Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 11
11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Líffræðingar hafa lengi velt vöngum
um hvað sé lifandi og hvað ekki og
bæði hvernig og hvar greina á þar
á milli. En í stað þess að myndin
hafi skýrst með aukinni þekkingu
bregður svo við að mörkin verða æ
ógreinilegri. Kannski erum við rétt
að byrja að læra starfróf lífsins eða
jarðarinnar, læra að skynja jörðina
sem risafyrirbæri, risalíkama sem
endurnýjar sig líkt og líkami okkar
gerir án þess að við gerum okkur
grein fyrir frumudauða og endur-
nýjun, rétt eins og hjartsláttur sem
heldur áfram eða hættir burtséð
frá því hvað við hugsum eða okkur
þykir. Þannig er lífið. Náttúruferli
eru viðbrögð við áreiti – og við erum
ekki þau sömu í dag og í gær.
Til þessa hefur stóra sýn líffræð-
inga verið vistkerfi og lífheimur,
biosphere, þar sem vistkerfi eru
nokkuð skýrt afmarkað hugtak á
meðan lífheimur er óljóst, stórt fyrir-
bæri. Jarðfræðingar hafa á seinni
árum skilgreint æ betur fræðigrein-
ina: Earth System Science, jarðkerfa-
fræði, sem umvefur allt. Vistkerfi
og jarðarkerfin standa fyrir sínu en
skilningur okkar á þeim og heildar-
samspilinu breytist – frá því að vera
nokkuð aðgreind kerfi í það að
vera ein heild þar sem æ örðugra
reynist að greina á milli lífrænna og
Íslandssafn
– að sá, virða og uppskera
Guðmundur Páll Ólafsson
Menn upplifa stöðugt nýja sýn á móður jörð og það svo mjög að til eru
þeir sem velta því alvarlega fyrir sér hvort við, Homo sapiens, sem og
aðrar lífverur séum einskonar jarðmyndanir. Ég hallast fremur að því að
við séum sérútgáfur af vatni með algengum aukaefnum. Í þessum stóra,
nýja gjafapakka hefur einnig komið í ljós að veðurfar sem talið hefur
verið hrein jarðfræði, ekki síst úrkoma, er að drjúgum hluta líffræðilegt
fyrirbæri og að hitastig á yfirborði jarðar er og hefur verið temprað af
lífverum ármilljónum saman. Úrkoma verður semsagt til fyrir tilstilli
lífvera og skýin sem þeytast um himinhvolfin eru morandi af lífi og líf-
rænum efnum – sem þétta raka og framkalla úrkomu. Þetta eru öðruvísi
rakaský en við héldum og lærðum. Heimsmyndin hefur breyst og jörðin
er ævintýralegri en nokkurt mannlegt ævintýri.
Náttúrufræðingurinn 80 (1–2), bls. 11–14, 2010
© gpó
© gpó
80 1-2#loka.indd 11 7/19/10 9:50:40 AM