Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Síða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Síða 53
Fólk 53Helgarblað 25.–27. janúar 2013 É g ætlaði að vera búin að læra tangó fyrir afmælið en segjum bara að dansskórnir séu ekki enn fundnir,“ segir Sjöfn Har myndlistarkona sem verður sextug 25. janúar. Hún ætlar að eyða af- mælisdeginum á Hótel Rangá með nánustu fjölskyldu en þar hefur hún pantað suður-ameríska svítu. „Kannski finn ég tangóinn þar,“ segir hún og hlær. Hún segir það svolítið ógnvekj- andi tilhugsun að hún sé að kom- ast á sjötugsaldurinn. „Það hlaut að koma að þessu. Ég lít bara á þetta þannig að ég sé að komast í fyrri flokk heldri borgara.“ Sjöfn hefur haldið upp á stór- afmæli á mismunandi vegu en þegar hún varð fertug hélt hún veislu í Listhúsinu í Laugardal þar sem kóngurinn í Múlakaffi mætti með þorramat. Þegar hún varð fimmtug eyddi hún deginum í Höfðaborg í Suður-Afríku þar sem bróðir hennar býr. „Nú ætla ég nú bara að skreppa yfir í næstu sýslu.“ Sjöfn er fædd og uppalin í Stykkis hólmi en er nú búsett á Stokkseyri þar sem hún hefur undanfarin ár verið með vinnu- stofu og myndlistarskóla. Áður var hún með vinnustofu á Eyrarbakka, í Reykjavík og í Kaupmannahöfn. Þ etta verður notalegur dekur- dagur,“ segir Hanna Valdís Garðarsdóttir á Selfossi sem verður fertug í dag, föstudag. Hanna Valdís segir veisluhöld bíða þar sem þau hjónin standi í fram- kvæmdum á heimilinu. „En í stað- inn ætla ég í spa og á snyrtistofu í alls kyns dekur. Svo um kvöldið ætlum við að eiga notalega stund heima og elda eitthvað gott saman.“ Hanna Valdís er lyfjatækn- ir og starfar á sjúkrahúsinu á Sel- fossi, bæði við lyfjaafgreiðslu og við umönnun á öldrunardeild auk þess sem hún sér um bókhald fyrir Bílasölu Selfoss. Hún er ákveðin í að taka sér frí frá vinnu í tilefni dags- ins og segist ekki hafa áhyggjur af hækkandi aldri. „Þetta er bara mjög gott enda má maður vera þakklátur fyrir að fá að eldast. Það er ekki eins og ég sé orðin eitthvað háöldruð. Ég þakka bara fyrir hvert ár.“ Ætlaði að vera búin að læra tangó Spa og dekur Sjöfn Har verður sextug í dag, föstudag Hanna Valdís tók sér frí í tilefni dagsins N afnið er tilkomið með gaman sömum hætti en en ég var sjóari og var stund- um kallaður Stjáni blái. seg- ir Kristján Þór Júlíusson al- þingismaður sem heldur úti síðunni Stjáni blái. Hann segir nafnið því bæði skírskotun í sjómennskuna og stjórnmálin. Nýtir sér tæknina Blár litur er áberandi á síðunni sem hann byrjaði með fyrir nokkrum árum og segja má að hún sé eins konar fjölmiðill þar sem Kristján birtir viðtöl sín við fólk í landinu. Aðspurður um áherslur sínar á síð- unni segist hann vilja bera út þau lífsviðhorf sem almenningur í hans kjördæmi hefur. Hann hafi alltaf lagt sig fram um að hlusta á það sem fólk hefur að segja og reynt að miðla því áfram með einhverjum hætti. „Svo sér maður möguleik- ann sem þessi nýja tækni í sam- skiptum býður upp á. Að maður hafi þann möguleika að bjóða fleirum að hlusta á þetta sama fólk sem ég gef mig í rauninni út fyr- ir að vinna fyrir. Ég tel að radd- ir þessa fólks eigi fullt erindi inn í þjóð félagsumræðuna í dag. Hér er mikil fjölbreytni og mikil reynsla sem getur orðið öllum til gagns. Það er í rauninni megintilgangur minn, að vinna eitthvað til gagns með þessu.“ Viðbót við ræðupúlt Alþingis Kristján, sem þingmaður í stóru og víðfeðmu kjördæmi, bendir á að þetta sé í raun það sama sem hann hefur gert á vettvangi vinnu sinnar í flokknum, að miðla upplýsingum. „Ef maður tekur starf þingmanns, þá ber hann þessi boð á milli kjördæma í ræðupúlti Alþingis. Það er hins vegar bara einhliða frásögn en með þessari tækni gefst miklu meira rými til að bera skilaboð fólks og sjónar- mið milliliðalaust. Þetta er því bara viðbót við aðra fjölmiðlun í landinu.