Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 12
Náttúrufræðingurinn 92 Alaskalúpína Alaskalúpína (6. mynd) er hávaxin (50–120 cm) fjölær jurt af belgjurta- ætt, upprunnin í Norður-Ameríku.59 Hún var fyrst flutt til landsins árið 1895 og hefur verið notuð til landgræðslu hérlendis frá því um miðbik 20. aldar.60,61 Alaskalúpína hefur einnig verið flutt til Finnlands, Grænlands, Noregs og Svíþjóðar og flokkast sem mögulega ágeng í Finnlandi og Noregi.36 Hér á landi er hún mjög útbreidd og finnst víða á láglendi þar sem land er friðað eða sauðfjárbeit lítil.62 Belgjurtir hafa þann sérstaka eiginleika að mynda í rótarhnýðum sambýli við bakteríur af ættkvíslinni Rhizobium, sem vinna köfnunarefni úr andrúmsloftinu. Köfnunarefni í jarðvegi getur þannig byggst upp er plöntuleifar brotna niður.61 Þessi eiginleiki gerir lúpínunni kleift að vaxa í hrjóstrugu landi án áburð- argjafar og hefur henni þess vegna verið ötullega dreift um landið frá því um 1960.63 Hún fjölgar sér aðallega með fræjum sem þroskast eftir mitt sumar en fjölgun með rótar- skotum er sjaldgæf. Fundist hefur um 10 ára gömul lúpínuplanta með meira en 100 stöngla en talið er að plantan geti orðið meira en 20 ára við hagstæð skilyrði.64 Hver planta með 25 stöngla getur myndað meira en 2.000 fræ árlega.65 Þannig mynd- ast fræbanki í jarðveginum sem enst getur í mörg ár.66 Fræ dreifast yfirleitt stutt, eða um 1–3 m frá móðurplöntunni, nema þar sem landi hallar eða rennandi vatn er nálægt. Vísbendingar eru um að fræ geti borist langar vegalengdir með vatni, sterkum vindum og fuglum en aðaldreifingarleiðin hefur samt sem áður verið sáning manna.60 Alaskalúpínan myndar gjarnan stórar, þéttar breiður og getur auð- veldlega vaxið í næringarsnauðum jarðvegi, svo sem á sendnum svæð- um þar sem annar gróður á erfitt uppdráttar. Hún er mun hávaxn- ari en flestar innlendar plöntur og hefur því forskot á þær bæði vegna rótarsambýlisins og aðgangs að sólarljósi. Alaskalúpínan getur því víða orðið ágeng á Íslandi.67 Með niturbindingu breytir alaskalúpínan efnasamsetningu jarðvegs og fellur því í flokk ágengra plantna sem valda hvað mestum vandamálum á heimsvísu, vegna þess að þegar þannig plöntur fara yfir gróið land er ólíklegt að hægt sé að endur- heimta fyrra gróðurfar.67,68,69 Þegar alaskalúpína tekur yfir gróðurlendi koma nær undantekn- ingarlaust fram neikvæð áhrif á teg- undafjölbreytni.67 Í sumum gömlum lúpínubreiðum hefur orðið gróður- framvinda í áttina að graslendi eftir 15–25 ár, en einnig eru dæmi um að breiður hafi óbreyttan þéttleika lúpínu eftir 30 ára viðveru. Þar sem lúpína hefur hörfað fyrir öðrum tegundum koma helst elftingar og hávaxnar blómjurtir í staðinn, t.d. skógarkerfill, vallarsveifgras (Poa pratensis), blásveifgras (Poa annua), túnvingull (Festuca richardsonii), brennisóley (Ranunculus acris), túnfífill (Taraxacum spp.), túnsúra (Rumex acetosa), blágresi (Geranium sylvaticum), vallelfting (Equisetum pratense), ætihvönn (Angelica arch- angelica) og geithvönn (Angelica syl- vestris).67 Þá er mögulegt að koma upp birki (Betula pubescens) í slegn- um lúpínubreiðum.70 Á auðnum og víðáttumiklum melum, þar sem engan eða sáralítinn gróður er að finna, getur hún þó aukið til muna lífmassa og tegundafjölbreytni.71,72 Ávallt skal hafa í huga að lúpína breytir ásýnd lands til frambúðar. Það er því ábyrgðarhluti að dreifa henni og ættu menn einungis að gera það að vel athuguðu máli og með langtímasjónarmið í huga, bæði m.t.t. varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni og landgræðslu. Nauð- synlegt er að fá samþykki landeig- anda og meta bæði jákvæðar og 6. mynd. Alaskalúpína. – Nootka lupin (Lupinus nootkatensis). Ljósm./Photo: Róbert A. Stefánsson. 80 3-4#Loka_061210.indd 92 12/6/10 7:22:04 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.