Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 44
Náttúrufræðingurinn
44
vötn. Nokkur vötn hafa síðan bæst
við og í dag samanstendur gagna-
grunnur verkefnisins af upplýs-
ingum um rúmlega 80 vötn. Við val
á vötnum hefur verið gengið út frá
gerð berggrunns á vatnasviði, jarð-
sögulegri myndun vatnsskálanna,
meðaldýpi og hæð yfir sjávarmáli.
Áhersla hefur verið lögð á ferskvötn,
en strandvötn og jökulvötn hafa
einnig verið rannsökuð.
Í rannsókninni sem hér um ræðir
er fengist við kísilþörunga í botn-
seti 49 stöðuvatna sem rannsökuð
voru á árunum 1992–1998 (3. mynd,
viðauki 1). Sýnataka fór fram á
tímabilinu frá síðla júlí og fram í
miðjan september og var ávallt fylgt
staðlaðri aðferð við sýnatökurnar.
Kísilþörungasýnin voru tekin með
svokölluðu kajakröri (4. mynd). Eitt
sýni var tekið á dýpsta stað í hverju
vatni. Hirt var efsta setlagið, 1–2 cm
á þykkt, í hverju sýni og því komið
fyrir án varðveisluvökva í brúnni
glerflösku með skrúfuðum tappa.
Sýnin voru geymd í myrkvuðu her-
bergi þar til vinna við greiningu á
kísilþörungunum hófst.
Tengsl kísilþörungaflórunnar við
umhverfisþætti voru könnuð gagn-
vart þremur flokkunarfræðilegum
breytum og 20 eðlis- og efnafræði-
legum breytum. Flokkunarfræði-
legu breyturnar þrjár voru; 1) stað-
setning vatns m.t.t. landshluta, 2)
gerð berggrunns á vatnasviði og 3)
vistfræðileg gerð vatns samkvæmt
vatnaflokkun Arnþórs.2
Staðsetningu vatna (LOC) var
skipt í sjö landshluta, þ.e. NV-,
NA-, A-, S-, SV-, V-land og Vestfirði
(viðauki 1). Gerð berggrunns á
vatnasviði (BED) var skipt í fjóra
flokka og stuðst við verk Hauks Jó-
hannessonar og Kristjáns Sæmunds-
sonar,45 (3. mynd, viðauki 1). Vist-
fræðilegu vatnaflokkarnir voru sex
talsins, þ.e. lindavötn, heiðavötn,
dragavötn, dalavötn, jökulvötn og
strandvötn (viðauki 1). Hafa verður
í huga að þessi flokkun er í raun
ekki klippt og skorin og að sum
vötn geta flokkast sem blönduð, en
sjaldnast þó sem blanda af fleiri
vatnaflokkum en tveimur. Gott
dæmi eru Svartárvatn og Vífils-
staðavatn, sem voru flokkuð sem
heiðavötn en gætu átt heima í flokki
lindavatna þar sem sterkra linda-
vatnsáhrifa gætir í þeim. Annað
dæmi er Apavatn, sem var flokkað
sem lindavatn en í því gætir einnig
dragavatnsáhrifa. Þá var Másvatn
flokkað til heiðavatna en mætti
einnig skilgreina sem blöndu af
heiða-, dala- og dragavatni.
Vatnshiti, sýrustig og rafleiðni
voru mæld á kajaksýnastöð í hverju
vatni á 40–150 cm dýpi. Á sama
stað var tekið eitt vatnssýni til
efnagreiningar í 1,0 lítra plastflösku
á 20–40 cm dýpi undir vatnsborði.
Plastflöskurnar voru stútfylltar af
vatni, þeim lokað og geymdar í
kælikassa í 1–4 klst. og þá í frysti
við -20°C þar til kom að greiningu.
Fyrir sýnatökuna voru flöskurnar
skolaðar með 0,1 N HCl og loks með
vatni á staðnum. Efnagreiningar á
vatnssýnunum fóru fram á ósíuðum
sýnum hjá Norsk institutt for vann-
forskning (NIVA) í Osló. Upplýs-
ingar um flatarmál vatna og hæð
yfir sjávarmáli, meðaldýpi og mesta
dýpi eru fengnar með eigin mæl-
ingum og upplýsingum frá Hákoni
Aðalsteinssyni o.fl.46
Eftirfarandi 20 eðlis- og efnafræði-
breytur voru kannaðar í tengslum
við kísilþörungana: hæð yfir sjó (ALT,
m), flatarmál (AREA, km2), meðal-
dýpi (MD, m), hámarksdýpi (Zmax,
m), rúmmál (VOL, Gl), vatnshiti
1. tafla. Algengar tegundir kísilþörunga í
stöðuvötnunum 49 sem voru rannsökuð.
Númer vísar til auðkennistölu tegundar.
Fjöldi vatna (Fjöldi), hlutfallslegur fjöldi
vatna (% Fjöldi) og hlutfallslegt hámarks-
magn tegundar í vatni (% Magn). Dálkur
merktur Ný tegund gefur til kynna að teg-
undin hafi ekki fundist áður á Íslandi. –
Common diatom taxa in the 49 Icelandic
lakes and their actual (# Occ), relative (%
Occ) and maximum relative abundances (%
Max). Also denoted are species recorded for
the first time in Iceland (New). No. refers to
an id number for a species.
3. mynd. Staðsetning stöðuvatnanna 49 sem rannsökuð voru með hliðsjón af fjórum helstu
gerðum berggrunns á landinu: A) basísk og ísúr hraun frá nútíma (< tíu þúsund ára), B)
basísk og ísúr hraunlög (grágrýti) og móberg frá síðari hluta ísaldar (0,01–0,8 milljón ára),
C) basískt og ísúrt gosberg og setlög frá síðplíósen og fyrri hluta ísaldar (0,8–3,3 milljón
ára) og D) eru basískt og ísúrt gosberg frá síðtertíer (> 3,3 milljón ára). Númer vísa til
heita vatna í viðauka 1. – Location of the 49 lakes analysed and zonation of four major
bedrock classes in Iceland. Numbers refer to lake names provided in Appendix 1.
80 1-2#loka.indd 44 7/19/10 9:52:11 AM