Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2013, Blaðsíða 56
Ekkert
saurlífi í
Póllandi!
Hasarmyndin
Svartur á leik
n Ekki þótti hið íslenska umslag
kvikmyndarinnar Svartur á leik
nægilega söluvænt fyrir erlendan
markað, en á meðfylgjandi mynd
má sjá umslagið á DVD-myndinni
sem kvikmyndafyrirtækið Lions-
gate hefur gefið út. Á íslenska um-
slaginu sjást þeir Jóhannes Haukur
Jóhannesson og Þorvaldur Davíð Krist-
jánsson með drungalega hauskúpu
í bakgrunni en á hinu erlenda
umslagi ákváðu menn að leggja
eilítið meiri áherslu á hasarinn.
Á því sést Þorvaldur vígalegur –
og reyndar mjög myndbreyttur – á
svip, haldandi á tveimur skamm-
byssum, skjótandi af áfergju.
Myndin hefur verið sýnd víða við
ágætisund-
irtektir,
meðal
annars í
Póllandi,
Danmörku,
Hollandi,
Bretlandi,
Taívan,
Svíþjóð,
Þýskalandi
og Banda-
ríkjunum.
Ómar á Hvelli
n Ómar Ragnarson og eiginkona
hans Helga Jóhannsdóttir voru á
meðal gesta er heimildamyndin
Hvellur var frumsýnd á miðviku-
daginn. Myndin fjallar um víð-
frægan atburð í Íslandssögunni
en í Laxárdeilunni svokölluðu
tók hópur bænda sig saman og
sprengdi upp stíflu í Laxá við Mý-
vatn. Þetta var í lok sumars árið
1970 og alls lýstu 113 sig ábyrga
fyrir sprengingunni, en enginn
var sakfelldur fyrir verknaðinn.
Ómar var
ánægður með
myndina en
á Facebook-
síðu sinni
greinir hann
frá því að
myndin
sé
bæði
„þörf
og
góð“.
Predikar í
detox-meðferð
n Gunnar Þorsteinsson sem áður
var kenndur við Krossinn hefur
lungann úr janúarmánuði verið
í ströngu afeitrunarprógrammi
í Póllandi. Þar var hann ásamt
eiginkonunni Jónínu Benedikts-
dóttur og hópi annarra. Gunnar
predikað meðal annars á heilsu-
hótelinu í Póllandi og uppfærði
reglulega stöðu sína á Facebook,
í miðri detox-meðferðinni. Sam-
kvæmt meðferð Jónínu
fasta menn yfir langt
skeið í því skyni að
losna við eiturefni
úr líkamanum. Þess
skal getið að lækn-
isfræðilega hefur
ekki verið sýnt
fram á árang-
ur svokallaðra
detox-með-
ferða.
Þ
etta byrjaði sem lítil hugmynd
í kollinum á mér og er orðið
75 mínútna verk í dag, segir
leikarinn og leikstjórinn Ingi
Hrafn Hilmarsson en hann stendur
á bak við nýtt íslenskt leikverk sem
ber heitið Tamam Shud og er nú sýnt
í Leikhúsinu Kópavogi. Ingi kemur
að uppsetningu verksins úr ýmsum
áttum en hann skrifaði handritið í
samvinnu með Áslaugu Torfadóttur
og Tryggva Rafnssyni. Þá hefur hann
haldið utan um leikstjórnina ásamt
Bjartmari Þórðarsyni.
„Það er æðislegt að sjá svona litla
hugmynd verða að veruleika á sviði,“
segir Ingi sem er að vonum ánægð-
ur með útkomuna, en uppselt hefur
verið á allar sýningar til þessa. Ingi
hefur fjármagnað leigu á húsnæði
og leigu á tækjum með launum sem
hann fær fyrir dagvinnu sína á leik-
skóla. „Ég ákvað bara að taka séns-
inn og stökkva út í djúpu laugina.“
„Við erum öll í vinnu með þessu
og höfum bara mætt upp í leikhús
eftir vinnu og verið þar að leika og
æfa fram eftir kvöldi.“ Öll þessi vinna
virðist hafa borgað sig því nú þegar
er orðið uppselt á næstu sýningar,
nú um helgina. Ingi Hrafn segist
vona að hægt verði að halda auka-
sýningar en það eigi eftir að koma í
ljós.
Ingi segir ekkert nafn komið á
leikhópinn en telur líklegt að það
komi fyrr en seinna. „Þetta er klár-
lega flottur hópur og við vinnum öll
mjög vel saman.“ Verkið er byggt á
sönnum atburði sem átti sér stað í
suðurhluta Ástralíu árið 1948 þegar
lík af óþekktum karlmanni fannst
liggjandi á Somerton-strönd. n
jonbjarki@dv.is
„Ákvað að taka sénsinn“
n Ungur leikari hefur fjármagnað leiksýningu með leikskólalaunum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 25.–27. JanúaR 2013 10. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Á sviði Ingi Hrafn Hilmarsson leikur í nýju íslensku verki sem ber heitið Tamam Shud og
dregur að sér áhorfendur.