu ára og væri enn afar stilltur og prúður drengur og mesti rokkarinn sem ég þekkti væri enn Ómar Ragnarsson, þá gerði ég mér grein fyrir að Agatha Christie væri kannski aðeins of roskin og ráðsett til að geta skilið hippana, en á því fóru reyndar margir gamalgrónir höfundar flatt þessi misserin. Eftir á að hyggja geta hipparnir í Kristnihaldi undir Jökli eftir Halldór Laxness frá 1968 líklega ekki talist sérlega sannferð- ugar persónur, þótt Halldór hafi vita- skuld verið þúsund sinnum merkari höf- AGATHA CHRISTIE, ADOLF HITLER OG JÓN ARASON Má ég minna á Rómarkeisar- ana Pupienus sem var hálfáttræður og félaga hans Balbinus á sjötugsaldri sem í sam- einingu hrifsuðu völdin af hinum rúm- lega fertuga Gordíanusi II en enduðu svo á því að slást í elli- móðri ör- væntingu um hin nýfengnu völd. AGHATA CHRISTIEADOLF HITLER JÓN ARASON Smiðshöfða 12 • 110 Reykjavík • s: 586 8000 helgina 6. og 7. des. frá kl. 10-17 Sýndar verða vélar frá Casolin og Robland og allt það sem að við höfum upp á að bjóða í þjónustu við Tréiðnaðinn Kaffiá könnunni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.