Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 13
13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
ins af viti og lágmarks virðingu, og
hafi þeir skilning á náttúru þessa
stórmerka eylendis í Norður-Atlants-
hafi þá eiga þeir auðveldara með að
setja sig í spor annarra og ræða af
skynsemi og alúð um þau alvarlegu
vandamál sem steðja að móður jörð
og íbúum hennar – og eru sameigin-
leg hagsmunamál allra jarðarbúa,
manna sem málleysingja. Í stað sér-
hagsmunapots og hins séríslenska
skæklatogs.
Og hér getur veglegt og voldugt
náttúrusögusafn haft örlagahlutverk.
Náttúrusögusafn er einskonar
heimilisgarður sem sáð er í – ekki
aðeins til að varðveita, heldur líka
til að uppskera – á sama hátt og við
höfum uppskorið kunnáttuleysi og
vanmátt á undanförnum áratugum
vegna þess að náttúrumenntun í
landinu er bágborin, en í þá grunn-
menntun vantar ekki aðeins þekk-
ingu og skilning heldur líka metnað
og virðingu.
Okkur ber skylda til að gera
betur en að endurlífga gamla Nátt-
úrugripasafn Íslands og það er
örugglega ætlun allra sem lengi
hafa unnið að nýju safni og hvatt
stjórnvöld til dáða. Náttúrumunir
eru afar mikilvæg rannsóknagögn
í bráð og lengd en þeir eru aðeins
brot af heildarmynd sem þarf í
áhugavert menningarsafn. Þannig
vil ég aðgreina rannsóknasafn og
menningarsafn undir sama þaki.
Og þótt ég leggi hér höfuðáherslu
á menningarsafn þá geri ég rann-
sóknasafni hátt undir höfði, því mik-
ilvægi þess verður aldrei ofmetið. En
ég vil sjá nýtt menningarsafn sem er
svo áhugavert að flestir Íslendingar
beri hlýhug til þess, heimsæki það
eins og vin, öðlist nýja sýn á land
og þjóð við hverja heimsókn, ekki
til að berja sér á brjóst heldur til
að eflast af þekkingu, skilningi og
vitund – og þá kemur virðingin, hin
holla sambúð við náttúru og nátt-
úruminjar landsins. Þá öðlast nátt-
úruvernd sinn jákvæða sess á ný og
verndun heilda verður markvissari,
beinist að heildum í stað bletta eða
flatarmáls.
Þegar upp er staðið finnst mér
náttúrusögusafn ekki vera rétt heiti
þótt það sé mun betra og líflegra
en gripasafn eða minjasafn. Ég sé
fyrir mér Íslandssafn – safn sem er
náttúra Íslands í sinni stórbrotnu
mynd, í munum, máli og myndum,
samhengi náttúrufyrirbæra; safn
sem er náttúra og þjóð í einum
pakka; safn sem endurspeglar þjóð-
ina sem í landinu býr, frumleika
hennar, visku og virðingu gagnvart
jörð sem hefur fóstrað hana. Það er
Íslandssafn.
Í mínum huga verður Íslandssafn
að tengjast náttúrufræðistofnunum
landsins og háskólasamfélagi, eink-
um Háskóla Íslands. Á Íslandssafni
eiga líka að vera fyrirlestrar þar
sem lögð er áhersla á samtengingu
fræðigreina við náttúrufræði í stað
þeirrar sundrunar sem enn við-
gengst í skólum.
Og hvernig förum við að? Hvern-
ig byggjum við besta safn sem völ
er á, „á Íslandi á“ líkt og skáldið á
Skagaströnd orti?
„Hér á landi á“
Hjá þjóð sem hefur orðið fyrir efna-
hagslegu hruni má eflaust ætla að
risaverkefni á borð við Íslandssafn
sé henni ofvaxið. Í einni sögu Astrid
Lindgren er söguhetjan lítill, van-
sæll og veikur drengur sem berst við
ofurefli. Hann finnur sárlega fyrir
smæð sinni og stynur af og til: Bara
ef ég væri ekki svona lítill, bara ef
ég væri ekki svona hræddur og van-
máttugur … Og þannig erum við
sem þjóð, lítil, hrædd og vanmáttug
– og samt getum við unnið stórvirki
ef við vöndum okkur við það sem
við kunnum og gerum best. Íslands-
safn verður aðeins byggt af listfengi
og frumleika, af eldmóði, fórnfýsi,
með sögulegum náttúruminjum, af
þekkingu náttúrufræðinga, visku
þeirra og umfram allt samtakamætti
þeirra og þjóðarinnar.
Frumdrættir að hönnun Íslands-
safns hafa þegar verið dregnir, en
eftir er að útfæra þá. Náttúra Ís-
lands hefur lengi varðveitt frum-
gögnin, sem eru að formi og efni til
ævaforn. Í náttúrusögusafni ber að
nýta sér hráefni og listfengi náttúr-
unnar – óþarfi að „finna upp“
hjólið og kúluna, enn einu sinni, og
íslenskur skókassa-arkitektúr hentar
ekki. Arkitektinn, frumkvöðullinn
og hugsuðurinn Buckminster Fuller
fann ekki upp kúluhúsið eins og
oft er fullyrt. Hann vissi að ígulker
höfðu byggt það löngu fyrr, en hann
endurhannaði það sem mannabú-
stað. Þannig vinna þroskaðir og frjó-
ir arkitektar og heppilegasta formið
fyrir Íslandssafn er geislótt í anda
© gpó
80 1-2#loka.indd 13 7/19/10 9:50:52 AM