Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 84

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 84
Náttúrufræðingurinn 164 (Turdus ruficollis atrogularis) sást í annað sinn á landinu svo vitað sé í Stöðvarfirði 12. október. Það þóttu merk tíðindi þegar fyrst sást til fuglsins hérlendis haustið 2005 enda tegundin útbreidd í Asíu og eingöngu flæk- ingur í Evrópu. Hungurdauði sjávarfugla Nokkuð bar á dauðum haftyrðlum sem rekið hafði á fjörur í upphafi árs. Mest var um dauðan fugl norðan- og austanlands en einnig við suðurströndina. Í janúar fannst mikið af nýdauðum svartfugli reknum á fjöru í fjarðarbotni í Ólafsfirði. Eins og annars staðar var mest um haftyrðil en einnig álkur og minna af lunda, stutt- nefju og langvíu. Fugladauðann má að öllum líkindum rekja til fæðuskorts, eins og orðið hefur vart í ein- hverjum mæli flesta vetur allt frá vetrinum 2001–2002 þegar þúsundir svartfugla urðu hungurdauða. Rjúpnastofninn í uppsveiflu Árlegar vortalningar á rjúpu bentu til að fækkunar- skeiðið sem hófst 2005/2006 sé afstaðið. Um 30–70% fjölgun kom í ljós á talningasvæðum á austanverðu landinu, en fjöldinn stóð í stað vestanlands. Sveiflur í rjúpnastofninum eru vel þekktar af náttúrulegum orsökum og hafa fækkunarskeið undanfarinna áratuga jafnan varað í 5–8 ár. Fjölgunin nú, eftir eingöngu tveggja ára lægð, er því óvænt. Laxagengd í hámarki Sumarið 2008 var metlaxveiði í ám á Íslandi. Alls veiddust 84.124 laxar á stöng en af þeim var 17.178 (20,4%) sleppt aftur. Flestir laxar veiddust á Vestur- landi, alls 30.769. Á Suðurlandi var veiðin litlu minni en þar veiddust 29.717 laxar. Uppistaða veiðinnar á Suðurlandi var af vatnasvæði Rangár þar sem veiði byggist að mestu leyti á sleppingum gönguseiða. Minni veiði var í öðrum landshlutum. Í netaveiði var aflinn 9.403 laxar og þar af veiddust langflestir á Suðurlandi, 8.954, en mun færri laxar veiddust í net í öðrum landshlutum. Andarnefjur við landið Um mitt sumar fór að bera á auknum fjölda andarnefja við landið, sérstaklega úti fyrir Norðurlandi. Á stuttu tímabili í júlí bárust tilkynningar um fimm andarnefjur reknar á fjörur víðs vegar í Þingeyjasýslum. Af ástandi dýranna að dæma var ljóst að hræin hafði rekið um langan veg áður en þau bar að landi. Andarnefjur rak einnig á land á öðrum svæðum og árstímum og varð heildarfjöldi andarnefjureka alls 12 dýr, sem er langt yfir meðallagi. Frá árinu 1980, þegar skráningar hófust, hefur fjöldinn aldrei verið meiri sex dýr. Í lok sumars fóru hópar andarnefja að halda til inni á Eyjafirði og Skjálfanda. Tvö dýr héldu til á Eyjafirði frá ágúst fram í október en fjögur dýr til viðbótar bættust í hópinn á styttra tímabili. Hópurinn á Skjálfanda taldi fjögur dýr. Hvalirnir á Eyjafirði vöktu mikla athygli Akureyrarbúa sem fylgdust vel með ferðum þeirra þar sem þeir áttu til að synda með loftköstum um Akureyrarpollinn. Þó andarnefjur séu djúpsjávartegund og haldi að jafnaði til fjær landi eru heimsóknir sem þessar ekki með öllu óþekktar. Árið 1953 getur blaðið Dagur t.a.m. um að Akureyrarbúar hafi fylgst með tveimur andarnefjum sem héldu til inni á Akureyrarpolli seinni hluta sumars líkt og nú (Dagur, 26. ágúst 1953). Hvítabirnir ganga á land Í júnímánuði gengu tveir hvítabirnir á land í Skaga- firði. Fyrri björninn sást við Miðmundarfjall við Þverárfjallsveg 3. júní og sá síðari við bæinn Hraun II á utanverðum Skaga 16. júní. Koma dýranna var óvænt, enda um 20 ár frá því hvítabjörn hafði síðast gengið á land á Íslandi. Fregnir af fyrra dýrinu bárust fljótt út og forvitinn almenningur tók að streyma að vettvangi til að berja gestinn augum. Yfirvöld voru Fölsöngvari. Ljósm.: Brynjúlfur Brynjólfsson. Hvítabjörn í æðarvarpi við bæinn Hraun II. Ljósm.: Náttúrustofa Norðurlands vestra. 80 3-4#Loka_061210.indd 164 12/6/10 7:22:47 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.