Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Síða 8
Ó dýrara er að kaupa sér ódýrasta tilboðsflugmiðann til útlanda á 9.900 krónur, fara í Fríhöfnina og versla tollinn þar heldur en að kaupa áfengi í Vínbúðinni. Og þú átt afgang. Í fyrra dæminu sem sett er upp og sýnt hér með greininni þá er miðað við að keyptur sé allra ódýrasti tilboðsmiði aðra leið en flugfélögin hafa reglulega boðið upp á tilboð þar sem flugið kostar aðra leið 9.900 krónur. Auk flugmiðans er keypt eins líters flaska af Grand Marnier sem kostar 3.999 krónur í Fríhöfninni, einn lítra af Baileys sem kostar 3.199 krónur á sama stað og tvær kippur af Egils Gull í hálfs lítra dósum sem kosta samtals 2.518. Samtals gerir þetta án flugmiðans 9.716 krónur. Sama áfengi kostar 20.717 krónur í ÁTVR. Munurinn er því 11.001 króna eða 113 prósent. Sé keyptur tilboðs- flugmiði á 9.900 krónur þá er 1.101 króna í afgang. 140 prósenta munur Í seinna dæminu er keypt Grand Marnier-flaska sem kostar eins og áður sagði 3.999 krónur í Fríhöfn- inni, Gordon‘s Gin-flaska einn lítri sem kostar þar 2.599 krónur og auk þess tvær kippur af Bola Premium- bjór sem kosta 2.798 krónur. Samtals eru þetta 9.396 krónur. Sama verð í ÁTVR er 22.510 krónur. Munurinn er því 13.114 krónur eða 140 prósent. Sé keyptur ódýrasti tilboðsflugmið- inn aðra leið eins og í fyrra dæminu eru því 3.214 krónur í afgang. Ekki er þó reiknað með bensínkostnaði eða slíku í dæmunum enda aðeins gert til gamans. Mikil hækkun Frá árinu 2008 hafa álögur á sterkt áfengi hækkað mikið en síðasta hækkun tók gildi 1. janúar. Á sama tíma hefur sala á sterku áfengi dreg- ist töluvert saman. Í desember 2008 hækkuðu áfengisgjöld um 12,5 pró- sent, í maí 2009 hækkuðu þau um 15 prósent auk þess sem virðis- aukaskattur af áfengi hækkaði úr 24,5 prósentum í 25,5 prósent. Í jan- úar 2010 hækkuðu áfengisgjöld enn um 10 prósent, í janúar 2012 um 5,1 prósent og svo í janúar 2013 um 4,6 prósent. Það er því töluverð hækkun síðan 2008. Sé tekið dæmi um eins lítra Smirnoff Vodka-flösku þá kost- aði hún 4.864 krónur árið 2008 en kostar í dag 7.199 krónur. Í prósent- um er hækkunin 48 prósent. 8 Fréttir 25.–27. janúar 2013 Helgarblað Ríkið tekuR 87% af veRði flöskunnaR n Flug aðra leið og áfengi í Fríhöfninni kostar minna en áfengi í Vínbúðinni ILS stofnar leigufélag Stjórn Íbúðalánasjóðs tók á mið- vikudag ákvörðun um stofnun leigufélags um hluta af fasteign- um sjóðsins. Mun félagið taka yfir eignarhald og rekstur 524 fast- eigna Íbúðalánasjóðs um land allt, frá og með 1. janúar 2013. Félagið sem um ræðir heitir Leigufélagið Klettur ehf. og verður fyrst um sinn í eigu Íbúðalánasjóðs. Rekstur þess er sjálfstæður og hefur í félaginu verið kosin sérstök stjórn. Félagið yfirtekur núgildandi leigusamninga í óbreyttri mynd og ættu leigjendur viðkomandi eigna ekki að verða fyrir neinni röskun. Eignasvið Íbúðalánasjóðs mun annast rekstur fasteigna Leigufé- lagsins Kletts ehf., þar til félagið tekur að fullu til starfa. Eftir stofnun félagsins er Íbúða- lánasjóður enn með um 1.700 fast- eignir í eignasafni sínu. Hátt í 400 af þeim eru í útleigu, en stofnun leigufélagsins mun í engu raska stöðu þeirra sem leigja þær íbúðir, að sögn Íbúðalánasjóðs. Stofnun leigufélagsins hefur tvö meginmarkmið. Annars vegar að losa um eignarhald Íbúðalánasjóðs á fasteignum og aðskilja rekstur þeirra frá rekstri sjóðsins. Hins vegar að koma til móts við þann vilja stjórnvalda að auka framboð á húsnæði til langtímaleigu. Megintilgangur