Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 71
71
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Árni Hjartarson
HVAR ER GERPIR
UPPRUNNINN?
Gerpir og
Barðsneseldstöðin
Gerpir er hluti af fornu og löngu
kulnuðu eldfjalli sem nefnt hefur
verið Barðsneseldstöðin (1. mynd).
Þetta var eldfjall sem líktist Kröflu
eða Öskju með fjölbreytilegri gos-
virkni. Þar urðu mikil sprengi- og
gjóskugos samhliða rennsli súrra
og ísúrra hrauna en inn á milli
urðu vægari eldsumbrot þegar
basalthraun runnu frá gígaröðum.
Eldstöðin hefur því að öllum lík-
indum hlaðist upp nálægt miðju
gamals gosbeltis. Gosbeltin geta
verið af tvennum toga, rekbelti eins
og Norðurlandsgosbeltið í dag eða
hliðarbelti eins og Snæfellsnesgos-
beltið. Jarðlagaskipan og bergefna-
fræði benda eindregið til að Gerpir
sé myndaður á rekbelti.1 Meðallíf-
tími eldstöðva eins og Barðsneseld-
stöðvar hefur verið áætlaður um
1 milljón ára.2 Eftir það hefur hún
kulnað og grafist hægt og hægt
undir yngri gosmyndanir og þannig
horfið af yfirborði jarðar. Á sama
tíma hefur hana rekið út úr gosbelt-
inu. Seinna rofnaði ofan af henni
og bergmyndanir hennar birtust á
yfirborði jarðar á ný, langt frá hinu
virka gosbelti. Nú um stundir vinn-
ur hafaldan ötullega að því að brjóta
hana niður og er aldir renna hverfa
leifar hennar í sjó fyrir Austurlandi.
Geislasteinar og ummyndun bergs
gefa til kynna að um 500 m hafi veðr-
ast ofan af staflanum á Gerpissvæð-
inu.3 Gerpir er talinn vera 13–14
milljón ára. Margar aldursgreining-
ar hafa verið gerðar á honum þannig
að vitneskjan um aldurinn á að vera
traust (1. tafla).
Rekbeltin
Nýsköpun jarðskorpunnar og gliðn-
un á sér stað í rekbeltum og þar á
landrekið upphaf sitt. Núverandi
rekbelti Íslands eru nokkuð misbreið
frá einum stað til annars og eru um
60 km þvert yfir þar sem þau eru
breiðust. Eftir þeim miðjum liggur
ímyndaður ás, rekásinn. Vestan við
hann rekur land til vestlægrar áttar
og austan við hann til austlægrar
Hvar er Gerpir, austasti höfði landsins, upprunninn? Í hvaða gosbelti
myndaðist hann? Spurningin virðist frekar einföld en svarið hefur vafist
fyrir mönnum í áratugi. Hér á eftir verður þessi spurning skoðuð á ýmsa
lund. Greinin er að mestu byggð á samnefndu erindi sem haldið var á
vorráðstefnu Jarðfræðifélags Íslands (JFÍ) 2006.
1. mynd. Gerpir, austasti múli Íslands, séður úr Sandvík. – Gerpir, the easternmost promon-
torium of Iceland. Ljósm./Photo: Ína Gísladóttir.
Ritrýnd grein
Náttúrufræðingurinn 80 (1–2), bls. 71–76, 2010
80 1-2#loka.indd 71 7/19/10 9:53:08 AM