Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 53

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 53
133 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags því ankannalegur fótaburður henn- ar þykir minna á tilburði gamanleik- arans. Tvær söngtifur eru kenndar við gamanleikaraparið fræga, „Gög og Gokke“, Stan Laurel og Oliver Hardy, Baeturia laureli og B. hardyi (7. mynd). Sula abbotti eða indíasúla er súlutegund í suðurhöfum. Fuglinn er kenndur við banda rískan nátt- úrufræðing sem uppgötvaði hann 1892, en þegar gefa þurfti fágætri deilitegund (sem nú er raunar talin útdauð) nafn, féllu menn í þá freistni að lengja heitið í Sula abbotti costelloi og tengja dýrið þar með við annað rómað par gamanleikara, þá Bud Abbott og Lou Costello. Fræg hlutverk sem Orson Welles hefur túlkað birtast í fræðiheitum risakóngulóa á Hawaii, Orsonwelles othello, O. macbeth, O. falstaffius og O. ambersonorum. Heiti úr goðafræði Hér er af mörgu að taka, en af þjóð- rækni hefjum við skrána á nokkrum heitum úr ásatrú: Aegirosaurus er hval- eða fiskeðla (ichthyosaur), sem hlaut nafn af sjávarguðinum Ægi árið 2000. Þrjú dröfnufiðrildi, nafn- greind um 1800, heita Clossiana frigga, C. freja og C. thore. Þá má nefna tvö steingerð spendýr frá upphafi nýlífsaldar, Eoconodon nidhoggi, og Ragnarok, bæði nafngreind 1978. Lít- ið lagðist fyrir þrumuguðinn, þegar rækja í Karíbahafi var kölluð Thor. Myrkraöflin Anubis er bjölluættkvísl, kennd við dauðaguð Egypta. Við undirheima- guð Rómverja er kennd vespuætt- kvísl, Pluto, og Hades, híbýli látinna Forn-Grikkja, er ættkvísl fiðrilda. Loks skal nefndur fiskurinn Satan, eins konar grani sem lifir í myrkum neðanjarðarhellum. Þjóðsögur og ævintýri Sögur ganga af tvífættum furðuver- um beggja vegna Kyrrahafs, stór- fæti (sasquatch) í Klettafjöllum og snjómanninum (Jeti) í Himalaja. Við þessar verur eru kenndar tvær ná- skyldar bjöllur, báðar með einkar stóra fætur, Agra sasquatch og A. yeti. Öskubuska hefur léð enskt heiti sitt, Cinderella, ættkvísl flugna. Heitið er jafnframt liður í tegunda- heiti tveggja spendýra, Thylamys cinderella, pokarottu í Argentínu, og afrískrar snjáldru eða snjáldurmúsar, Crocidura cinderella. Úr þjóðsögunni um Artúr konung og riddara hans við hringborðið eru ættuð heiti á þremur löngu útdauðum skepnum: Camelotia er ævaforn risaeðla, um 200 milljón ára, kennd við höll Artúrs, Camelot. Enn eldri er þó þríbroti, Merlinia, nefnd- ur eftir seiðkarlinum Merlín. Loks er Excaliburosaurus, fiskeðla eða hvaleðla sem synti um höfin á júra- skeiði, fyrir „aðeins“ um 150 milljón árum, með óvenjulanga, sverðlaga trjónu og tekur því heiti af víðfrægu sverði Artúrs, Excalibur. Ævintýraheimur kvikmyndanna Hin ógurlega risaeðla Godzilla hét upphaflega Gojira upp á japönsku. Við hana er kennd ránrisaeðlan Gojirasaurus. Vesturlenska orðmynd- in loðir hins vegar við ákveðna vatnakrabba sem lifa í myrkum hellum neðanjarðar, Godzillius og Godzilligonomus. Öllu þekkilegri kvikmyndastjarna er hjörtur Disneys, Bambi. Nafn hans loðir við risaeðlu, Bambiraptor, sem sumir telja raunar að sé sama tegundin og snareðlan, Velociraptor, fræg úr Júragarðinum. Þá má nefna steingerða skjaldböku, Ninjamys, sem tekur nafn af rómuðum teikni- myndaskjaldbökum. Tvær stórar kóngulær (fugla- kóngulær) í Costa Rica, Stichoplas- toris asterix og S. obelix, halda á loft nöfnum frægra gallískra kappa. Heimur Tolkiens Ljóst er að margir flokkunarfræð- ingar hafa mætur á J. R. R. Tolkien og sækja heiti á margs kyns kvik- indi, lífs og liðin, í ævintýraheim hans. Hér skal látið nægja að nefna fjölda náttfiðrilda af einni ættkvísl, Elachista, sem öll eru kennd við álfa úr þessum ævintýrum: Elachista amrodella, E. aredhella, E. carandhirella, E. curufinella, E. daeronella, E. diorella, E. finarfinella, E. gildorella, E. indis- ella, E. maglorella, E. miriella og E. turgonella. Kynferði og kynfæri Kynjuð æxlun og æxlunarfæri eru að sjálfsögðu mikilvæg einkenni á plöntum og dýrum. Þegar kemur að nafngiftum er samt algengara að heitin vísi á einhvern hátt til þessara líkamsparta mannskepn- unnar. Má þar nefna Clitoria, fiðr- ildisbaunagras, skrautjurt með blóm sem minnt hafa höfund nafnsins á sníp konu. Önnur blóm minna á karllega reisn, svo sem kallalilja í regnskógum Súmötru, risakólfurinn Amorphophallus titanum (8. mynd). Heitið er úr grísku og útleggst „risastór vanskapaður getnaðarlim- ur“, eftir blómstæði sem getur orðið tveggja og hálfs til þriggja metra hátt og 80 cm í þvermál. Talsvert er um dýraheiti sem vísa til kynfæra. Má þar nefna tvær skyldar samlokuskeljar sem þykja minna sín á kynfæri hvors kyns, 8 . mynd. Risakólfurinn (Amorphophallus titanum). Ljósm.: US Botanic Garden. 80 3-4#Loka_061210.indd 133 12/6/10 7:22:26 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.