Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 57
137
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
í Sundlaug árið 1979 var á bilinu
6.000–8.000 dýr á fermetra frá maí til
október og var lífmassi þeirra í réttu
hlutfalli við lífmassa hjartanykrunn-
ar. Þegar nóg er af sniglunum halda
þeir plöntunum að mestu lausum
við ásætuþörunga og tryggja þeim
meiri birtu til vaxtar.
Mikil afföll voru í sniglastofn-
unum um háveturinn,31 sennilega
bæði vegna minni fæðu og ótraust-
ara aðgengis að lofti vegna plöntu-
skorts við yfirborð. Þá fjölgaði
tjarnasnúði hlutfallslega31 en hann
kann að hafa staðið sig betur við
slíkar aðstæður vegna blóðrauða
síns.34 Er leið á sumarið og gróður-
þekja hjartanykru og þráðlaga græn-
þörunga var orðin viðvarandi varð
tjarnabobbi að nýju ríkjandi.
Eftir landnám kransarfans eru
plöntubreiður að vetrarlagi þar sem
engar voru áður. Þar sem sniglarnir
nota plönturnar sem undirlag hefur
tilkoma kransarfans væntanlega
gert þeim auðveldara að ná lofti
að vetrarlagi og hugsanlega einnig
aukið fæðuframboð þeirra. Því má
telja að kransarfinn hafi gerbreytt
aðstæðum sniglana og líklega fleiri
vatnadýra í vistkerfi tjarnarinnar.
Lýsing og lifnaðarhættir
kransarfa
Kransarfinn er fjölær, einkynja, skær-
grænn, kaflægur einkímblöðungur
af froskabitsættinni (Hydrocharit-
aceae). Stönglarnir geta orðið 3 m
að lengd,24 eru 2–3 mm breiðir, þétt-
blöðóttir, harðir, stökkir og oft grein-
óttir.35 Blöð eru kransstæð, 2–3 cm
löng og 3–4 mm breið, oftast fjögur
saman.35
Í upprunalegu heimkynnunum
eru karlplöntur kransarfa allt að
sex sinnum fleiri en kvenplöntur og
hann ber sjaldan fræ.9 Í Chile hafa
aðeins fundist kvenplöntur krans-
arfa en alls staðar annars staðar utan
upprunasvæðisins eru eingöngu
karlplöntur.9,12
Karlplönturnar bera hvít 18–25
mm11 blóm með þremur krónu-
blöðum og níu gulum fræflum og
hunangsbera36 (2. mynd). Blómin
standa á allt að 8 cm löngum stilkum9
4. mynd. Kort af tjörninni í Opnum. Á myndinni má sjá uppsprettur, inn- og út-
streymi og staðsetningu hitanema. Staðsetning uppsprettna er ekki byggð á mæling-
um. – A map of Opnur pond showing hot springs (red dots), inlets and outlets (arrows,
red=warm, blue=cold) and placement of temperature loggers (red dots).
3. mynd. Opnur ásamt
afrennsli allt til ósa Ölfus-
ár. Sá hluti þar sem krans-
arfa er að finna er litaður
rauður. Byggt á korti frá
Loftmyndum ehf. – Opnur
and its outlet reaching
the estuary of the river
Oelfusa. The distribution
of the Brazilian water-
weed is marked red. Based
on a map from Loftmyndir
ehf.
80 3-4#Loka_061210.indd 137 12/6/10 7:22:28 AM