Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 11

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 11
11 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Líffræðingar hafa lengi velt vöngum um hvað sé lifandi og hvað ekki og bæði hvernig og hvar greina á þar á milli. En í stað þess að myndin hafi skýrst með aukinni þekkingu bregður svo við að mörkin verða æ ógreinilegri. Kannski erum við rétt að byrja að læra starfróf lífsins eða jarðarinnar, læra að skynja jörðina sem risafyrirbæri, risalíkama sem endurnýjar sig líkt og líkami okkar gerir án þess að við gerum okkur grein fyrir frumudauða og endur- nýjun, rétt eins og hjartsláttur sem heldur áfram eða hættir burtséð frá því hvað við hugsum eða okkur þykir. Þannig er lífið. Náttúruferli eru viðbrögð við áreiti – og við erum ekki þau sömu í dag og í gær. Til þessa hefur stóra sýn líffræð- inga verið vistkerfi og lífheimur, biosphere, þar sem vistkerfi eru nokkuð skýrt afmarkað hugtak á meðan lífheimur er óljóst, stórt fyrir- bæri. Jarðfræðingar hafa á seinni árum skilgreint æ betur fræðigrein- ina: Earth System Science, jarðkerfa- fræði, sem umvefur allt. Vistkerfi og jarðarkerfin standa fyrir sínu en skilningur okkar á þeim og heildar- samspilinu breytist – frá því að vera nokkuð aðgreind kerfi í það að vera ein heild þar sem æ örðugra reynist að greina á milli lífrænna og Íslandssafn – að sá, virða og uppskera Guðmundur Páll Ólafsson Menn upplifa stöðugt nýja sýn á móður jörð og það svo mjög að til eru þeir sem velta því alvarlega fyrir sér hvort við, Homo sapiens, sem og aðrar lífverur séum einskonar jarðmyndanir. Ég hallast fremur að því að við séum sérútgáfur af vatni með algengum aukaefnum. Í þessum stóra, nýja gjafapakka hefur einnig komið í ljós að veðurfar sem talið hefur verið hrein jarðfræði, ekki síst úrkoma, er að drjúgum hluta líffræðilegt fyrirbæri og að hitastig á yfirborði jarðar er og hefur verið temprað af lífverum ármilljónum saman. Úrkoma verður semsagt til fyrir tilstilli lífvera og skýin sem þeytast um himinhvolfin eru morandi af lífi og líf- rænum efnum – sem þétta raka og framkalla úrkomu. Þetta eru öðruvísi rakaský en við héldum og lærðum. Heimsmyndin hefur breyst og jörðin er ævintýralegri en nokkurt mannlegt ævintýri. Náttúrufræðingurinn 80 (1–2), bls. 11–14, 2010 © gpó © gpó 80 1-2#loka.indd 11 7/19/10 9:50:40 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.