Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 52

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 52
Náttúrufræðingurinn 52 kísilþörungaflóru landsins eins og hún hefur verið skráð í hvers kyns rak- og votlendi, stöðuvötnum og straumvötnum.28 Í kísilþörungaflórunni voru bæði svif- og botnlægar þörungategundir áberandi, enda var dýpi vatnanna í úrtakinu býsna mismunandi og því til staðar búsvæði fyrir þörunga bæði á strandgrunni og í vatnsbol. Hin smágerðu botnlægu Fragilaria- gjarðeski, einkum F. brevistriata, F. construens, F. construens var. venter, F. pinnata og F. pseudoconstruens, má þó kalla nokkurskonar einkennishóp í kísilþörungaflóru vatnanna, enda voru gjarðeskin yfirleitt ríkjandi í flórunni. Þetta stafar líklegast af því hve lífsskilyrði í vötnunum almennt eru köld, en hæfni þessara gjarðeskja til að lifa af og fjölga sér við kaldar og birtusnauðar kringumstæður er vel þekkt.50,51,52,60,61,62 Líkt og í öðrum grunnum vötn- um á norðlægum slóðum voru sviflægir kísilþörungar fágætir í grunnu vötnunum íslensku. Í vötn- um með meðaldýpi um og undir 5 m voru þeir oft ekki til staðar. Meira að segja í allmörgum djúpum vötnum var hlutdeild sviflægra kís- ilþörunga óvenju lítil, þ.e. minni en 50% af fjölda. Einungis í dýpstu dalavötnunum, með meðaldýpi meira en 25 m, náðu eindregnar sviflægar tegundir sér á strik með meira en 50% hlutdeild af fjölda. Þessi rýri þáttur sviflægra tegunda í íslensku kísilþörungaflórunni kann að eiga sér eðlisfræðilegar skýr- ingar. Hér er vísað til þess að marg- ar sviflægar kísilþörungategundir þurfa á lagskiptu vatni að halda m.t.t. hitastigs til að haldast á floti, ella sökkva þær til botns og drepast. Vandamálið er aftur á móti að skörp hitaskil virðast almennt ekki mynd- ast í íslenskum stöðuvötnum, og þá sjaldan það gerist eru þau bæði veik og skammvinn.42,46,53 Þetta er rakið til megineinkenna í íslensku landslagi, sem eru m.a. skógleysi og auðnir sem hafa í för með sér sterk áhrif vinda og þ.a.l. skilvirka vatnsblöndun. Önnur skýring á skorti á sviflægum kísilþörungum í grunnum vötnum er sú að dýpi í þeim er einfaldlega ekki nægjanlegt og nauðsynleg eðlisfræðileg skil- yrði því ekki fyrir hendi. Ástæðan fyrir því að sviflæg- ar kísilþörungategundir eru meira áberandi í djúpum dalavötnum en öðrum djúpum vötnum kann að tengjast lögun vatnsskálarinnar, en dalavötnin eru iðulega aðdjúp og dýpka jafnt og þétt frá fjöruborði og niður á mesta botndýpi. Strand- grunnssvæði í dalavötnum eru því lítil um sig miðað við heildar- flatarmál vatnanna. Þetta hefur í för með sér að vaxtarskilyrði fyrir botnlæga kísilþörunga eru að lík- indum takmarkaðri í dalavötnum en öðrum djúpum vötnum þar sem strandgrunnið er hlutfallslega meira um sig af heildarflatarmáli vatns- skálarinnar. Önnur skýring, sem kann að koma hér til varðandi muninn á kís- ilþörungaflóru djúpra vatna, tengist hitastigi eða öllu heldur ísþekju. Í fornlíffræðilegum rannsóknum er aukin hlutdeild sviflægra kísilþör- ungategunda einmitt oft talin til merkis um að ísþekja á stöðuvötn- um fari minnkandi.54,55,56 Þar sem dalavötnin lágu flest hver lægra í landi en önnur djúp vötn í rann- sókninni má gera því skóna að ísþekja í dalavötnunum vari skemur en í öðrum vötnum sem liggja hærra í landi. Lítil hlutdeild sviflægra kísilþör- unga í dýpstu vötnunum tveimur, Lagarfljóti og sér í lagi Langasjó, vekur nokkra athygli. Hvað áhrær- ir Lagarfljót er freistandi í þessu sambandi að benda á mikinn jökul- borinn svifaur í vatninu og léleg birtuskilyrði í kjölfarið, en sviflægir kísilþörungar þurfa venjulega góð birtuskilyrði til að þrífast. Áður en Kárahnjúkavirkjun kom til sög- unnar mældist magn svifaurs í Lag- arfljóti oftast 50–100 mg l-1, en eftir að virkjunin tók til starfa og Jökulsá á Dal var veitt í Löginn hefur aur- inn aukist enn frekar.43,57,58,59 Fyrir Kárahnjúkavirkjun var sjóndýpi í Leginum í mesta lagi um 40 cm, en til samanburðar má nefna að rýni í Þingvallavatni er yfirleitt á bilinu 6–12 m.46 Fæð sviflægra kísilþör- unga í Leginum má að auki vafalítið skrifa á mikla vatnsblöndun í vatn- inu, en líklega er Lögurinn meira eða minna blandaður frá botni til yfirborðs allt árið um kring.43 Skil- yrði fyrir sviflægar kísilþörungateg- undir eru því vart fyrir hendi í þessu djúpa vatni. Ekki kemur á óvart að hin smágerðu, botnlægu gjarðeski dafni vel við þau erfiðu skilyrði sem ríkja í Leginum, en þessi þör- ungahópur er einmitt kunnur fyrir að ná sér vel á strik í vötnum þar sem birtuskilyrði eru léleg, hvort sem það er vegna langvarandi ís- þekju50,52 eða mikils magns svifaurs og uppleystra efna.60,61,62 Hvað Langasjó varðar ættu birtu- skilyrði fyrir sviflæga kísilþörunga að vera góð því vatnið er tært og rýni í því margir metrar. Ef til vill er skýringa að leita í því hve ungt vistkerfi Langisjór er, en í núverandi mynd, sem blátt og tært stöðuvatn, hefur það aðeins verið til í stuttan tíma, eða u.þ.b. 45 ár (33 ár miðað við sýnatöku árið 1998). Fram til 1965–1966 rann nefnilega stund- um út í Langasjó úr hinu auruga jökulfljóti Skaftá og vatnið varð grátt og skotið svifaur. Hugsanlega er hlutdeild sviflægra kísilþörunga í Langasjó lítil enn í dag vegna þess hve skammur tími er liðinn síðan skilyrði fyrir sviflæga þörunga bötn- uðu í vatninu. Tengsl kísilþörunga og umhverfisþátta Útbreiðsla kísilþörunga í íslensku stöðuvötnunum mótast að verulegu leyti af samspili nokkurra vatna- fræðilegra umhverfisþátta og eru þeir helstir vatnsdýpi og skyld- ir þættir (rýni, lagskipting vatns, gerð og eðli búsvæða o.fl.), vatns- hiti, næringarefni og jónir. Þær sjö umhverfisbreytur sem best útskýrðu mismunandi samsetningu kísilþör- ungaflóru í íslensku vötnunum voru meðaldýpi, rafleiðni, lífrænt kolefni, kísill, köfnunarefni, basavirkni og vatnshiti. Þessi tengsl eru með mjög svip- uðu móti og gerist meðal kísilþör- unga í öðrum vötnum á norðlægum 80 1-2#loka.indd 52 7/19/10 9:52:18 AM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.