Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 29
29
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Indlandshaf) og í Austur-Indlands-
hafi (Ástralía); þar eru veiddar 29
tegundir sæbjúgna og aflinn 2.000–
2.500 tonn á ári.14 Fjórða svæðið er í
Rómönsku Ameríku (Mexíkó, Mið-
og Suður-Ameríka) og í Karíbahafi
(Jamaíka, Haítí og Kúba) þar sem
nýttar eru 11 tegundir en aflinn er
undir 1.000 tonnum á ári.15 Veiðar á
fimmta svæðinu, þ.e. á norðurhveli,
í norðanverðu Norður-Atlantshafi
og í Norður-Kyrrahafi (Kanada,
Ísland, Rússland, Bandaríkin), eiga
sér stutta sögu og hófust fyrst að
nokkru ráði fyrir örfáum áratugum.
Á þessu veiðisvæði eru veiddar
fjórar sæbjúgnategundir og er
heildaraflinn um 9.000 tonn á ári,
en langmest er veitt af brimbút
í Norður-Atlantshafi.16 Ekki eru
sæbjúgu víða ræktuð til manneldis
í heiminum og er Kína eina landið
sem ræktar sæbjúgu í einhverjum
mæli, eða um það bil 10.000 tonn á
ári miðað við þurrvigt.11
Asíubúar neyta mest af sæbjúgum
og hefur svo verið í margar aldir,
þar sem bjúgun eru aðallega nýtt
til matar og lyfjagerðar. Í flestum
tilfellum er það aðeins skrápur sæ-
bjúgnanna sem nýttur er til mat-
ar, en hann inniheldur aðallega
bandvef en lítið af vöðvum. Vatns-
innihald skrápsins er breytilegt eftir
árstíma en er alltaf nokkuð mikið
og orkuinnihaldið lítið. Algeng-
asta afurðin eru þurrkuð sæbjúgu.
Fyrir þurrkun eru sæbjúgun soðin,
við það þykknar skrápurinn. Fyrir
neyslu eru sæbjúgun svo bleytt upp
aftur, við það mýkjast þau og eru
sneidd í strimla sem eru notaðir í
ýmsa rétti. Langvöðvar sæbjúgans,
sem eru í skrápnum, eru bragðgóðir
og hafa verið nýttir á Vesturlöndum
til matar. Í Bandaríkjunum er á
markaði fæðubótarefni unnið úr
sæbjúgum sem talið er að hafi áhrif
á gigtarsjúkdóma. Sæbjúgu eru
einnig nýtt í dýrafóður og áburð.17
Í Rússlandi eru sæbjúgu nýtt til
manneldis en einnig í lyfja- og
snyrtivöruframleiðslu.18
Brimbútur
Lýsing
Ein stærsta sæbjúgnategundin hér
við land, og sú eina sem er nýtt,
er brimbútur (C. frondosa) sem er
brúnleitur, gráleitur eða dimm-
fjólublár að lit (1. mynd) en í undan-
tekningartilfellum rjómagulur eða
föl-appelsínugulur, sérstaklega ung
dýr. Brimbútur tilheyrir Dendro-
chirotida-ættbálknum og er eina
sæbjúgnategundin af þeim ættbálki
sem nýtt er til manneldis í einhverj-
um mæli í heiminum.
Fullorðin dýr geta orðið allt að
50 cm að lengd en algengt er að
stærstu dýr séu um 35 cm og er
þeirri stærð yfirleitt náð við um 10
ára aldur.4,19 Erfitt er að lengdar-
mæla dýrin þar sem lögun þeirra
getur verið mismunandi, en oftast
eru þau sívöl og mjókka til end-
anna, sem oft sveigjast upp á við.
Við áreiti draga dýrin sig saman og
verða nær hnöttótt.
Brimbútur heldur sig mest kyrr
á sama stað. Á dökkum sívölum
búknum hefur hann fimm tvöfaldar
raðir appelsínugulra sogfóta sem
hann notar til að festa sig við botn-
inn. Hann getur einnig notað þá til
að færa sig úr stað og þannig geta
dýrin ferðast með 20 til 30 m hraða
á klst. eftir botninum.20
Brimbútur er síari og hefur 10
fíngerða, slímkennda og marggrein-
ótta munnarma sem hann notar
við fæðuöflun. Með þeim grípur
hann svif, egg, lirfur og lífrænar
agnir sem rekur í sjónum. Fæðuagn-
irnar festast við armana og dýrið
stingur síðan einum armi í einu í
munn sér og hreinsar fæðuna af
þeim (2. mynd).21
Dýrin eru sérkynja, hafa ytri
frjóvgun og vaxa hægt. Engar at-
huganir hafa verið gerðar á líffræði
sæbjúgna hér við land, en sam-
kvæmt kanadískum rannsóknum
er kynþroska náð við um það bil
3–4 ára aldur og 8–10 cm lengd.19
Brimbútur hrygnir oftast að vori
en þó er það nokkuð mismunandi
eftir svæðum. Í Kanada á hrygn-
ing sér stað frá febrúar til júní22,23
og eru lirfurnar sviflægar í 40–50
daga áður en þær setjast á botn.19
Við austurströnd Bandaríkjanna er
aðalhrygningin í mars24 og einnig
er hrygning í apríl og maí.20 Talið
er að þessi ólíki hrygningartími
tengist mismunandi hita í sjó og
dýpi.24 Við Norður-Noreg hrygnir
brimbútur frá apríl til maí25 og við
Barentshafsströnd Rússlands frá
febrúar til apríl.26
2. mynd. Umhverfis munn brimbútsins eru marggreinóttir munnarmar. Einn armurinn
er uppi í dýrinu. Þannig hreinsar sæbjúgað fæðuagnir af örmunum. – When feeding the
seacucumber (Cucumaria frondosa) inserts one feeding tentacle at the time to clean of
food particles. Ljósm./Photo: Karl Gunnarsson.
80 1-2#loka.indd 29 7/19/10 9:51:35 AM