Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 54
Náttúrufræðingurinn
54
öllum aðalatriðum samhljóða nið-
urstöðum rannsókna á öðrum mikil-
vægum lífveruhópum í íslenskum
stöðuvötnum og tengslum þeirra
við umhverfisbreytur. Þannig lítur
út fyrir að samfélagsgerð krabba-
dýra í íslenskum stöðuvötnum sé
fyrst og fremst mótuð af dýpi og
stærð vatnanna, vatnshita og nær-
ingarefnum (TOC, TN og SiO2).16,66,67
Þá benda rannsóknir á samfélögum
rykmýs, jafnt í grýttu fjörubelti sem
á leðjukenndum setbotni, einnig til
þess að einkum dýpi sé mótandi
umhverfisbreyta ásamt næring-
arefnum (TN og TP).68,69 Athug-
anir á bleikju benda jafnframt til
þess að stærð og dýpi stöðuvatna
ásamt styrk næringarefna og jóna
(rafleiðni) hafi mótandi áhrif á lífs-
söguþætti fiskanna, þ.m.t. á stærð,
aldur og vaxtarhraða.70,71,72
Sameiginlegt öllum fjórum
framangreindum rannsóknum er
að jarðfræðiþættir á vatnasviðum,
einkum gerð berggrunns m.t.t. ald-
urs, lektar og útleysingar efna, hafa
áhrif á efnabúskap vatnanna og þ.a.l.
á lífríkið. Mikilvægi jarðfræðilegra
þátta í tengslum við yfirborðsáferð
fjörugrjóts og áhrif mismunandi
yfirborðsáferðar á tegundasam-
setningu og magn hryggleysingja í
stöðuvötnum á Íslandi hefur einnig
verið tíundað.15,16 Allt kemur þetta
heim og saman við það sem Arnþór
lagði grunn að með vatnaflokk-
un sinni, þ.e. að vatna- og jarð-
efnafræðilegir þættir ráði miklu um
vistfræði íslenskra vatnakerfa.
Niðurstöður rannsókna á tengsl-
um umhverfisþátta við lífríki í
straumvötnum hníga í sömu átt
og stöðuvötnin. Í stuttu máli sýna
þær rannsóknir að það er einkum
umfang gróðurþekju og útbreiðsla
votlendis og stöðuvatna á vatnasvið-
um ánna sem mestu ræður um sam-
setningu lífríkisins í þeim. Því meiri
sem gróskan er á vatnasviðunum
og því meira sem rennslishættir
ánna eru jafnaðir af votlendi og
stöðuvötnum því fleiri tegundir og
meira magn er af vatnadýrum al-
mennt í ánum.8,9,10,11,59,73,74,75,76 Hinir
undirliggjandi umhverfisþættir eru
sem fyrr efna- og vatnafræðilegir
eiginleikar sem rekja má að verulegu
leyti til jarðfræðilegra atriða, eink-
um gerðar og aldurs berggrunns-
ins.8,10,59,74
Við fyrstu sýn lítur út fyrir að
tengsl umhverfisþátta og lífrík-
is í straumvötnum falli betur að
vatnaflokkun Arnþórs en tengsl
umhverfisþátta og lífríkis í stöðu-
vötnum. Þetta kann að helgast af því
að í vatnaflokkun Arnþórs er meiri
áhersla lögð á atriði sem snerta
rennandi vatn en kyrrt. Þetta kemur
m.a. fram í ítarlegri efnistökum
á efna- og vatnafræðilegum eig-
inleikum í straumvatnakerfunum,
þ.e.a.s. á umhverfisþáttum sem eru
að verulegu leyti af landrænum
toga. Þar sem straumvötn eru yfir-
leitt opnari vistkerfi og meira háð
aðfluttu efni og orku en landlukt,
afmörkuð stöðuvötn, má búast við
að áhrif landrænna þátta séu meiri
í straum- en stöðuvötnum. Orð
Arnþórs á sínum tíma um að það
kunni að orka tvímælis er fram í
sækir að greina ekki á milli straum-
og stöðuvatna í vatnaflokkuninni
virðast því hafa ræst. Til að bæta
flokkun Arnþórs á stöðuvötnum
virðist einkum mega líta nánar til
staðbundinna þátta á borð við lögun,
stærð og dýpi vatnanna, jarðfræði-
leg atriði innan vatnsskálarinnar,
t.d. yfirborðsáferð fjörugrjóts, og
veðurfars næst vötnunum.
Summary
Sedimentary diatoms in
Icelandic lakes
This paper is based on an extensive
publication in English of the results
appearing in 2009.21 The distribution
patterns of surface sediment diatom
assemblages from 49 lakes from the
ESIL project15 were used to explore the
relationship between limnological var-
iables and diatom assemblages as well
as to assess an ecological classification
system for Icelandic freshwaters pro-
posed by Garðarsson.2 Lakes were lim-
nologically diverse ranging from deep,
oligotrophic, ionically dilute lakes to
shallow lakes with a wide range of nu-
trient and ionic contents. Physical con-
ditions (depth, surface area, surface
water temperature), and nutrient and
ion concentrations differed significant-
ly among ecological lake categories
(i.e., plateau, spring-fed, direct-runoff,
valley, glacial, and coastal lakes).
Diatom assemblages were taxonomi-
cally diverse (329 taxa) with strong
representation of planktonic, benthic
and periphytic forms. Small benthic
Fragilaria sensu lato (19 species and va-
rieties) were the most abundant dia-
toms with combined abundances > 20%
in all but four of the lakes, most likely
due to the generally cold lake water
conditions in this subarctic region.
Variation in diatom distributions was
best explained by the combination of
mean depth (influencing littoral ver-
sus planktonic habitats), surface water
temperature, specific conductivity, al-
kalinity, total organic carbon, total ni-
trogen and SiO2. However, these vari-
ables did not explain distribution
patterns amongst small benthic
Fragilaria taxa, although some weak re-
lationships between some taxa and
these variables were evident. Distinct
diatom assemblages and limnological
properties among ecological lake cate-
gories support the classification of
Icelandic freshwaters based on major
topographic, geological and hydrolog-
ical characteristics. More detailed in-
clusion of lake depth along with lake
basin form, local geological features,
as well as more refined categories of
lake water origin and topographical
positioning to better approximate re-
gional climatic conditions, may im-
prove the ecological classification of
Icelandic freshwaters for conservation
and management practices.
80 1-2#loka.indd 54 7/19/10 9:52:19 AM