Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 36
Náttúrufræðingurinn
116
önnur viðföng kerfisins, t.d. fjölda
ferðamanna, dvalarlengd og ferða-
mynstur.
Við val á flokkum viðfanga var
horft til fyrrnefndra erlendra fyrir-
mynda41,42,44,45 og sömu eða sam-
bærilegir meginflokkar viðfanga
valdir, þ.e. upplifun (sem ýmist er
kölluð eðlisrænir þættir, auðlind-
ir eða aðdráttarafl), afþreying og
innviðir. Þar sem atvinnugreinin
ferðaþjónusta er ung hér á landi,
uppbygging víða takmörkuð og
litlar fjárfestingar að baki, er þeim
viðföngum sem lýsa verðmæti til
framtíðar gefið mikið vægi, alls 0,7
(upplifun, afþreyingarmöguleikar og
framtíðarvirði). Á móti eru viðföng
sem lýsa núverandi stöðu látin vega
minna, alls 0,3 (innviðir og notkun).
Viðföngin framtíðarvirði og notkun
voru ekki notuð í þeim erlendu kerf-
isgreiningum sem skoðaðar voru,
nema þeirri norsku sem beitt var í
„Samlet plan for vassdrag“. Að mati
faghóps 2 voru bæði þessi viðföng
mikilvæg í íslensku samhengi og
voru þau því tekin inn í kerfið.
Viðfangið samfélag er eitt af megin-
viðföngunum í kerfum Deng, King
og Bauer41 og Crouch og Ritchie40 en
var ekki haft með í aðferð faghóps
2. Ástæðan er sú að þar sem meg-
inþorri þeirri virkjunarhugmynda
sem eru til skoðunar í 2. áfanga
rammaáætlunar er í náttúrulegu
umhverfi og fjarri byggð var minni
áhersla lögð á ýmis þau atriði sem
einkenna ferðamannastaði í byggð.
Jafnframt hafa framkvæmdir á
náttúrulegum svæðum, sér í lagi
ósnortnum, mun alvarlegri og meiri
áhrif en á svæðum sem þegar hefur
verið byggt á, eða sem hafa þegar
verið nýtt á annan hátt. Viðfangið
samfélag hefði unnið gegn þeim
áhrifum sem faghópurinn taldi kerf-
ið eiga að leggja áherslu á, þ.e. að
framkvæmdir á ósnortnum svæðum
væru alvarlegri en frekari röskun
á svæðum sem væru á einhvern
hátt manngerð fyrir. Ef í framtíð-
inni verður haldið áfram með þá
grunnvinnu sem hér er kynnt og allt
landið tekið fyrir, þá væri hins vegar
mikilvægt að taka með nýjan flokk
viðfanga sem snúa að samfélaginu.
Þar væri tekið á þeim þáttum sem
auka virði ferðamannastaða í byggð,
eins og t.d. þjónustu (svo sem fjöl-
breytileika, gæðum), afþreyingu,
gestrisni heimamanna og menn-
ingu. Þá þyrfti væntanlega að nota
tvö mismunandi kerfi, annað fyrir
hálendi (eða náttúruleg svæði) og
hitt fyrir svæði á láglendi.
Hópurinn velti fyrir sér að taka
inn í virðismatið ýmis önnur við-
föng sem að lokum var fallið frá að
taka með. Sem dæmi um þetta má
nefna þögn og hljóð (t.d. í fossum,
hverum og fuglasöng) sem hvort
tveggja skiptir miklu máli fyrir upp-
lifun ferðafólks. Þessa þætti er hins
vegar erfitt að meta, auk þess sem
þeir skipta máli á flestum þeim
svæðum sem fjallað er um og var
þeim því sleppt úr matinu. Veð-
ur skiptir einnig miklu máli þegar
ferðamenn standa frammi fyrir vali
á áfangastað og á veðursæld sinn
þátt í vinsældum staða eins og t.d.
