Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 20
Náttúrufræðingurinn
20
Hvaða tegundir verða
ágengar?
Áætlað er að nú megi finna a.m.k.
100–550 þúsund tegundir á heims-
vísu sem lifa utan náttúrulegra
heimkynna sinna.8 Reynslan hefur
sýnt að einungis lítill hluti framandi
tegunda verður ágengur en ágengar
tegundir má þó finna innan allra
hópa lífvera.94 Í samantekt alþjóð-
legs sérfræðingahóps um 100 verstu
ágengu tegundir á heimsvísu78 voru
þurrlendisplöntur langflestar (32%),
en á eftir þeim komu þurrlendis-
hryggleysingjar (17%) og spendýr
(14%) (7. mynd). Ef litið er til vís-
indagreina um ágengar tegundir
sem birtust á árunum 1981–2003,
fjölluðu 50,8% þeirra um ágengar
plöntur og 29,5% um ágeng dýr.19
Erfitt getur verið að spá fyrir um
afdrif tegunda sem fluttar eru á ný
svæði. Hins vegar hafa dæmin sýnt
að svo virðist sem u.þ.b. tíunda hver
tegund (5–20%), sem sleppur út í
náttúruna á nýju svæði nái að lifa
þar af og mynda lífvænlegan stofn
og u.þ.b. tíundi hver (5–20%) þess-
ara lífvænlegu stofna verði ágengur.
Þetta hefur stundum verið nefnt
10% reglan.14,95,96 Margar undan-
tekningar eru þó á henni14,97 og virð-
ast hryggdýr, sérstaklega spendýr,
vera mun líklegri en aðrir hópar
lífvera til að verða ágeng, jafnvel
allt að 50%.98,99 Þá hefur verið bent
á að 10% reglan gæti verið afleiða af
tregðufasanum og að raunverulegt
hlutfall verði mun hærra eftir því
sem tíminn líður og tegundir færast
úr honum yfir í vaxtarfasann.97
Vegna neikvæðra afleiðinga
ágengra tegunda og þeirrar stað-
reyndar að einungis hluti framandi
tegunda verður ágengur, hafa marg-
ar rannsóknir reynt að varpa ljósi á
það hvort hægt sé að finna ákveðin
sameiginleg einkenni ágengra teg-
unda56,100–106 en slíkar upplýsing-
ar geta komið að gagni við gerð
áhættumats.
Komið hefur í ljós að það hvort
tegund lifi af í nýju umhverfi og
verði ágeng ræðst af flóknu sam-
spili umhverfis (bæði lífrænna og
ólífrænna þátta) og innri þátta
lífverunnar, sem og því hvernig
innflutningi og dreifingu tegund-
arinnar á nýjum stað er háttað (8.
mynd).12,14,37,107,108 Ef litið er til allra
hópa lífvera í einu virðast helstu
atriði sem hafa forspárgildi um
hvort tegund verði ágeng vera:
a) loftslagi eða búsvæði á nýjum
stað svipar til þess sem finna má
í heimkynnum tegundarinnar, b)
tegundin er ágeng annars stað-
ar og c) innflutningsþrýstingur er
mikill.103,109,110,111 Önnur atriði geta
einnig vegið þungt og má þá helst
nefna skort á óvinum á nýja svæð-
inu,112–116 hversu sérhæfð fram-
andi lífveran og innlendar lífverur
eru,17,66,101,109,110 dreifingargeta líf-
verunnar23 og frjósemi hennar.100
Þegar aðeins er litið til plantna virð-
ast eftirfarandi þættir skipta mestu
máli, og þá hlutfallslega miðað við
þær plöntutegundir sem fyrir eru á
viðkomandi stað: Meiri hæð, meiri
vaxtarhraði, hærri frjósemi, betri
nýting á vatni, köfnunarefni eða
fosfór, meira beitarþol, meiri dreif-
ingargeta, blómgunartími hefst fyrr
eða stendur lengur, meiri ljóstillíf-
unargeta, meiri laufþekja, fræ spíra
fyrr eða við fjölbreyttari aðstæður
og betri lifun kímplantna.100
Eru sum vistkerfi líklegri
en önnur til að verða
fyrir innrás?
Reynslan hefur sýnt að öll vistkerfi
geta orðið fyrir innrás ágengrar teg-
undar.14,49 Hins vegar virðast sum
svæði hafa orðið verr úti en önnur.
Eyjar hýsa oft fleiri ágengar teg-
undir en meginlönd, tempruð svæði
fleiri en hitabeltið, votlend svæði
fleiri en þurrlend og nýi heimurinn
fleiri en sá gamli.49
Settar hafa verið fram tilgátur
um að tegundasnauð vistkerfi veiti
litla mótstöðu gegn innrásarteg-
undum. Tegundarík vistkerfi ættu
þá að veita meira viðnám og verða
síður fyrir innrás.117 Komið hefur í
ljós að sú virðist almennt ekki vera
raunin nema skoðuð séu mjög lítil
svæði, þ.e. minni en 10 fermetrar118
eða við tilraunaaðstæður.119 Til-
hneigingin virðist aftur á móti vera
þveröfug, þ.e. að jákvætt samband
sé almennt að finna á milli fjölda
upprunalegra og framandi tegunda
á tilteknu svæði. Hefur þetta verið
skýrt með því að svæði sem eru teg-
undarík séu það vegna hagstæðra
umhverfisskilyrða, svo sem með
tilliti til hitastigs, framboðs vatns
og næringarefna, sem jafnframt eru
7. mynd. Skipting 100 verstu ágengu tegunda heims í hópa lífvera. Við val á tegundum
var m.a. litið til áhrifa þeirra á líffræðilega fjölbreytni eða líf manna. Þá var einungis
valin að hámarki ein tegund úr hverri ættkvísl. – Division of 100 of the worlds’s worst
invasive alien species into major groups of organisms. Species were selected with regard
to their impact on biological diversity and human activities. Only one species from each
genus was selected.78
80 1-2#loka.indd 20 7/19/10 9:51:20 AM