Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Síða 36

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Síða 36
36 af nýlegum rannsóknum, eins og fyrr hefur verið nefnt.90 Lisa Zunshine kynnti líka hugarkenninguna – sem tengist eins og fyrr var nefnt samlíðan – í bókinni Why We Read Fiction og sótti m.a. til rannsókna sálfræðingsins Simon Baron-Cohen á hugarkenningunni og einhverfu.91 En Zunshine hafði ekki hugann við siðfræði og fagurfræði heldur hvernig skáldaðar frásagnir – ekki bara þær sem eru tilraunaskáldskapur – gera endalausar tilraunir með ásköpuð vitsmunaeinkenni mannsins og hvað skiptir mestu er hann gerir sér mynd af persónum í bókmenntum.92 Hér skal hins vegar drepið á tvö verk, annað um fagurfræði viðtakna, hitt ekki síst um siðfræði þeirra. Elaine Scarry fjallar í bók sinni Dreaming by the Book um fagurfræði við- takna ljóða og frásagna. Hún reynir að svara þeirri spurningu hvernig rit- höfundar og skáld fara að því að kveikja myndir (e. images) í huga lesenda og sjá til þess að þær séu á hreyfingu nánast eins og lesendur væru að fylgj- ast með raunverulegum atburðum. Hún vísar m.a. til skrifa Kosslyns – sem fæst bæði við sálfræði og taugafræði – um að sömu taugabrautir séu virkar í heilanum þegar menn sjái eitthvað fyrir hugskotssjónum sér og þegar skynjun á í hlut.93 Jafnframt því sem Scarry ræðir líkamseinkennin sem eru forsendur þess að menn njóta skáldskapar, gerir hún skipulega grein fyrir hvernig höfundar beina lesendum sínum til að nýta ímyndunaraflið, fjallar t.d. um líf (e. vivacity) og efniseinkenni (e. solidity) fyrirbæra sem textar miðla þannig að lesendur geti gert sér þá í hugarlund. Hún tekur óspart dæmi, jafnt af eigin reynslu (blómunum í garðinum sínum og fuglunum), sem skáldskap og andæfir þannig ísmeygilega endalausum abstraktsjónum háskólamanna – líka þeirra sem telja almenna reynslu skipta miklu við lestur skáldskapar. Líkt og Scarry fjallar Suzanne Keen í bókinni Empathy and the Novel um höfunda ekki síður en lesendur, ræðir um afstöðu til samlíðunar- og tilfinningaviðbragða bókmenntalesenda í þrjár aldir en glímir ekki síst við þá spurningu hvort það sé rétt sem löngum hefur verið haldið fram, að fíkn manna í lestur skáldsagna og samlíðun þeirra með nýjum og nýjum 90 Sjá Ellen J. Esrock, The Reader's Eye: Visual Imaging as Reader Response, Baltimore: The Johns Hopkins University Press, 1994. 91 Lisa Zunshine, Why We Read Fiction: Theory of Mind and the Novel, Columbus: Ohio University Press, 2006, bls. 7–8. 92 Sama heimild, bls. 22–27 (t.d.). 93 Elaine Scarry, Dreaming by the Book, Princeton: Princeton Univerity Press, 2001, bls. 50 og 250 (t.d.). Sjá einnig Stephen Kosslyn, Image and Brain, bls. 201, 295 og 324. BERGljót Soffía KRiStjánSdóttiR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.