Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 17
17
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
getur átt sér stað bæði skipulega
og fyrir slysni. Flutningur tegunda
af ásetningi hefur t.d. verið vegna
notkunar í landbúnaði, til ræktunar
og gæludýrahalds, vegna tilrauna til
að auðga lífríkið og til að nota sem
líffræðilegar varnir gegn plágum.
Mikill hluti tegunda hefur þó flust
milli svæða óviljandi með vörum,
kjölfestuvatni skipa og á annan hátt
með ferðum manna.25–27
Lengst af voru skilgreiningar á
framandi og upprunalegum teg-
undum nokkuð á reiki. Í sumum
tilfellum hafa menn miðað við að
tegundir séu upprunalegar á svæði
ef þær voru þar fyrir ákveðin
tímamörk. Í því sambandi hefur
t.d. verið miðað við lok síðasta
jökulskeiðs,28,29 upphaf nýsteinald-
ar fyrir 7–8.000 árum30 eða upphaf
nýlenduvæðingar Evrópumanna.31
Schwartz32 hefur hins vegar bent
á vandamál sem fylgja slíkum
viðmiðum og nú tekur yfirgnæf-
andi meirihluti skilgreininga mið
af þætti manna við dreifingu teg-
unda.33 Það hefur því orðið ofan á
að miða við hvort menn hafi haft
áhrif á útbreiðslu tegundarinn-
ar, óháð tímasetningu. Tegund er
þannig skilgreind sem upprunaleg
á tilteknu svæði ef hún hefur þró-
ast þar eða komist þangað eftir
náttúrulegum leiðum en framandi
ef hún finnst á viðkomandi svæði
fyrir tilstilli mannsins (viljandi eða
óviljandi), óháð því hvenær hún
var flutt þangað.33
Innfluttar tegundir ná stundum
fótfestu í náttúrunni og mynda þar
lífvænlega stofna. Þær verða þó
alls ekki allar ágengar (sjá nánar
síðar). Í bandarískri löggjöf (Execu-
tive Order 13112) er ágeng lífvera
„framandi lífvera sem veldur eða er
líkleg til að valda efnahagslegu eða
umhverfislegu tjóni eða er skaðleg
heilsufari manna“.34 Þar sem oft
getur verið erfitt að meta hvort líf-
vera valdi eða muni valda tjóni vilja
sumir nota annars konar skilgrein-
ingu og miða við útbreiðsluhegðun
tegundarinnar óháð tjóni, þ.e. að
ágeng tegund sé framandi lífvera í
viðkomandi vistkerfi sem sýni mjög
hraða útbreiðsluaukningu.15
Ágengar tegundir eiga það sam-
eiginlegt að stofnar þeirra ganga í
gegnum þrjú skeið þegar þær nema
ný svæði (1. mynd). Skeiðin eru
mislöng eftir líffræði tegundarinnar
og umhverfisaðstæðum:t.d. 14
Tregðufasi. Fyrsta skeiðið felur
í sér innflutning og bólfestu, þar
sem tegundin fetar sín fyrstu skref
í nýjum heimkynnum. Hún finnst
þá í litlum mæli eða mjög staðbund-
ið. Margir stofnar deyja aftur út
á þessu skeiði vegna allee-áhrifa,
þ.e. þátta sem hamla stofnvexti í
litlum stofnum.35,36,37 Þar geta vegið
þungt erfiðleikar tengdir æxlun, svo
sem að finna maka,38,39,40 takmarkað
framboð frjókorna,41 skortur á hjálp-
ardýrum hjá tegundum sem mynda
tímgunarhópa (e. cooperative breeding
groups)42 eða áhrif skyldleikaæxlun-
ar.43,44 Auk þess eru litlir stofnar oft
viðkvæmari fyrir afráni,45 fæðuöflun
getur verið erfiðari46 og líklegra er
að stofninn deyi út vegna tilviljana,
t.d. tímabundinna breytinga á veð-
urfari eða umhverfi.47 Þetta fyrsta
skeið má kalla tregðufasa48 og getur
lengd þess verið mjög breytileg, allt
frá því að vera nánast hverfandi
upp í mörg hundruð ár.49 Ýmislegt
bendir til að tregðufasinn sé styttri
í hitabeltinu en á kaldari svæðum,49
en að jafnaði er tregðufasi hjá ágeng-
um trjá- og runnakenndum plöntum
um 150 ár í Þýskalandi48 en rúm 50
ár á hitabeltissvæðum.50 Meðan á
tregðufasa stendur er ómögulegt
að vita hvort viðkomandi tegund
verði ágeng síðar, en ein af ástæðum
vaxandi vandamála við ágengar teg-
undir á síðustu árum er að margar
framandi tegundir sem ekki hafa
sýnt ágengni áður eru nú að færast
úr tregðufasa í vaxtarfasa.49
Vaxtarfasi. Næsta skeið einkenn-
ist af miklum og örum stofnvexti,
þ.e. bæði fjölgun einstaklinga og
aukinni útbreiðslu.14 Breytingar á
vistfræðilegum, erfðafræðilegum
eða ólífrænum þáttum geta valdið
því að tegund færist skyndilega
yfir í vaxtarfasa.51 Innri og ytri líf-
fræðilegir þættir sem hafa áhrif á
1. mynd. Mismunandi skeið í stofnhegðun ágengrar tegundar eftir
landnám á nýju svæði. – The different post-introduction phases in
population growth characterizing invasive species.t.d. 14
2. mynd. Útbreiðsluaukning ágengrar tegundar getur t.d. verið A)
samfelld eða B) í stökkum. – The spread of invasive species can be
e.g. A) continuous or B) by jump dispersal.23,49
80 1-2#loka.indd 17 7/19/10 9:51:07 AM