Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 72
Náttúrufræðingurinn
72
Sýni –
Specimen
Aðferð
– Method
Efni
– Substance
Aldur
– Age
Leiðréttur
aldur *
– Age corrected
Tilvitnun
– Reference
G33 K/Ar Basalthraun 13,5 13,9 Dagley o.fl. 1967 14
I-8 K/Ar Þól. basalt 13,0 13,3 Moorbath o.fl. 1968 15
G 19-1 Ar/Ar Basalthraun 12,9 Ross & Mussett 1976 16
G 21-1 Ar/Ar Basalthraun 13,2 Mussett, Ross & Gibson 1980 17
G8 K/Ar ? 12,9 13,2 Watkins & Walker 1977 18
Ar/Ar ? 13,7 Harðarson o.fl. 1997 4
Meðaltal 13,4
*K/Ar-aldursgreiningar sem gerðar voru fyrir 1978 eru leiðréttar hér um 2,65% vegna endurmats sem
gert var á helmingunartíma kalíums.
áttar. Þetta er meðaltalshreyfing til
lengri tíma litið, en í reynd er gliðn-
unarferlið mun flóknara.
Jarðsaga Íslands mótast af flóknu
samspili miðhafshryggjar og möttul-
stróks undir landinu. Strókurinn
er kyrrstæður en hryggurinn er á
reki. Á sama tíma og Atlantshafið
gliðnar út frá miðhafshryggnum,
og Ísland þar með, þá færist hrygg-
urinn til norðvesturs og fjarlægist
möttulstrókinn uns að því kemur
að strókurinn kippir honum til sín á
ný. Þetta lýsir sér í því að rekbeltin
eru óstöðug. Þau myndast og lifa
sitt blómaskeið en deyja svo út eftir
nokkrar ármilljónir, þegar þau hefur
rekið of langt frá möttulstróknum og
nýtt rekbelti verður til yfir strókn-
um. Þetta kallast rekbeltaflutningur
(e. rift jump) og hann á sér oftast stað
með tilflutningi til austurs. Jarðvís-
indamenn eru alls ekki á einu máli
um hvernig rekbeltaflutningur ger-
ist eða hversu oft hann hefur átt sér
stað í jarðsögu Íslands.
Á síðustu 15 milljón árunum er
vitað um tvö fullburða rekbelti á
Norðurlandi. Húnaflóagosbeltið er
talið hafa verið virkt á tímabilinu frá
því fyrir 15 til 6 milljón árum en þá
færðist gosvirknin á núverandi belti,
Norðurlandsgosbeltið, sem hefur
verið virkt síðan (2. mynd).4 Sumir
telja raunar að Norðurlandsgosbelt-
ið hafi verið virkt samfellt síðastliðin
15 milljón ár og að á fyrri hluta þess
tímabils hafi verið tvö gosbelti sam-
tímis á Norðurlandi, líkt og er sunn-
anlands í dag.5,6 Rannsóknir undir-
ritaðs í Skagafirði hafa leitt í ljós að
rekbeltasagan er nokkru flóknari en
þetta því þar eru ummerki um til-
tölulega ungt rekbelti.7 Allranýjustu
rannsóknir benda til enn flóknari
rekbeltasögu.8,9 Þau gögn hafa verið
kynnt á ráðstefnum en lítið hefur
verið birt um efnið í tímaritum.
Nú um stundir eru því allskiptar
skoðanir á rekbeltasögu landsins.
Sumir aðhyllast fá og langlíf rekbelti,
aðrir telja að þau hafi verið mörg og
skammæ.
Gliðnun jarðskorpunnar í Norður-
Atlantshafi hefur verið með svipuð-
um hætti síðustu 15 milljón árin og
raunar lengur. Þar hefur hún verið
um 1,8 cm/ár til langs tíma litið.10,11
Beinar mælingar á gliðnunarhraða
og reki á Íslandi með GPS-mælineti
á síðustu tveimur áratugum árum
hafa sýnt að hann er 1,8–2,0 cm/
ár.12,13 Í þeirri umræðu sem hér fer á
eftir er það langtímagliðnunin sem
skiptir máli.
Rek Gerpis til austurs
Hugsum okkur fyrst að sá skilning-
ur sé réttur að Norðurlandsbeltið
hafi orðið til við rekbeltaflutning
fyrir um 6 milljón árum og að
Húnaflóabeltið hafi verið forveri
þess. Samkvæmt því ætti Gerpir
að vera upprunninn í Húnaflóa-
beltinu. Gerpir er rúmlega 330 km
austan við ætlaðan ás þess, sem
talinn er hafa legið nálægt Vatns-
nesi (3. mynd). Þessari vegalengd
þarf hann að ná á 13,4 milljónum
ára. Ferill jarðmyndunarinnar til
austurs er sýndur á 4. mynd. Þar
er gert ráð fyrir að eldstöðin hafi
orðið til skammt austan við megin-
rekásinn og rekið til austsuðausturs
með rekhraðanum 0,9 cm/ár. Á
tímabilinu fyrir 7–5 milljón árum
kulnaði rekbeltið en Norðurlands-
beltið varð til milli Gerpis og gamla
1. tafla. Aldursgreiningar á jarðlögum í Gerpi. – The Gerpir dates.
2. mynd. Einfölduð mynd af þróun loftslags og gróðurs í jarðsögu Íslands og sögu rekbelta
á Norðurlandi eins og hún hefur verið túlkuð um árabil. – A simplified picture of the climate
and vegatation development in Iceland and history of the North Iceland rift zone.
80 1-2#loka.indd 72 7/19/10 9:53:15 AM