Leigufélags- ins Kletts ehf. er að bjóða hent- ugt íbúðarhúsnæði til leigu um allt land, með langtímahúsnæðis- öryggi að leiðarljósi. Heildarverð- mæti þeirra 524 eigna sem félagið yfirtekur er um 7,7 milljarðar króna. Áætluð velta félagsins á árinu 2013 er um 700 milljónir króna. Hagnað- ur af rekstri félagsins mun renna til uppbyggingar á starfsemi þess. Könnun á geymslu skotvopna: Skotvopn í ólæstum hirslum MMR kannaði hvort skotvopn væru á heimilum fólks og hvernig þau væru þá geymd. Skotvopn reynd- ust vera á tæpum fjórðungi heimila en af þeim sem svöruðu sögðu 23,5 prósent skotvopn vera á heimilinu og 76,5 prósent sögðu engin skot- vopn vera á heimilinu. Í niðurstöðum könnunar MMR kemur fram að á meirihluta þeirra heimila sem skotvopn voru til stað- ar voru gerðar einhvers konar ráð- stafanir varðandi geymslu þeirra. Þrátt fyrir að meirihluti geri ráðstaf- anir varðandi geymslu skotvopna vekur það athygli að skotvopn eru geymd í sérgerðum vopnaskáp á heimilum tæplega helmings skot- vopnaeigenda. Af þeim sem svör- uðu sögðu 43,9 prósent að skotvopn væru geymd í sérútbúnum vopna- skáp, 11,2 prósent sögðu að skot- vopn væru geymd í læstri hirslu, með gikklás, 10,5 prósent sögðu að skotvopn væru geymd í læstri hirslu en þó ekki með gikklás og 15,5 pró- sent sögðu að skotvopn væru geymd í ólæstum hirslum, með gikklás. Tæpur fimmtungur sagðist gera litlar eða engar ráðstafanir varðandi geymslu skotvopna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 18,8 prósent geyma skotvopn í ólæstum hirslum, án gikkláss eða ekki gera neinar sér- stakar ráðstafanir varðandi geymslu skotvopna. ÁTVR 10.550 ÁTVR 10.550 ÁTVR 7.460 ÁTVR 5.979 ÁTVR 4.188 ÁTVR 4.500 Fríhöfnin 3.999 Fríhöfnin 3.999 Fríhöfnin 2.599 Fríhöfnin 3.199 Fríhöfnin 2.518 Fríhöfnin 2.798 Ríkið tekur 87 prósent af verði flöskunnar Af þessari sömu vodkaflösku tekur ríkið 87 prósent af verði flöskunnar. Flaskan kostar núna út úr ríkinu, eftir síðustu hækkun, 7.199 krónur. Af því fara 87 prósent til ríkisins, eða 6.272 krónur. ÁTVR leggur 615 krón- ur á flöskuna sem gerir 8,5 prósent. Virðisaukaskattur af flöskunni er svo 25,5 prósent sem gera 1.463 krónur eða 20 prósent af verði flöskunnar, þar ofan á leggst áfengisgjaldið sem er 4.194 krónur eða 58 prósent af verði flöskunnar. Afgangurinn, 927 krónur, eða 13 prósent af heildar- verði, fara svo í innkaupaverð flösk- unnar, flutningsgjöld og framlegð. Sama flaska kostar 2.399 krónur í Fríhöfninni. n Dæmi 1 Flugmiði, einstakt fargjald 9.900 kr. Afgangur ef verslað er í fríhöfninni 1.101 kr. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is munur 11.001 munur 13.114 Dæmi 2 Flugmiði, einstakt fargjald 9.900 kr. Afgangur ef verslað er í fríhöfninni 3.214 kr. Minnkandi sala á sterku víni í Vínbúðum 2008 -3% 2009 -11% 2010 -16% 2011 -5,0% 2012 -4.1% Desember 2008 Áfengisgjöld hækka um 12,5% Maí 2009 Áfengisgjöld hækka um 15% Maí 2009 Vsk. á áfengi hækkar úr 24,5% í 25,5% Janúar 2010 Áfengisgjöld hækka um 10% Janúar 2012 Áfengisgjöld hækka um 5,1% Janúar 2013 Áfengisgjöld hækka um 4,6% Smirnoff vodki 1 lítri Verð út úr búð= 7.199 kr Heildarhlutur ríkisins = 6.272 kr n Álagning ÁTVR = 615 kr eða 8,5% af heildarverði n Virðisaukaskattur 25,5% = 1.463 kr eða 20% af heildarverði n Áfengisgjald 4.194 kr eða 58% af heildarverði n Afgangur = 13% eða 927 kr sem inniheldur innkaupsverð vörunnar, flutningsgjöld + framlegð M y n D iR s ig tR y g g u R a R i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.