Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 59
59
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Í flugeldum eru mörg meng-
andi efni, þar á meðal þungmálmar
(e. mineral aerosols), t.d. blý (Pb). Í
Beijing, Kína, er talið að rekja megi
meira en 90% af blýmengun til flug-
eldasýninga.12 Flugeldaskot eru talin
verulega stór hluti af uppsprettu
málmefna (e. metal emissions) enda
þótt þeir séu notaðir aðeins lítinn
hluta ársins.13
Í þessari grein berum við sam-
an niðurstöður mælinga á svifryki
(PM10) kringum áramótin 2005/6,
2006/7 og 2007/8. Þessi áramót voru
veðuraðstæður mjög mismunandi,
logn og rok, stöðug og breytileg
vindátt og samfara því breytilegur
styrkur svifryksmengunar, og á það
jafnt við um hámarksstyrk og styrk
sem fall af tíma.
Almennt um svifryk
Svifryk (e. Particulate Matter, eða
PM) eru smáar agnir sem mældar
eru á svokölluðum PM-skala. Agnir
minni en 10 µm (1 µm = 10-6 m) í
þvermál eru táknaðar með PM10 og
agnir smærri en 2,5 µm með PM2.5
(athugið að PM10 inniheldur PM2.5).
Til samanburðar má nefna að þver-
mál mannshárs er um 60 µm, eins
og sýnt er á 2. mynd. Agnir í
flokknum PM10 eru taldar skaðleg-
ar heilsu manna, þar sem þær geta
2. mynd. Stærð PM10 og PM2.5 svifryks í
samanburði við mannshár. – The size of
PM10 and PM2.5 compared to the diameter
of a human hair strand.
Lýsing á
loftgæðum Styrkur PM10 (µg/m
3) Heilsufarsáhrif tengd loftgæðum
Góð < 50 Lítil sem engin heilsufarsáhrif.
Miðlungs 50 – 100 Einstaklingar með astma geta fundið fyrir áhrifum.
Léleg > 100
Einstaklingar með ofnæmi eða
alvarlega hjarta- eða lungnasjúkdóma
ættu að forðast að vera úti.
Mjög léleg > 150
Einstaklingar sem ekki eiga við
vandamál í öndunarfærum að stríða
geta fundið fyrir óþægindum.
3. mynd. Kort sem sýna staðsetningu mæli-
stöðvanna og nágrenni þeirra. (a) Kort af
Reykjavíkursvæðinu og (b) staðsetning
föstu mælistöðvanna (GRE og FHG), fær-
anlegu stöðvarinnar (FAR) áramótin 2005/6
og 2007/8 og Veðurstofu Íslands (IMO).
Loftmynd af Reykjavík frá Google Earth. –
Map showing the location of the measure-
ment stations (GRE FHG, and FAR) and
the Icelandic Meteorology Office (IMO).
Areal photo from Google Earth.
Sýnt hefur verið fram á að svif-
ryksmengun í háum styrk og/eða
langvarandi mengun hefur slæm
áhrif á heilsu manna.7,8,9,10,11 Heilsu-
verndarmörk eru miðuð við sólar-
hringsgildi svifryksmengunar og
teljast loftgæði skert við 50 µg/m3,
sjá 1. töflu.
1. tafla. Áhrif svifryksmengunar á heilsu manna. – Air quality guide for particulate pollution.
a)
)
80 1-2#loka.indd 59 7/19/10 9:52:46 AM