Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 73
73
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
rekbeltisins. Við þetta jókst rekhrað-
inn til austurs um helming miðað
við upprunastaðinn og hefur haldist
þannig allt til þessa dags. Brotni fer-
illinn á 4. mynd sýnir að miðað við
rekhraðann 0,9 cm á ári nær mynd-
unin ekki að komast nema 170 km
til austurs. Til að ná 330 km þarf
rekhraðinn að vera 1,7 cm/ár. Þetta
er ótrúlega há tala. Þá má spyrja:
Hvað ef gliðnunin var ósamhverf?
Því er fljótsvarað: Þótt hún hafi
verið fullkomlega ósamhverf og allt
rekið hafi verið til austurs (og þar
af leiðandi ekkert til vesturs) dugir
það ekki til að flytja jarðmyndunina
nema 241 km.
Dæmið virðist ekki ganga upp.
Samkvæmt þessu getur Gerpir ekki
hafa myndast í Húnaflóabeltinu
nema rekhraðinn hafi verið sýnu
meiri en yfirleitt hefur verið reikn-
að með. Undirritaður hefur raunar
lengi haldið því fram að svo sé.7
Gerum nú ráð fyrir að Gerpir
sé upprunninn í Norðurlandsbelt-
inu og að það hafi því verið virkt
samfellt í a.m.k. 13,4 milljónir ára.
Hann er 150 km austan við miðju
gosbeltisins í dag. Hér verða reikn-
ingarnir þægilegri því ekki þarf að
gera ráð fyrir neinum rekbeltaflutn-
ingi. Byrjum á einfölduðu dæmi.
Gerpir verður til nálægt miðju þessa
gosbeltis og rekur til austsuðausturs
0,9 cm/ár, sem eru 9 km á milljón
árum:
9 km/m.ár x 13,4 m.ár = 121 km
Hér vantar 29 km, eða nærri 20%,
upp á þá 150 km sem eru á milli
Gerpis og miðáss Norðurlandsbelt-
isins. Gosbelti Íslands eru 60 km á
breidd þar sem þau eru breiðust.
Því má segja að hafi Gerpir orðið til
í austurjaðri gosbeltisins, 30 km frá
ás þess, þá sé dæmið leyst.
Þetta er í samræmi við niðurstöð-
ur Ross og Mussetts15 og Mussetts
o.fl.16 um aldur bergs á Austurlandi
og rekhraða út frá gosbeltinu, en
þeir héldu því fram að allt berg á
Miðausturlandi væri upprunnið í
Norðurlandsbeltinu. Þessi kenning
virðist hafa verið tekin góð og gild
af jarðfræðingum í aldarfjórðung,
því engir hafa orðið til að andæfa
henni. Á henni eru þó a.m.k. fjórir
agnúar. Í fyrsta lagi þarf að gera
ráð fyrir því að nánast öll gliðnun
landsins í 13 milljón ár hafi átt sér
stað í Norðurlandsbeltinu til þess
að dæmið gangi vel upp. Fátt bend-
ir til þess. Bæði aldursgreiningar
og jarðlagaskipan gefa til kynna
að Húnaflóabeltið hafi tekið þátt
í gliðnuninni að meira eða minna
leyti allan fyrri helming tímabilsins.
Í öðru lagi bendir ekkert til þess
að Gerpir sé upprunninn utarlega í
gosbelti. Talið er að um 500 m þykk
jarðlagasyrpa hafi veðrast burt af
kolli hans, eins og áður sagði, og
jarðmyndun sem verður til utarlega
í gosbelti á ekki að geta kaffærst
4. mynd. Rek Gerpis til austurs frá Húnaflóagosbeltinu. Þetta er tíma-fjarlægðar línurit.
Brotni bleiki ferillinn sýnir landrekið miðað við hraðann 0,9 cm/ár. Heildregni rauði ferill-
inn sýnir þann hraða sem þarf til að Gerpir komist þá 330 km sem hann virðist hafa
rekið á liðnum 13 milljón árum. Sá rekhraði (eða sýndarrekhraði) er 1,7 cm/ár. – Time/
distance diagram indicating the eastward drift of Gerpir. The broken magenta line gives
the drift according to 0.9 cm/year. The red line shows the neccessary drift rate for Gerpir
to reach the 330 km that it seems to have managed last 13 million years. The apparent
rate is 1.7 cm/year.
3. mynd. Rek Gerpis og Hrafnseyrareldstöðvar frá hugsanlegum upprunastöðum sínum í
gosbeltum Norðurlands. Rauðu brotastrikin tákna rekása Húnaflóabeltis og Norðurlands-
beltis. – The drift of Gerpir Central Volcano and Hrafnseyri Central Volcano from their
possible origins inside the rift zones.
Flutningur rekbelta 7−5 m. ár
Mörk rekbeltis
Snæfellsnes - Húnaflóaás
M
ill
jó
n
ár
80 1-2#loka.indd 73 7/19/10 9:53:18 AM