Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 52
Náttúrufræðingurinn
132
Heimspekingar og trúarleiðtogar
Buddhaites heitir lindýr og fékk
nafn eftir trúarleiðtoganum í lok 19.
aldar. Um sama leyti valdi annar
dýrafræðingur tíbetsku náttfiðrildi
ættkvíslarheitið Dalailama. Skor-
dýrafræðingur gaf tveimur vespum
sem hann greindi um 1930 heitin
Marxella og Lutheria. Heimspek-
ingurinn Díogenes frá Sinope er
sagður hafa búið í tunnu. Sá dýra-
fræðingur er kenndi við hann kuð-
ungakrabba í Karíbahafi, Petrochirus
diogenes, hefur kannski haft þetta í
huga, en kuðungakrabbar velja sér
bústað í aflögðum kuðungaskelj-
um. Kínverjar gleyma ekki heldur
sínum heimspekingum. Fjórir stein-
gervingafræðingar þar í landi, Hou,
Zhou, Gu og Gang, völdu árið 1995
nýfundnum 100 milljón ára gömlum
tengilið fugla og risaeðlna heitið
Confuciusornis sanctus, hinn heilagi
fugl Konfúsíusar.
Stjórnmálamenn
Tveir bandarískir skordýrafræðing-
ar, Quentin Miller og Kelly Wheeler,
fengu nýlega í hendur 65 tegundir
af slímsveppbjöllum, sem kallaðar
eru eftir sveppum sem þær þrífast
á. Árið 2005 kenndu þeir þrjú þess-
ara eins eða fárra millimetra löngu
dýra við þjóðhöfðingja sinn og tvo
ráðherra hans: Agathidium bushi, A.
cheneyi og A. rumsfeldi. Sumir for-
verar Bush njóta þess að hafa verið
uppi á meðan enn voru ónefndar
ýmsar stærri skepnur. Þannig bera
tvö risadýr nafn Tómasar Jeffersons;
að vísu bæði útdauð fyrir meir en
tíu þúsund árum og nafngreind
eftir daga forsetans, tegund af
mammútfíl, Mammuthus jeffersonii,
og gríðarstórt jarðletidýr, Megalo-
nyx jeffersonii. Sonur Theódórs
Roosevelts, sem eins og faðirinn
var mikill veiðimaður, felldi í Laos
gjammhjört af áður óþekktri tegund
og lét kenna við gamla manninn,
Muntiacus rooseveltorum. Franklin
Delano Roosevelt varð að gera sér
að góðu marfló, að vísu allstóra af
nafninu að dæma, Neomegamphopus
roosevelti.
Kínverjar leituðu ein hundrað
milljón ár aftur í tímann til að
finna verðugan beranda nafns for-
mannsins, Maotherium, spendýr frá
krítarskeiði. Og í ámóta fornum
jarðlögum í Mongólíu fannst frændi
amerísku grameðlunnar, ránrisaeðla
sem kölluð var Jenghizkhan eftir
öðrum frægum herstjóra þar eystra.
Einlægur nasisti, Scheibel að
nafni, uppgötvaði árið 1933 blinda
bjöllu er aðeins lifir í fimm myrkum
hellum í Slóveníu og kallaði hana
Anopthalmus hitleri. Ekki er að sjá
sem heitið muni færa skepnunni
meiri heill en mannlegum áhang-
endum Foringjans, því menn sem
safna minjum um hann eru við það
að útrýma henni.
Listamenn
Girault hét skordýrafræðingur á
fyrri hluta 20. aldar sem glögg-
lega hafði í senn áhuga á vespum,
orðsins list og klassískri tónlist.
Af mörgum vespunöfnum hans
skulu aðeins tilgreind tvö, og í báð-
um sameinar hann tvo snillinga:
Goetheana shakespearei og Mozartella
beethoveni.
Þríbrotar eða trílóbítar voru forn
liðdýr sem hurfu af jörðinni (eða öllu
heldur úr sjónum) fyrir hundruðum
milljóna ára. Á bakinu höfðu þeir
allharða kítínskurn sem beygðist að-
eins inn undir kviðhliðina sitt hvoru
megin, en hún hefur varðveist víða
í jarðlögum, og spillir ekki fyrir
að dýrin höfðu oft á lífsferlinum
hamskipti eins og núlifandi ætt-
ingjar þeirra, og er því fræðilegur
möguleiki á því að sama dýrið hefði
skilið eftir sig marga steingervinga.
Þrír þríbrotafræðingar, sem allir eru
virkir á 21. öld, Jonathan Adrian,
Gregory Edgecombe og Brian Chat-
terton, hafa sótt heiti á þessi löngu
liðnu brynjuðu dýr til nútímapopp-
músíkanta. Frá einum eða fleirum
þeirra eru komin nöfn eins og Ava-
lanchus simoni, A. garfunkeli, A. len-
noni, A. starri, Aegrotocatellus jaggeri
(5. mynd) og Struszya mccartneyi.
Einn þeirra þríbrota sem Adrian
og Edgecombe ákvörðuðu 1995
heitir Aegrotocatellus, sem útleggst
úr latínu „veikur hvolpur“. Nafnið
munu þeir félagar sækja til popp-
hljómsveitar, „Sick Puppies“.
Af dýrum sem tengjast kvik-
myndagerðarmönnum má nefna
miðlífsaldarsvaneðlu, Attenboro-
saurus, og afar fágætan mjónef frá
Nýju-Gíneu, Zaglossus attenboroughi,
(6. mynd) sem aðeins þekkist í
einu eintaki og er kannski aldauða.
Bæði dýrin eru kennd við David
Attenborough.
Leikarar hvíta tjaldsins koma hér
að sjálfsögðu við sögu: Háfætt fluga
kallast Campsicnemius charliechaplini,
6. mynd. Mjónefur frá Nýju-Gíneu (Zag-
lossus attenboroughi).
5. mynd. Þríbroti (Aegrotocatellus jaggeri). 7. mynd. Söngtifa (Baeturia hardyi).
80 3-4#Loka_061210.indd 132 12/6/10 7:22:26 AM