Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 62
Náttúrufræðingurinn
62
Áramótin 2005/6 breyttist vind-
áttin (5. mynd) hratt frá því rétt
fyrir miðnætti til klukkan 04:00, og
hafði það töluverð áhrif á mældan
styrk svifryksmengunar. Vindáttin
var suðaustlæg áramótin 2006/7
og breyttist ekki mikið frá klukkan
20:00 þann 31. desember til klukk-
an 10:00 þann 1. janúar. Áramótin
2007/8 breyttist vindáttin lítillega
eftir klukkan 02:00 þann 1. janúar,
en vindhraðinn var það mikill yfir
áramótin að sú breyting hafði lítil
áhrif á mældan styrk svifryksmeng-
unar.
Styrkur svifryksmengunar
(PM10) um áramót
Mældur styrkur svifryksmengunar
(PM10) um áramót er mun meiri en á
öðrum tímum ársins, eins og sést vel
á 6. mynd, sem sýnir styrk svifryks-
mengunar frá miðjum desember
til miðs janúar, þessi þrenn áramót
frá 2005 til 2008. Áramótin 2007/8
hafði sterkur vindur veruleg áhrif á
hámarkið, sem varð áþekkt „venju-
legu“ toppgildi vegna umferðar.
Mældur styrkur svifryksmeng-
unar um áramótin 2005/6, 2006/7
og 2007/8 er sýndur á 7. mynd.
Áramótin 2005/6 var hámarkið
tvískipt, annað klukkan 00:30 og
hitt klukkan 03:30, væntanlega
vegna breytinga í vindátt. Fær-
anlega mælistöðin (FAR) var stað-
sett í íbúðahverfi, við Skeiðarárvog,
áramótin 2005/6 (3. mynd) og þar
mældist mesti styrkur svifryks-
mengunar áramótin 2005/6 klukkan
1 eftir miðnætti, 2.374 µg/m3.
Áramótin 2006/7 náði styrkur svif-
ryksmengunar PM10 1.963 µg/m3 á
GRE og 589 µg/m3 við FHG (30 mín.
gildi); FAR var ekki við mælingar
vegna bilunar í tæki sem mælir
svifryk (PM10).
Áramótin 2007/8 hafði sterkur
vindur (5. mynd) mikil áhrif á styrk
svifryksmengunar (7. mynd), þannig
að styrkurinn var innan við 500 µg/
m3 við FAR og innan við 300 µg/m3
við GRE (mælitæki í FHG var bilað
til 19. janúar 2008).
Heilsuverndarmörk vegna svif-
ryksmengunar (PM10) eru 50 µg/m3
á sólarhring.23 Sólarhringsgildin 1.
janúar voru yfir mörkunum á öllum
stöðvum áramótin 2005/6, við GRE
2006/7 (vantar gögn frá FHG og
FAR vegna bilana) og rétt yfir mörk-
unum við FAR 2007/8, sjá 2. töflu.
Útreikningar og
umræður
Ferlar fyrir styrk svifryksmeng-
unar PM10, sem fall af tíma, um
áramótin 2005/6 og 2006/7 eru ólík-
ir (7. mynd). Áramótin 2005/6 var
hámarkið tvískipt, en 2006/7 (og
raunar 2007/8) var eitt hámark. Þar
sem vindhraði var mjög hægur og
lítið breytilegur yfir áramótin bæði
árin (5. mynd) og hin hefðbundna
flugeldasýning nær hámarki klukk-
an 23:30–00:30, og sá tími er nokkuð
stöðugur í áranna rás, þá virðist
aðeins breytingin í vindátt áramótin
2005/6 (5. mynd) vera líkleg skýring
á þessum mun.
Með gögnum um vindhraða og
vindátt getum við reiknað út líklega
ferla svifryksagnanna í loftinu, ef
við gerum ráð fyrir að þær berist
einfaldlega með vindinum. Hins
vegar er töluverð óvissa í vind-
stefnu og að vissu marki í vind-
hraða, þar sem stöðvarnar (VÍ, GRE
og FHG) sýna töluvert frábrugðin
gildi (5. mynd) þrátt fyrir litla fjar-
lægð milli þeirra. Á 8. mynd er
sýndur reiknaður ferill agna þar
sem notuð eru gögnin frá VÍ (tíglar),
GRE (stjörnur) og FHG (hringir).
Þegar ferill agna hefur verið reikn-
aður út er hægt að átta sig á hvaðan
svifryksagnir á gefnum tíma komu.
Segjum til dæmis að ögn fari í loftið
á miðnætti og mælist á mælistöð
20 21 22 23 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
0
100
200
300
400
500
Gamlárskvöld og Nýársdagur 2007/8 (klst)
GRE
FHG
FAR
P
M
10
(
g/
m
3 )
µ
7. mynd. Svifryksmengun PM10 (µg/m3, 30 mín. gildi) um áramótin 2005/6, 2006/7 og
2007/8, mæld á GRE-, FHG- og FAR-stöðvunum í Reykjavík. – Measured PM10 pollution
during New Year’s eve 2005/6–2007/8 at GRE, FHG and FAR.
20 21 22 23 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
0
500
1000
1500
2000
Gamlárskvöld og Nýársdagur 2006/7 (klst)
GRE
P
M
10
(
g/
m
3 )
µ
20 21 22 23 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
0
500
1000
1500
2000
2500
Gamlárskvöld og Nýársdagur 2005/6 (klst)
GRE
FHG
FAR
P
M
10
(
g/
m
3 )
µ
80 1-2#loka.indd 62 7/19/10 9:52:48 AM