Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 31
111
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
vegar illfært á fólksbíl og fær hann
því 1 í einkunn.
– Jeppaleið. Á sama hátt er lagt
mat á hversu gott er að komast um
svæðið á jeppa. Ef leiðin er greiðfær
fyrir óbreytta jeppa fær svæðið 10 í
einkunn, eins og t.d. Sprengisandur.
Sé leiðin hins vegar óljós og mjög ill-
fær, jafnvel spurning hvort ökutæki
eigi að fara um hana, fær svæðið 1
í einkunn, eins og t.d. Vonarskarð.
Í þessu viðfangi er ekki lagt mat
á hversu skemmtileg og krefjandi
jeppaleiðin er – það er metið í við-
fanginu torfæruferðir í flokknum
afþreying.
– Innviðir fyrir ferðamenn. Svæði
þar sem eru vatnssalerni, merkingar
og góðir göngu- eða reiðstígar fá
10 í einkunn, t.d. Jökulsárgljúfur.
Svæði þar sem einungis er kamar
og/eða einfaldar merkingar fá 1 í
einkunn, t.d. Gjástykki.
Gisting. Metið er hvort sú gisting
henti þeim markhópi sem kemur
á svæðið og anni með eðlilegum
hætti fjöldanum sem þangað sækir.
Gefið er fyrir gistiaðstöðu, ann-
ars vegar á ferðasvæðinu og hins
vegar í nágrenninu, en aðeins hærri
einkunnin er tekin með í heildar-
matið. Ástæðan fyrir því er m.a. sú
að ekki er alls staðar æskilegt að
hafa gistingu, t.d. ekki á mjög við-
kvæmum náttúrusvæðum. Ferða-
mönnum finnast slík svæði ekki
batna heldur versna rísi þar hótel.50
Þetta er jafnframt í samræmi við þá
stefnu sem birtist í svæðisskipulagi
miðhálendis Íslands.27
– Gisting á svæðinu. Dæmi um
svæði sem fá 10 í einkunn eru
Mývatn og Álftavatn að Fjallabaki,
þar sem eru gistirými sem fullnægja
þörf ferðafólks.
– Gisting í nágrenninu. Miðað er
við að ekki sé meira en ákveðinn
aksturstími í fjölbreytta gistingu. Sé
innan við 30 mín. akstur frá ferða-
svæðinu í góða gistingu fær svæðið
10 í einkunn, t.d. Markarfljót. Svæði
þar sem er meira en í 2 klst. akstur
í gistingu fá hins vegar 1 í einkunn,
t.d. Kverkfjöll.
Notkun. Fjöldi ferðamanna sem
heimsækja áfangastaði er einn af
mælikvörðunum á aðdráttarafl
svæðis. Flokkurinn notkun skiptist
í þrjá undirflokka: notendur (0,1),
notkunarmynstur (0,09) og ferða-
hegðun (0,01). Í hverjum þeirra eru
tvö viðföng.
Notendur. Í undirflokknum eru tvö
viðföng sem skipta bæði máli og eru
því bæði tekin með í útreikninga.
– Fjöldi ferðamanna. Svæði þar sem
mjög margir ferðamenn koma, fleiri
en 10.000 á ári, fá einkunnina 10,
t.d. Landmannalaugar og Mývatn.
Staðir þar sem færri en 2.000 koma
fá einkunnina 1, t.d. Brennisteins-
fjöll.
– Ferðaþjónusta. Metið er hversu
mikilvæg svæði eru fyrir fyrirtæki
í ferðaþjónustu. Mjög mikilvæg
svæði fá 10, t.d. Gullfoss og Land-
mannalaugar. Svæði sem eru lítið
nýtt af ferðaþjónustunni fá 1, t.d.
Gjástykki.
Notkunarmynstur. Í undirflokknum
eru tvö viðföng, fjarlægð frá mark-
aði og ferðamynstur. Bæði skipta
máli og eru því bæði tekin með í
útreikninga.
2. tafla. Virði ferðasvæða (sjá 1. töflu). – The value of tourism regions.
Ferðasvæði
– Tourism region
Virði
– Value
Ferðasvæði
– Tourism region
Virði
– Value
Jökulsárgljúfur 9,60 Djúpá 8,09
Hveravellir 9,58 Fremrinámar 8,04
Askja 9,42 Núpsstaðarskógur 7,89
Torfajökull 9,31 Skagafjarðardalir 7,80
Landmannalaugar 9,29 Ódáðahraun 7,76
Sprengisandur 9,28 Gjástykki 7,74
Gullfoss 9,18 Þjórsárdalur 7,72
Eldgjá 9,11 Ófeigsfjarðarheiði 7,62
Mývatn 9,10 Gljúfurleit 7,57
Langisjór 8,97 Arnardalur 7,53
Þórsmörk 8,94 Hagavatn 7,38
Hólmsárbotnar 8,91 Hágöngur 7,32
Kerlingarfjöll 8,90 Vonarskarð 7,25
Mælifellssandur 8,88 Tindfjöll 7,17
Laki 8,87 Keilir 7,11
Kiðagil 8,86 Þjórsárver 7,01
Geysir 8,83 Brennisteinsfjöll 7,01
Hengill 8,72 Bláfjöll 6,91
Markarfljót 8,71 Þeistareykir 6,28
Hverfisfljót 8,69 Þórisvatn 6,23
Eldhraun 8,68 Þjórsá í byggð 6,03
Krýsuvík 8,59 Hrunamannaafréttur 5,85
Reykjanestá 8,52 Jökulheimar 5,71
Hekla 8,47 Tungnaá 5,33
Álftavatn 8,38 Skálafell 5,21
Kverkfjöll 8,37 Eyvindarstaðaheiði 4,90
Veiðivötn 8,37 Skarðsmýrarfjall 4,54
Öldufell 8,37 Auðkúluheiði 4,52
Goðafoss 8,33
80 3-4#Loka_061210.indd 111 12/6/10 7:22:15 AM