Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 77

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 77
157 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Kvæði eftir Bjarna Thorarensen (1786–1841) Allgóðar lýsingar eru til á gosinu í Eyjafjallajökli 1821–1823 og þær hafa verið teknar upp í umræðum og skrifum um það gos sem nú er nýafstaðið. Fáir hafa minnst á kvæði sem þjóðskáldið Bjarni Thorarensen orti um gosið, en þá var hann sýslumaður í Árnessýslu. Bjarni var alinn upp að Hlíðarenda í Fljótshlíð og hafði því Eyjafjalla- jökul fyrir augunum öll sín æskuár. Kvæði hans sýna líka að honum var Fljótshlíðin afar kær og fjallasýn þaðan minnisstæð. Nú er ástæða til að rifja þetta gamla kvæði upp þótt það geti ekki talist með því besta sem Bjarni gerði. Gosið hófst 19. desember 1821.a Kvæðið er ort eftir að gosið hafði staðið í rúman mánuð og var mjög tekið að réna. Margir héldu að það væri að mestu yfirstaðið. Það hafði verið tiltölulega meinlítið en þó höfðu bæði orðið vatnshlaup og öskufall í byggð en enginn teljandi skaði. Bjarni sat að Arnarbæli í Ölf- usi um þessar mundir og hafði gosið fyrir augunum dag hvern þegar skyggni var gott. Á þessum tíma var Kristján VI. konungur Íslands og Danmerkur. Bjarni var mikill konungssinni og hafði strangar og íhaldssamar skoðanir í landsmálum. Hann vildi heiðra sinn kóng og orti honum lofkvæði á afmælisdegi hans, sem var 28. janúar. Honum var eldgosið ofarlega í huga og datt því það snjallræði í hug að flétta það inn í kvæðið og líkja Eyjafjallajökli við fornskáldin gömlu; hann væri fyrir hönd Íslendinga að flytja kon- unginum lofkvæði að fornum sið. Kvæðið birtist nýort í Klaustur- póstinum strax í febrúarheftinu 1822.b Bjarni varaði sig ekki á því að Eyjafjallajökull hafði ekki sagt sitt síðasta og 26. júní hófst ný goshrina með gjóskufalli undir Eyjafjöllum, í Vatnslitamynd af gosinu í Eyjafjallajökli máluð af E. Bruhn. Myndin er gerð í Vestmannaeyjum, Elliðaey sést í forgrunni. Sjá má að jökull- inn er allur dökkur af gjósku. Sprengigos er í gígnum og öskubólstrar rísa upp af honum en gufumökkur berst með strekkingsvindi til austurs frá eldstöðinni, ljós á lit og ekkert gjóskufall er sýnt úr honum. Myndin sýnir gosið eins og það var 3. júlí 1822. Þetta er fyrsta mynd sem sjónarvottur málaði af eldgosi á Íslandi. Kvæðið Eyjafjallajökull a Annáll nítjándu aldar. Safnað hefur sjera Pjetur Guðmundsson. 1. bindi 1801–1830. Akureyri 1912–1922. b Klausturpósturinn, febrúar 1822. Bls. 26–27. Náttúrufræðingurinn 80 (3–4), bls. 157–158, 2010 80 3-4#Loka_061210.indd 157 12/6/10 7:22:43 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.