Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 55

Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 55
135 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Tryggvi Þórðarson Kransarfi í Opnum í Ölfusi Ritrýnd grein Náttúrufræðingurinn 80 (3–4), bls. 135–146, 2010 Inngangur Ágengar tegundir eru þekktar fyrir að nema ný svæði þar sem þær fjölga sér á kostnað tegunda sem fyrir eru. Vandamál vegna ágengra tegunda verða bráðust á einangr- uðum, afmörkuðum svæðum, svo sem á úthafseyjum eða í stöðuvötn- um og einangruðum fallvötnum1 en þar hafa þær á undanförnum tveimur áratugum átt afgerandi þátt í að útrýma tegundum.2 Tegundafjölbreytni vistkerfa dreg- ur úr neikvæðum áhrifum nýrra ágengra tegunda.2 Loftslag hér- lendis ásamt stærð, landfræðilegri einangrun landsins og stuttum tíma frá ísöld hefur hins vegar verulega takmarkað þann fjölda villtra plöntutegunda sem hér á landi er að finna.3,4,5 Aðeins 452 tegundir blómplantna eru á Íslandi.5 Til sam- anburðar eru þær 56.215 í Brasilíu, 19.473 í Bandaríkjunum6 og 270.000 í heiminum öllum.7 Tegundafjöl- breytileiki blómplantna á Íslandi er því fátæklegur og plöntusamfélög væntanlega almennt illa búin undir komu ágengra plöntutegunda. Í ferð vísindamanna að Opnunum í Ölfusi í janúar 2004 fannst ný tegund vatnaplöntu í tjörninni þar (1. og 2. mynd) (Gísli Már Gíslason 2009, munnl. uppl.). Hörður Kristins- son grasafræðingur greindi hana sem kransarfa.5,8 Þegar hún fannst hafði hún þegar myndað þéttar breiður (Gísli Már Gíslason 2009, munnl. uppl.) og hefur því að öllum líkindum borist þangað einhverjum árum fyrr. Líklega er hér um að ræða nyrsta vaxtarstað kransarfa í Kransarfi (Egeria densa) er víða talinn ágeng tegund og hefur valdið tals- verðum vandræðum í löndum með temprað loftslag. Hann hefur nýlega borist í volga tjörn í Opnunum í Ölfusi og er orðinn ríkjandi háplöntuteg- und þar. Hann vex í þéttum breiðum í tjörninni, einnig á veturna þegar annar gróður er í dvala. Auk þess er hann að finna niður eftir efsta þriðjungi afrennslis tjarnarinnar en það liggur suðvestur Ölfusforir og út í ósa Ölfusár. Vaxtarhættir kransarfa voru kannaðir sjónrænt um hálfs- mánaðarlega í 12 mánuði og fylgst var með hitastigi vatnsins þar sem hann óx. Hann var einráður yfir háveturinn en fékk samkeppni annars gróðurs þegar dagsbirta var meiri, sérstaklega þráðþörunga. Um sumarið myndaði hjartanykra (Potamogeton perfoliatus) víða ósamfellda þekju við yfirborð, en áður en kransarfinn kom var hún ríkjandi háplanta í tjörninni. Í lítilli vík í norðvesturhluta tjarnarinnar voru mánaðarmeðaltöl hitastigs á bilinu 22,3–25,8°C en þar myndaði kransarfinn ekki varanlega þekju. Mánaðarmeðalhitastig þar sem kransarfinn óx af mestum krafti í suðvest- urhlutanum var 14,2–22,8°C. Í afrennslinu um 870 m neðan við útfallið reyndust mánaðarmeðaltöl hitastigs vera 11,5–20,3°C. Í efstu tæplega 2 km afrennslisins óx kransarfinn í stökum torfum í afrennslinu, mest fjærst tjörninni en þar var skurðurinn breiðari og framræsluvatn hafði blandast Opnuvatninu. Ekki er útilokað að kransarfinn gæti náð frekari fótfestu í sama vatnakerfi eða jafnvel öðrum vötnum hérlendis, sérstaklega þeim sem eru undir einhverjum áhrifum jarðhita. Líkurnar á almennri, náttúru- legri dreifingu hans eru þó varla miklar við núverandi loftslag. 1. mynd. Kransarfi í vatnsborðinu í Opnum í Ölfusi. Vegna þrengsla vex hann þarna upp úr vatninu. – Brazilian waterweed growing at the surface. Due to dense mats at this loca- tion the plants have grown out of the water. Ljósm./Photo: Tryggvi Þórðarson, 04.11.2009. 80 3-4#Loka_061210.indd 135 12/6/10 7:22:27 AM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.