Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 42

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 42
Náttúrufræðingurinn 42 fræðilegra þátta. Auk hinnar vist- fræðilegu vatnaflokkunar Arnþórs hefur verið gerð vatnafarsleg flokk- un á íslenskum vatnakerfum17og íslensk stöðuvötn hafa einnig verið flokkuð m.t.t. stærðar, dýpis og lög- unar vatnsskálar.18 Í þessari grein er fjallað um kísilþörunga í botnseti íslenskra stöðuvatna og byggt á gögnum í rannsóknaverkefninu Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna.12,14,15,16 Mark- miðið er í fyrsta lagi að varpa ljósi á kísilþörungaflóru í stöðuvötnum á landinu, en rannsóknir á því sviði eru teljandi á fingrum annarrar handar. Öðrum þræði er markmiðið að athuga tengsl kísilþörungaflór- unnar við ýmsar umhverfisbreyt- ur, þ.m.t. að kanna samsvörun við vatnaflokka Arnþórs. Þetta er gert í því skyni m.a. að átta sig betur á þeim þáttum í umhverfi vatnanna sem helst hafa áhrif á samfélagsgerð kísilþörunga, en kísilþörungar eru oftar en ekki undirstaðan í frum- framleiðslu vatnavistkerfa á norður- slóð og ráða miklu um sýrustig og búskap súrefnis og koltvíildis.19,20 Greinin sem hér er rituð í Nátt- úrufræðinginn er byggð á nýlegri enskri tímaritsgrein,21 en sú grein grundvallast á doktorsverkefni kanadíska líffræðingsins Tammy Lynn Karst-Riddoch,22,23 sem vann með kísilþörungasýni frá Íslandi úr fyrrnefndri Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna. Doktorsverkefni Tammy Lynn var unnið við Queens- háskólann í Kingston, Ontario, Kan- ada, og umsjónarmaður hennar var John P. Smol prófessor – einn helsti sérfræðingur á sviði ferskvatnsþör- unga og fornsögu vatna. Sitthvað um kísilþörunga Kísilþörungar (Bacillariophyta eða Diatomea) eru ein af nokkrum fylk- ingum þörunga og sú tegundarík- asta. Líklega er heildarfjöldi teg- unda um tíu þúsund og tilheyra þær um 250 ættkvíslum.24 Meirihluti tegunda þrífst í ferskvatni, jafnt í straum- og stöðuvatni sem hvers konar raklendi á landi.25 Kísilþörungarnir eru frumbjarga einfrumungar og koma fyrir sem stakar frumur eða fleiri saman í hring- eða staflaga keðjum. Nafn sitt draga þörungarnir af tvískiptri, kísilríkri skel sem myndar einskonar samloku, með botni og loki utan um hverja frumu. Flestir kísilþörungar eru agnarsmáir, yfirleitt 0,01–0,05 mm á lengd, en þrátt fyrir smæðina eru þeir afar fjölbreytilegir að lögun og margvíslega skreyttir með götum, raufum og rákum (1. og 2. mynd). Skeljarnar eru gagnsæjar og kísil- þörungarnir daufir á litinn, fölgulir eða ljósbrúnir. Þeir fjölga sér oftast með kynlausri skiptingu og við hverja skiptingu minnka skeljarnar. Við öra skiptingu, t.d. þegar vaxtar- skilyrði eru hagstæð, getur stærð einstaklinga sömu tegundar verið mjög breytileg. Búsvæði kísilþörunga í stöðu- vötnum eru býsna fjölbreytileg. Flestar tegundir kísilþörunga eru botnlægar og eru sumar þeirra botn- fastar, t.d. tegundir sem tilheyra ætt- kvíslum stilkeskja (Gomphonema) og skakkeskja (Rhoicosphenia), en aðrar geta fært sig um set af eigin ramm- leik, t.d. tegundir af ættkvíslum nafeskja (Navicula) og stokkeskja (Pinnularia). Enn aðrar tegundir, t.d. á meðal ættkvísla lúseskja (Epithemia) og flateskja (Cocconeis), eru svokallaðar ásætur sem sitja og vaxa á gróðri, einkum háplöntum og mosa. Sviflægir kísilþörungar þrífast best úti í vatnsbolnum þar sem þeir haldast á floti fyrir til- stilli uppdrifs og ölduhreyfinga. Á norðlægum slóðum eru sviflægir kísilþörungar oft uppistaðan í frum- framleiðslu djúpra stöðuvatna og þá gjarnan með tvö blómaskeið, að vori og aftur um haust þegar styrkur næringarefna og kísils er hvað mest- ur. Á meðal algengra sviflægra kís- ilþörunga má nefna ættkvíslir eins og stjarneski (Asterionella), sáldeski (Aulacoseira) og dóseski (Cyclotella). Við dauða kísilþörunga safn- ast skeljarnar fyrir á botni vatna og vegna varanleika skeljanna, sem stafar af kíslinum (Si), getur í 2. mynd. Rafeindasmásjármyndir af kísilþörungum. a) Tvær heilar samlokur af sporeski (Diploneis-tegund) og b) ein heil samloka af belteski (Melosira varians). – Scanning electron micrographs of diatoms. a) Two whole pennate frustules of Diploneis sp. and b) one frustule of the centric Melosira varians. Ljósm./Photo: Mary Ann Tiffany, San Diego State University. a) b) 10 µm 10 µm 80 1-2#loka.indd 42 7/19/10 9:52:03 AM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.