Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 53
53 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags slóðum. Helsti munurinn milli stöðuvatna á Íslandi og vatna á meginlöndunum sem eru á svipaðri breiddargráðu felst í því að gróð- urfarsleg atriði, t.a.m. gróðurþekja og samfélagsleg gerð gróðurs á vatnasviðum, hafa miklu meiri áhrif á vatnafræðilega gerð vatnanna erlendis, einkum á þætti sem snerta efnafræði. Á Íslandi er gróður á vatnasviðum í þessu samhengi al- mennt rýr, flóran tegundasnauð og jarðvegur ríkur af fremur ófrjósöm- um og rofgjörnum gosefnum.63,64 Í staðinn ráða jarð- og vatnafræðilegir þættir meiru um vistfræðilega gerð íslenskra stöðuvatna, þ.á m. gerð kísilþörungaflórunnar, og rennir það stoðum undir ágæti vatnaflokk- unar Arnþórs Garðarssonar, sem hann lagði grunn að á sínum tíma þrátt fyrir takmörkuð gögn í vatna- líffræðilegu tilliti.2 Hinum smágerðu botnlægu gjarðeskjum er venjulega lýst sem fremur ósérhæfðum þörungum sem ekki geri miklar kröfur til umhverf- isins. Þessi lýsing byggist á því að gjarðeskin þrífast oft vel við erfiðar aðstæður á norðurheimskautssvæð- inu, í Ölpunum og víðar. Velgengni gjarðeskjanna má aðallega þakka þoli þeirra gagnvart kulda og lít- illi birtu.50,51,52 Vegna þessa hafa breytingar á hlutfallslegum fjölda botnlægra gjarðeskja í rannsóknum á fornlíffræði vatna oft verið túlk- aðar sem vísbendingar um breyt- ingar á umfangi og varanleika á ísþekju vatnanna. Í framangreindu ljósi stinga niðurstöðurnar um gjarðeskin í íslensku stöðuvötn- unum nokkuð í stúf, en í grynnri vötnunum íslensku gætti þeirrar tilhneigingar að hlutdeild gjarð- eskja fór vaxandi eftir því sem skilyrði í vötnunum bötnuðu, þ.e. með aukinni basavirkni, rafleiðni og styrk næringarefna (TN og SiO2). Svipaðar niðurstöður hafa reynd- ar einnig fengist í rannsóknum á vötnum norðarlega í Kanada.65 Niðurstöðurnar frá Íslandi og Kan- ada gefa tilefni til að ætla að um- ræddar breytingar á samsetningu gjarðeskjaþörunga í fornlíffræði- rannsóknum á norðurslóð kunni einnig að endurspegla breytingar í vatnafræðilegum kringumstæðum í tengslum við styrk næringarefna og jóna. Í vötnunum í rannsókninni sem hér um ræðir kom ekki fram neinn skýr munur milli einstakra tegunda og eða tegundahópa hjá botnlægu gjarðeskjunum m.t.t. mældra um- hverfisþátta. En eins og búast mátti við hneigðust þó kulvísu tegundirn- ar tvær F. pinnata og F. construens var. venter til að vera algengari í kaldari vötnunum. Hvað sem þessu líður er meginniðurstaðan sú að smágerðu, botnlægu gjarðeskin teljist almennt fremur ósérhæfð í vistfræðilegu til- liti, en jafnframt að þau séu vel til þess fallin að bjarga sér við kaldr- analegar kringumstæður. Vensl stórra, fjaðurlaga kísilþör- unga við djúp, næringarsnauð vötn, eins og fram komu í rannsókninni, endurspegla líklega gott framboð á grýttum búsvæðum sem henta kröfum slíkra ásætuþörunga. Marg- ir kísilþörungar af þessari gerð, m.a. Diploneis ovalis, Nitzschia sigmoidea, Synedra ulna og Tabelleria flocculosa, hafa einnig verið greindir á grýtt- um botni á strandgrunni Þingvalla- vatns.40,41 Framleiðsla ásætuþörunga á strandgrunninu í Þingvallavatni hefur mælst býsna mikil, eða um 188 g C m-2 á ári, og þar af var hlut- deild kísilþörunga um helmingur.40 Framangreindar upplýsingar um frumframleiðslu í Þingvallavatni og vensl stórgerðra botnlægra kísil- þörunga við djúp vötn benda til þess að kísilþörungaásætur séu sér- staklega mikilvægur hópur í frum- framleiðslu djúpra næringarsnauðra vatna á Íslandi. Kísilþörungaflóran og vatna- flokkar Arnþórs Kísilþörungaflóra vatnaflokkanna sem rannsakaðir voru var töluvert margbreytileg. Flóra lindavatna var frábrugðin flóru draga- og dala- vatna og flóra dala- og heiðavatna var mismunandi. Í hinum næring- arefna- og steinefnaríkari lindavötn- um bar fremur mikið á Fragilaria- gjarðeskjum en lítið á agneskjum (Achnanthes), dóseskjum (Cyclotella) og sáldeskjum (Aulacoseira) miðað við flóruna í hinum næringar- og steinefnasnauðu draga- og dalavötn- um. Þessi munur í kísilþörungaflóru samsvaraði 68% af muninum milli linda- og dragavatna annars vegar og 60% af muninum milli flóru linda- og dalavatna hins vegar (3. tafla). Munurinn á kísilþörungaflóru heiða- og dalavatna var á svipaða lund, þ.e.a.s. að í flóru heiðavatna voru hin smágerðu botnlægu gjarðeski mjög áberandi en hlutdeild agneskja, dóseskja og sáldeskja var tiltölulega lítil miðað við flóru dalavatnanna. Um 60% munarins á flóru heiða- og dalavatna byggðist á ólíkri hlutdeild fjögurra síðastnefndu þörungahópa. Ekki reyndist marktækur munur á flóru heiðavatna annars vegar og linda- og dragavatna hins vegar. Þetta kann að stafa að hluta til af því að vatnafræðileg skilyrði í heiðavötnunum spönnuðu óvenju breitt svið og voru breytilegri en í hinum vatnaflokkunum. Eins og áður er getið virðast vatnafræðilegir þættir heiðavatna ráðast töluvert af landfræðilegri legu þeirra og má skipta þeim í tvo undirflokka með hliðsjón af því, þ.e. heiðavötn á NA- landi annars vegar og hins vegar á N- og NV-landi. Efna- og eðlisþættir heiðavatna í hvorum undirhópi fyr- ir sig voru mismunandi að því leyti að heiðavötn á Norður- og einkum Norðvesturlandi voru heldur nær- ingarefnaríkari og minna basísk en heiðavötn á Norðausturlandi. Kís- ilþörungaflóran í þessum tveimur heiðavatnaflokkum var ólík að því marki að í heiðavötnunum á Norð- austurlandi bar meira á stórgerðum, kísilríkum og botnlægum þörung- um. Í heiðavötnunum á Norður- og Norðvesturlandi voru smágerðir, kísilsnauðir botnþörungar algengari, þ.á m. tegundir meðal gjarðeskja (Fragilaria), agneskja (Achnanthes) og nafeskja (Navicula). Meginniðurstöður rannsókn- arinnar sem hér hefur verið greint frá, að því er varðar þær umhverf- isbreytur sem mestu virðast ráða um mótun kísilþörungaflórunnar í íslensku stöðuvötnunum, eru í 80 1-2#loka.indd 53 7/19/10 9:52:18 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.