Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 50

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 50
Náttúrufræðingurinn 130 A llar tegundir lífvera – dýr, plöntur og örverur – eru auðkenndar tveimur alþjóð- legum fræðiheitum. Heitin eru felld að latneskri orðbyggingu, þótt mörg séu gerð úr grískum orðstofnum, eða – einkum á síðustu tímum, með hnignandi kunnáttu líffræðinga í klassískum tungum – stofnum úr öðrum tungumálum. Fremra heitið er ættkvíslarnafn, sameiginlegt skyldum tegundum sem saman eru flokkaðar í ættkvísl (genus), þótt til séu ættkvíslir með aðeins einni teg- und. Síðara heitið, viðurnafnið, aðskilur tegundir (species) ættkvísl- arinnar. Fyrstur til að taka upp svona tvínafnakerfi mun hafa verið sviss- neskur grasafræðingur, Gaspard (eða Caspar) Bauhin (1560–1624), en hann beitti því á einar 6.000 plöntu- tegundir, og af þeim sem til þekkja má ráða að það hafi ekki verið til þess fallið að ná til alls lífheimsins. Sænski náttúrufræðingurinn Carl von Linné eða Carolus Linnaeus (1707–1778) kom á tvínafnakerfi um allar tegundir lífvera sem skráðar voru, og nýtist það enn – með fyrir- vara um breyttar forsendur – um þær tegundir sem við bætast. Hann er jafnan talinn höfundur nútíma nafnakerfis líffræðinnar. Kerfi sem tekur til milljóna teg- unda, þar sem sífellt bætast nýjar við og jafnframt eru í endurskoðun mörkin á milli þeirra sem fyrir eru, verður aldrei fullkomið, en til að hafna óhæfum nöfnum og úrskurða um vafaatriði, meðal annars að draga úr líkunum á því að sama heiti sé notað um fleiri en eina tegund eða mörg heiti séu á þeirri sömu, eru starfandi alþjóðanefndir eða ráð. Hinar þekktustu þessara stofnana eru Alþjóðlega dýrafræði- nafnanefndin (International Com- mission on Zoological Nomenclature) og Alþjóðlegu plöntuflokkunar- samtökin (International Association for Plant Taxonomy). Á milli þeirra virðist vera lítið sem ekkert samráð; í það minnsta er óátalið þótt sama fræðiheitið taki til tegundar plöntu og dýrs. Ekki fer hjá því að sum heitin veki kátínu, og skal ósagt látið hvort það var ætlun höfunda. Hér eru birt örfá dæmi þessa. Orðagerð Lengd orða Sem dæmi um heiti er ekki hlaut náð fyrir augum dýrafræðinefnd- arinnar er Ammaracanthuskytoder- mogammarus loricatobaicalensis, lík- lega jafnframt lengsta skepnuheiti sem lagt hefur verið fyrir nefndina. Undir þessum langhundi átti að rísa krabbafló í Bajkalvatni. Þegar kemur að löngum nöfnum kallar dýrafræði- nefndin þó ekki allt ömmu sína; í það minnsta féllst hún á að tvívængja af ætt herflugna (Stratiomyidae) fengi að bera fræðiheitið Parastratiospheco- myia stratiosphecomyioides (1. mynd). Hins vegar neitaði nefndin að taka gilt sem heiti á afbrigði hjartarbjöllu Brachyta interrogationis interrogationis var. nigrohumeralisscutellohumerocon- juncta, þó ekki vegna hins langa afbrigðisnafns, heldur af því að heitið var fjórskipt – ættkvísl, teg- und, deilitegund og afbrigði. Í þessu efni eru grasafræðingar öllu frjáls- lyndari; þeir setja jafnvel sex þrepa nafngiftir ekki fyrir sig, ef ráða má af viðteknu heiti á tilbrigði stein- brjóts, Saxifraga aizoon var. aizoon subvar. brevifolia forma multicaulis subforma surculosa. Líklega falla skoruþörungar undir lögsögu plöntuflokkunar- samtakanna fremur en dýrafræði- nefndarinnar; hvað sem því líður ber löngu útdauð ættkvísl þeirra hið svipmikla ættkvíslarheiti Archaeo- hystrichosphaeridium. Og kínverskir steingervingafræðingar fara enn létt með að flétta saman klassíska orð- stofna, eins og sést á heiti smávax- innar risaeðlu er þeir grófu nýlega upp og nefndu Micropachycephalo- saurus hongtuyanensis. Frá lengstu nöfnunum snúum við okkur að þeim stystu: Stystu ætt- kvíslarheitin eru aðeins tveir bók- stafir. Eitt þeirra, og jafnframt það fræðiheiti sem fremst er í stafrófinu, er Aa, sem auk þess er dæmi um samnýtingu dýra- og grasafræðinga, þar sem það á bæði við ættkvísl lin- dýra og brönugrasa. Fæstir bókstafir í heilu tegundarheiti munu ein- kenna leðurblöku, Ia io. Í næsta sæti er grafvespa, Aha ha, og skordýr af ættbálki kögurvængna, Plesiothrips o, skartar eins bókstafs viðurnafni. Endurtekning Dýrafræðingar spara hugvit með því að nota sama orðið yfir ættkvísl- arnafn og viðurnafn. Þannig kallast Skondin fræðiheiti Örnólfur Thorlacius 1. mynd. Tvívængja af ætt herflugna (Parastratiosphecomyia stratiospheco- myioides). Náttúrufræðingurinn 80 (3–4), bls. 130–134, 2010 80 3-4#Loka_061210.indd 130 12/6/10 7:22:25 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.