Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Side 5
5
„MEð RAUðUM dROPUM“
væri allt hluti af stærri heild sem menn ættu eftir að takast á við.8 Málþingið
sem hann nefnir snerist um upplýsingafræði (e. information theory) og var
eitt af mörgum þingum og ráðstefnum á fimmta og sjötta áratugnum
þar sem mættust menn úr ólíkum greinum komandi hugrænna fræða.
Nefna má taugasálfræðing eins og Warren McCulloch, mannfræðinga
eins og Gregory Bateson og Margaret Mead, stærðfræðinginn John von
Neumann, sál- og tölvunarfræðinginn Allen Newell og félaga hans, sál- og
þjóðfélagsfræðinginn Herbert A. Simon, svo ekki sé minnst á gervigreind-
arfræðinginn Marvin A. Minsky og sálfræðinga eins og Jerome Bruner.9
Þess var heldur ekki langt að bíða að fyrsta rannsóknasetrið í hugrænum
fræðum risi. Árið 1960 komu Miller og Bruner á setri í vitsmunarann-
sóknum (e. Center for Cognitive Studies) við Harvard.
En á málþinginu haustið 1956 var líka Noam Chomsky, höfundur
generatífrar málfræði (e. generative grammar), sem á íslensku er ýmist köll-
uð málmyndunarfræði eða málkunnáttufræði.10 Chomsky leggur mikla
áherslu að á upplýsingar úr málumhverfinu dugi ekki til að börn nái að
tileinka sér það tungumál sem er talað í kringum þau svo skjótt sem raun
ber vitni, heldur komi til viðbótarþáttur sem sé óháður ytri aðstæðum.
Þessi viðbótarþáttur í tileinkun tungumálsins er það sem Chomsky nefnir
algildismálfræði (e. Universal Grammar); hún er meðfæddur eiginleiki sem
greinir menn frá öðrum lífverum, þar á meðal nánustu ættingjum sínum í
dýraríkinu, t.d. simpönsum. Eitt höfuðeinkenni á mállíkani Chomskys er
að setningamyndun er þar miðlæg; hún er tengiliður á milli sundurlausra
orða í orðasafni hugans annars vegar og hljóðkerfislegrar túlkunar setn-
inga hins vegar. Með hugmyndum sínum hratt Chomsky af stað byltingu í
málvísindum sem enn sér ekki fyrir endann á. Ekki ber þó að skilja það svo
8 Sjá George A. Miller, „The cognitive revolution: A historical perspective“, bls.
142–143.
9 Sbr. Lynn Nadel og Massimo Piattelli-Palmarini, „What is Cognitive Science?“,
bls. xvii–ixx.
10 Margvíslegar upplýsingar um rit og fyrirlestra Noams Chomsky er að finna á
þessari vefsíðu: http://www.chomsky.info. Á íslensku má nefna nýlega þýðingu á
grein eftir Noam Chomsky: „Nýjar víddir í tungumálarannsóknum“, Höskuldur
Þráinsson skrifaði inngang; Vignir A. Guðmundsson þýddi, Ritið 1/2007, bls.
177–197. Sjá enn fremur Höskuldur Þráinsson, „Um hvað snýst málið? Um mál-
fræði Chomskys, málkunnáttu og tilbrigði“, Ritið 3/2008, bls. 9–34, og Þórhallur
Eyþórsson, „Málmyndun, málkunnátta og algildismálfræði“, Chomsky: Mál, sál
og samfélag, ritstj. Höskuldur Þráinsson og Matthew Whelpton, Reykjavík: Há-
skólaútgáfan, væntanlegt. Í þeirri bók eru greinar eftir ýmsa höfunda sem kenndu
í námskeiði um Chomsky á haustönn 2011, þar á meðal Chomsky sjálfan.