Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 38
Náttúrufræðingurinn
38
rjúpum sem veiddar voru á veiði-
tíma (15. október til 22. desember)
1994 og 1995.21 Samkvæmt þessum
gögnum er um þriðjungur rjúpna
hér á landi smitaður af C. caudinflata
á haustmánuðum.
Smit af völdum C. caudinflata
er meira að haustinu og fram eftir
vetri en á öðrum árstímum. Þetta
mynstur tengist líklega flóknum
lífsferli tegundarinnar.30,38,39 Eftir
að eggin berast út í umhverfið með
rjúpnaskít geta þau lifað í marga
mánuði. Lirfuþroski á sér einungis
stað inni í eggjum sem ná að berast
inn í meltingarveg ánamaðka, en
fjölmargar tegundir ánamaðka eru
þekktir millihýslar tegundarinnar.38
Í ánamaðki tekur þroskaferill lirf-
unnar um þrjár vikur og á þessum
tíma þroskast inni í egginu smithæf
þriðja stigs lirfa. Éti rjúpa ánamaðk
með smithæfri lirfu heldur þroska-
ferill lirfunnar áfram í görnum rjúp-
unnar og ormarnir ná kynþroska
á nokkrum vikum. Fullþroskaðir
makast ormarnir og kvendýrin fara
að verpa eggjum. Fullþroska ormar
eru langlífir og geta lifað allt upp
í 10 mánuði.39 Það er við því að
búast að mest beri á smiti í stofn-
inum að hausti og fram á vetur
þegar haft er í huga að aðgengi
rjúpna að ánamöðkum er að mestu
takmarkað við hlýrri mánuði ársins
(maí til september), að smitferillinn
tekur skemmst einn til tvo mánuði
og að ormarnir hafa takmarkaðan
líftíma. Þegar líður á vetur fækk-
ar smituðum fuglum í stofninum,
væntanlega einkum vegna affalla
ormanna og minnkaðra möguleika
fuglanna á endursmiti.
Vísbendingar eru um að smit C.
caudinflata hafi verið tíðara í rjúpum
á Íslandi á þriðja áratug síðustu
aldar. Rjúpur voru á þessum árum
útflutningsvara frá Íslandi og rjúpna-
stofninn miklum mun stærri en ver-
ið hefur síðustu áratugi.40 Norski
sníkjudýrafræðingurinn Huus8 gerir
að umtalsefni í ritgerð sinni magra
rjúpu sem kjötkaupmaður í Bergen
hafði keypt frá Íslandi í febrúar
1926 og fært honum til rannsóknar.
Sú var með mikinn fjölda þessa
þráðorms (þá nefndur C. longicollis).
Smittíðni %
– Prevalence % n 95% c.l.
Meðalsmitmagn
– Mean intensity n 95% c.l.
Apríl 20 30 9–38 240 6 70–590
Maí 7 30 1–21 1.715 2 –
Júní 5 19 0–26 550 1 –
Júlí 11 18 2–33 2.365 2 –
Ágúst 10 30 3–26 4.443 3 150–1.288
September 7 31 1–21 3.240 2 –
Október 27 33 15–45 37.039 9 2.309–98.730
Nóvember 13 30 5–30 1.073 4 280–2.268
Desember 4 28 0–17 150 1 –
Janúar 11 18 2–33 890 2 –
Febrúar 11 18 2–33 80 2 –
Mars 3 30 0–18 450 1 –
Samtals 11 315 8−15 10.572 35 1.743–31.442
2. tafla. Árstíðabreytingar á smittíðni og meðalsmitmagni (þolhjúpar í g saurs) ásamt
sýnastærð (n) og 95% öryggismörkum (ö.m.) hnísilsins Eimeria rjupa. Byggt á taln-
ingum í rjúpnasaur sem safnað var á Suðvesturlandi frá apríl 2007 til og með mars 2008
og norður í Hrísey í mars 2008. – Seasonal changes in prevalence and intensity of infec-
tion (oocysts per g faeces), sample size (n) and 95% confidence interval (c.i.) for
Eimeria rjupa. Based on counts in Rock Ptarmigan faecal samples collected in SW-
Iceland from April 2007 through March 2008 and in Hrísey, N-Iceland in March 2008.
Smittíðni %
– Prevalence % n 95% c.l.
Meðalsmitmagn
– Mean intensity n 95% c.l.
Apríl 7 30 1–21 125 2 –
Maí 7 30 1–21 75 2 –
Júní 5 19 3–26 25 1 –
Júlí 11 18 2–33 88 2 –
Ágúst 3 30 2–18 75 1 –
September 3 31 2–17 50 1 –
Október 30 33 16–48 70 10 38–100
Nóvember 13 30 5–30 88 4 25–150
Desember 14 28 5–32 88 4 31–131
Janúar 28 18 12–53 75 5 25–165
Febrúar 0 18 – 0 0 –
Mars 10 30 3–26 33 3 25–42
Samtals 11 315 8−15 74 35 55−99
3. tafla. Árstíðabreytingar á smittíðni og meðalsmitmagni (egg í g saurs) ásamt sýnastærð
(n) og 95% öryggismörkum (ö.m.) þráðormsins Capillaria caudinflata. Byggt á talningum
í rjúpnasaur sem safnað var á Suðvesturlandi frá apríl 2007 til og með mars 2008 og
norður í Hrísey í mars 2008. – Seasonal changes in prevalence and intensity of infection
(eggs per g faeces), sample size (n) and 95% confidence interval (c.i.) for the nematode Cap-
illaria caudinflata. Based on counts in Rock Ptarmigan faecal samples collected in SW-
Iceland from April 2007 through March 2008 and in Hrísey, N-Iceland in March 2008.
smittíðnin (30%) svipuð þeirri sem
mældist við rannsóknir á rjúpum í
október 2006 í Þingeyjarsýslu (33%).29
Svipuð smittíðni (34%) greindist í 93
marktækt hærri frá október til mars
en á öðrum tímum árs. Sé einvörð-
ungu litið til niðurstaðnanna frá
október 2007 á Suðvesturlandi var
80 1-2#loka.indd 38 7/19/10 9:51:57 AM