Jökulsárgljúfurs og Þórsmerkur. Til
þess að meta þetta á hlutlægan hátt
þarf hins vegar gögn um veður og
veðurspá og hvernig ferðahegðun
fólks tengist þeim þáttum. Gögn
um ferðamynstur fólks eru hins
vegar mjög takmörkuð auk þess sem
útreikningar á fylgni þáttanna krefst
mun meiri tíma en var fyrir hendi.
Faghópurinn hugleiddi einnig að
meta hvort ferðamenn upplifðu
ferðalög á svæðinu sem áskorun, en
eftirspurn eftir svæðum sem hafa
slíka eiginleika hefur vaxið mikið
undanfarinn áratug. Þetta viðfang
reyndist hins vegar mjög erfitt að
meta því það sem er mikil áskorun
fyrir einn getur verið einfalt og
þægilegt fyrir annan og var því fall-
ið frá að nota þetta viðfang. Að ein-
hverju leyti speglast þessi upplifun
í mati á afþreyingu t.d. bátabrölt (e.
river rafting). Öryggi skiptir einnig
máli fyrir virði ferðamannastaða.
Margir staðir á Íslandi eru nokkuð
varasamir fyrir ókunnuga og getur
virði staðar aukist þegar búið er að
gera hann öruggari. Þetta reyndist
hins vegar snúið að meta og að
lokum var fallið frá því að nota það
í virðismatinu. Náttúruvá er þessu
nátengd, en þekking ferðamanna
á náttúruvá er hins vegar oft mjög
takmörkuð56 og var því litið fram hjá
þessu atriði.
Stærð ferðasvæðanna ræður
nokkru um virði þeirra og áhrif
virkjana á þau. Ef svæði er skil-
greint lítið þá eru meiri líkur á
að þau viðföng sem hljóta góða
einkunn séu fá og því líklegra að
virði svæðisins sé metið minna en ef
svæðið hefði verið skilgreint stærra.
Skilgreining á stærð svæða hefur
einnig áhrif á mat á áhrifum á þau.34
Virkjunarframkvæmd á litlu svæði
getur raskað stórum hluta svæðisins
og þar með lækkað virði svæðisins
mun meira en ef svæðið hefði verið
skilgreint stórt og einungis litlum
hluta þess verið raskað. Sama fram-
kvæmd getur því haft mismikil áhrif
eftir því hvort svæði eru skilgreind
stór eða lítil. Til að kanna áhrif þessa
hefði þurft að gera tilraun með að
vinna matið á nokkrum mismunandi
mælikvörðum, en vegna tímaskorts
var það ekki hægt. Til að lágmarka
þessi áhrif leitaðist faghópurinn við
að skilgreina svæðin þannig að þau
væru af svipaðri stærð. Auk þess er
unnið gegn þessu með því að taka
inn í einkunn hvers ferðasvæðis
aðeins nokkrar hæstu einkunnirnar
og velja þannig sjálfkrafa út þá eig-
inleika, viðföng, sem mestu máli
skipta á hverju svæði. Þannig njóta
flest ferðasvæðin þess sem þar er
verðmætt, en líða ekki fyrir það sem
þar er ekki. Þrátt fyrir þetta eru nokk-
ur svæði vanmetin, t.d. hefði þurft
á svæðinu Gullfoss að skilgreina
ferðasvæðið mun stærra en gert var
og meta t.d. einnig þá áfangastaði
sem eru innan Gullna hringsins (þ.e.
Þingvelli, Skálholt, Kerið, Hveragerði
og Reykjavík). Í raun hefði verið
æskilegt að skipta öllu landinu í
ferðasvæði, en þröngur tímarammi
verkefnisins leyfði það ekki.
Þegar virkjunarhugmyndir eru
metnar er hver framkvæmd metin
ein og sér, þ.e. eins og hún sé eini
kosturinn sem verði nýttur. Það er
hins vegar svo að um leið og búið
er að virkja á einum stað getur það
haft áhrif á hver sé æskilegasti næsti
kostur. Þetta eru annars vegar sam-
söfnunaráhrif, þ.e. ef ný virkjun er
80 3-4#Loka_061210.indd 116 12/6/10 7:22:16 AM