Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 21
21 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags þá hagstæð fyrir margar framandi tegundir.14,15,49,97,107,109,118,120 Þótt tegundafjöldi einn og sér virðist ekki vera beinn áhrifavaldur um hvort vistkerfi sé móttækilegt fyrir innrás, gæti gerð og samsetning samfélags hins vegar haft mikið um það að segja hvort framandi tegund nær fótfestu. Þannig getur tilvist tegunda sem greiða fyrir afkomu framandi tegundar, svokallaðar hjálpartegundir (e. facilitators) á borð við rótarsveppi og frjó- og fræbera, skipt miklu máli fyrir afdrif henn- ar.107,121 Hugsanlega eru vistkerfi sem innihalda sérhæfða afræningja og sjúkdómavalda (sem leggjast því ekki á hina nýju tegund) en jafn- framt ósérhæfðar hjálpartegundir móttækilegri fyrir innrás. Aftur á móti væru vistkerfi með ósérhæfða afræningja og sjúkdómavalda en sérhæfðar hjálpartegundir síður móttækileg (9. mynd).15,17,122 Líklegasta skýringin á því að fleiri framandi tegundir eru á sum- um svæðum en öðrum virðist vera aukinn innflutningsþrýstingur, þ.e. fleiri tegundir hafa verið fluttar þangað beint eða óbeint vegna athafna og umferðar manna um svæðið.14,49,109,118 Þessu til stuðnings hefur t.d. verið bent á að þótt eyjar þeki aðeins 3% íslausra þurrlendis- svæða123 hafa um 70% af innflutn- ingi fugla verið til eyja. Þegar tillit hefur verið tekið til þess er enginn munur á eyjum og meginlöndum hvað varðar móttækileika þeirra.109 Þá er fjöldi framandi tegunda á verndarsvæðum í réttu hlutfalli við fjölda gesta124 og röskun.125 Fleiri dæmi eru um að fjöldi framandi teg- unda sé í réttu hlutfalli við röskun svæðis frekar en gerð vistkerfis- ins126, en erfitt er að greina hvort örsökin sé röskunin sjálf eða meiri innflutningur framandi tegunda vegna þeirrar auknu umferðar manna sem var um svæðið við eða eftir röskunina.14,107,127 Sennilega er óraunhæft að skilja að einkenni ágengrar tegundar og einkenni vistkerfa þegar leitað er skýringa á eða reynt að spá fyrir um tilvist framandi eða ágengra tegunda í náttúrulegum vistkerfum. Hvert tilfelli er einstakt128 og ræðst framtíð hinnar framandi tegundar alltaf af flóknu samspili margra þátta tegundarinnar, vistkerfisins og mannsins.15,103,129 Viðbrögð Þegar vart verður við ágenga teg- und í náttúrunni er nauðsynlegt að grípa til skjótra aðgerða, svo sem útrýmingar eða stofnstærðarstjórn- unar, til að bæði kostnaður við aðgerðir og tjón á lífríki verði sem minnst.52,54,94,130–134 Oft má útrýma tegundum fljótt og örugglega á fyrstu stigum útbreiðslu þeirra án þess að hafa mikla þekkingu á líf- fræði tegundarinnar. Sé beðið með aðgerðir glatast þetta tækifæri og líklegra að víðtæka þekkingu þurfi á stofninum til að aðgerðir skili árangri.131 Ef líkur eru á að tegund verði ágeng eiga ófullnægjandi upp- lýsingar ekki að koma í veg fyrir að gripið sé til aðgerða.131 Ef það er ekki gert tiltölulega fljótt er hætta á að neikvæð áhrif hinnar ágengu 8. mynd. Flókið samspil ytri (y-ás) og innri (x-ás) þátta framandi tegundar í nýjum heim- kynnum hefur áhrif á ágengni hennar. – A complex interaction of outer and inner factors influence the invasiveness of alien species.Sameinað úr 14,23,101,105,112,114,118,156–159 9. mynd. Vistkerfi kunna að vera misjafnlega móttækileg fyrir innrás ágengra tegunda eftir því hversu mikil sérhæfing er hjá hjálpartegundum (vinum) annars vegar og afræn- ingjum eða sjúkdómsvöldum (óvinum) hins vegar. Mjög sérhæfðar hjálpartegundir eru ólíklegar til að hjálpa nýrri framandi tegund og sérhæfðir afræningjar eða sjúkdómsvald- ar ólíklegir til að leggjast á hana. – The invasibility of individual ecosystems may depend on different degrees of specialization of facilitators and mutualists vs. predators and pathogens. Very specialized facilitators are unlikely to assist a new alien species, and specialized predators are unlikely to prey on it.15,17,122 80 1-2#loka.indd 21 7/19/10 9:51:25 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.