“ Lærir á tæknina smátt og smátt Þingmaðurinn er einnig farinn að nýta sér Facebook í sömu erindagjörð- um. „Ég hef verið með opinbera síðu á Facebook núna í tvö til þrjú ár og er að koma mér inn á þessa miðlun. Maður lærir á þessa tækni tækni smátt og smátt og kemur alltaf auga á nýja möguleika til að nýta þessa nýju tækni.“ Hann bætir við að samspil heima- síðu, upptöku og Facebook gefi hon- um þann möguleika, sem stjórn- málamanni, að bera út skilaboðin frá fólkinu til þeirra sem hafa áhuga á að hlýða á þau. Aðspurður hvort hann noti einnig nafn Stjána bláa á Facebook segir Kristján: „Nei, hún heitir nú því virðu- lega nafni Kristján Þór Júlíusson. Maður getur ekki verið Stjáni blái alls staðar.“ n Kristján Þór er Stjáni blái n Skírskotun í sjómennskuna og stjórnmálin Stjáni blái Fyrrverandi sjómaðurinn Kristján. K nattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson er á lausu. Samkvæmt öruggum heim- ildum DV hafa Garðar og Skagamærin unga, Alma Dögg Torfadóttir, slitið samvistum. DV flutti fyrstu fréttir af sambandi þeirra í júlí í fyrra. Þá virtist parið afar hamingjusamt og ástfangið og fréttir af sambúðinni bárust svo um haustið. „Við pössum mjög vel saman – erum með svipaðan húmor og getum talað endalaust saman og sitjum oft langt fram á kvöld og spjöllum. Svo skemm- ir ekkert fyrir hvað hún er falleg og góð. Það er alveg ótrúlegt hvað hún virðist þola gamla karlinn,“ lét Garðar hafa eftir sér í september. Nú hefur ástareldurinn hins vegar slokknað en samkvæmt heimild- um DV voru sambandsslitin gerð í góðu. Eins og alþjóð veit er Garðar fyrrverandi eiginmaður glamúr- drottningarinnar Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur. Hjónakornin fyrr- verandi eiga saman tvö börn en heimildir blaðsins herma að þótt Garðar og Ásdís Rán séu í góðu sambandi barnanna vegna séu afar litlar líkur á að þau taki saman aftur. Garðar og Ásdís bjuggu meðal annars saman í Búlgaríu en þangað fluttu þau vegna knattspyrnuferils hans. Nú býr Garðar á Akranesi þar sem hann spilar knattspyrnu með ÍA og elur upp son þeirra, Hektor. Það að fótboltamaðurinn sé aftur kominn út á markað- inn eru eflaust góðar fréttir fyrir einhleypar íslenskar konur enda Garðar eftirsóttur piparsveinn sem eitt sinn var valinn herra Ísland. Garðar neitaði að tjá sig um málið þegar DV leitaði eftir því. n n Sleit sambandinu við Skagameyna Garðar á lausu PiparsveinnÞær eru eflaust ófáar stúlk- urnar sem fagna því að Garðar Gunnlaugs- son sé kominn á markaðinn. Afmælisbarnið Kemst í fyrri flokk heldriborgara. Fertug í dag Aldrei að vita nema hún fái barnið í afmælisgjöf Þ að er lítið planað í tilefni dags- ins en ég verð þó með smá fjölskylduboð heima,“ seg- ir Valbjörg Pálmarsdóttir á Sauðárkróki sem verður fertug í dag, föstudag. Valbjörg er leikskólakennari á leikskólanum Ársölum. „Að vísu er ég hætt að vinna þar sem ég er að bíða eftir að fæða barn,“ segir Valbjörg sem er skrifuð inn 9. febrúar. Valbjörg á tvær stelpur fyrir en segist ekki vita hvort kynið sé um að ræða núna. „Það verður bara spennandi að fá að vita þegar þar að kemur. Svo er aldrei að vita nema ég fái bara barnið í afmælisgjöf. Kannski ég verði bara á deildinni í staðinn fyrir að vesenast með kaffiboð,“ segir hún hlæjandi. Aðspurð segist hún sakna þess að missa af afmælissöng leik- skólabarnanna þar sem hún sé hætt að vinna. „Að vísu ætla ég að kíkja aðeins á leikskólann til að gefa samstarfskonunum köku. Það er aldrei að vita nema þær syngi fyrir mig.“ Söngvakeppnin um helgina

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.