Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 78
Náttúrufræðingurinn
78
Ráðuneytið hafnar því að hvíta-a)
björninn sé í útrýmingarhættu! Þetta
stangast á við það að umhverfisráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna taldi
hann í slíkri hættu að hann var gerð-
ur að einkennistákni ráðstefnunnar
með styttu úr ís.
Það stangast á við umsögn
Davids Attenborough, eins fræg-
asta náttúrufræðings í heimi,
sem nýlega kynnti í þáttum BBC
hvernig hlýnandi veður minnkar
hafísinn og þrengir að lífsháttum
hvítabjarnarins. Helgi Björnsson
jöklafræðingur hefur nýlega einnig
bent á hvað jöklar bráðna ört vegna
hlýnandi veðurfars.
Það stangast á við sjónarmið
Bandaríkjanna og Rússlands en
þetta var nánast það eina sem þau
komu sér saman um í miðju kalda
stríðinu. Síðan hafa Kanada, Græn-
land/Danmörk og Noregur bæst
í hóp þeirra landa sem telja þörf á
að vernda hann. Þessi ríki funda
reglulega um stöðu þessara mála
og fulltrúar þeirra hittust síðast í
Noregi á sl. ári og munu hittast í
Kanada á næsta ári og í Rússlandi
árið 2013. Ísland er eina landið þar
sem hvítabirnir eru og munu verða
drepnir kerfisbundið.
Áhugi minn á hvítabjörnum b)
vaknaði er ég dvaldi sem læknir í
Meistaravík á Grænlandi sumarið
1962. Þangað komu inúítar frá
Scoresbysundi með bjarnarhún sem
varð þar eftir. Þetta var lítil birna
sem kölluð var Hansína og varð að
gæludýri okkar þorpsbúa. Hún var
sem hvolpur sem þótti gaman að
leika sér að boltum og synda í lækn-
um. Þótt ég hafi klappað Hansínu
hef ég enn alla mína fingur. Hansína
var síðar flutt í dýragarðinn í Kaup-
mannahöfn.
Fljótlega eftir heimkomu mína
frá Bandaríkjunum, eftir nokkurra
ára námsdvöl þar árið 1974, var
drepinn hvítabjörn á Íslandi og
undraðist ég þá almenn viðhorf.
Þau stönguðust mjög á víð þau
sem við fjölskyldan höfðum kynnst
í ríkis- og þjóðgörðum Bandaríkj-
anna þar sem oft hafði verið dvalið
í helgar- og sumarleyfum. Þar voru
þeir birnir fangaðir sem gerðust
ágengir, fluttir burtu og afar sjald-
an felldir. Þetta er einnig gert í
Churchill í Kanada þar sem nálægð
hvítabjarna við mannabyggð er
hvað mest. Ég taldi að þetta ætti
einnig að vera kleift hér þótt þekk-
ingu hafi skort.
Í einfeldni minni hélt ég, eins og
Guðmundur söng; „hraustir menn,
finnast hér á landi enn“. Mér tókst með
tengingum bæði til Meistaravíkur
og þjóðgarðanna að afla ágætra
upplýsinga og töldu viðmælendur
mínir að slíkt ætti að vera kleift hér
sem annars staðar, enda eru aðferðir
vel þekktar og hafa verið notaðar
við stærstu dýr Afríku. Björgun dýra
krefst að sjálfsögðu undirbúnings
og skipulags. Hélt ég að „hraustir
menn“ gæfu sig fram, en þeir hafa
enn ekki fundist.
Frægasti einstakur björn mun
vera Knútur í Berlín, sem varð að
alheimssjónvarpsstjörnu er hann
lék við gæslumann sinn. Knút
átti ég þess kost að heimsækja í
Berlín í sl. sumar. Hann var orð-
inn stálpaður og kepptist við að
velta sér upp úr moldinni. Fjöldi
gesta eyddi góðri stund við svæði
hans. Knútur átti nýlega þriggja ára
afmæli og kom fjöldi Berlínarbúa
til að horfa á hann neyta veislu-
kostsins, eins og sjá mátti á vefsíðu
Morgunblaðsins.
Við dvalarstað Knúts er látúns-
skilti sem á stendur: Umhverfis-
ráðuneyti Þýskalands er sérstakur
verndari Knúts.
Síðustu fréttir af Knúti eru þær að
honum hefur verið fundin kærasta.
Ráðgjöf. Ráðuneytið hefur fundið c)
jábræður en ekkert gert til að kynna
sér viðhorf einstaklinga sem hvað
mest hafa kynnt sér slík mál og hafa
skrifað alls sex blaðagreinar.
Kostnaður er alltaf einhver, en d)
hann er afstæður, sérstaklega hjá
þjóð sem flytur rostung í flugi frá
Hollandi til Íslands og síðan á varð-
skipi til Grænlands! Hvað skyldi
dráp hvers hvítabjarnar kosta með
vinnu, flutningi „vísindarannsókn-
um“, uppstoppun og varanlegri
geymslu?
Dráp eins hvítabjarnar mun að
sjálfsögðu ekki gera út af við stofn-
inn né rýra frekar álit umheimsins á
Íslendingum.
Næstu hvítabjarnarfréttir verða
sennilega annaðhvort af ástalífi
Knúts í Berlín eða „vísindaritgerð“
af drápi, fláningu, krufningu og
uppstoppun ættingja hans frá
Grænlandi.
Knútur í Berlín sumarið 2009. Ljósm.:
Birgir Guðjónsson.
Skilti Umhverfisráðuneytis Þýskalands
2009. Ljósm.: Birgir Guðjónsson.
Um höfundinn
Birgir Guðjónsson (f. 1938),
útskrifaðist frá Lækna-
deild Háskóla Íslands 1965.
Hann stundaði framhalds-
nám í lyflæknisfræði og
meltingarsjúkdómum frá
Háskólanum í Yale og var
aðstoðarprófessor þar í
nokkur ár.
80 1-2#loka.indd 78 7/19/10 9:53:37 AM