Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Síða 73
73
ingamótunar“ en beinast þess í stað að greiningu á því menningarlega eða
samfélagslega samhengi sem mótaði tilfinningalíf og framsetningu þess.16
Þessir tveir pólar innan rannsókna á tilfinningum, þ.e. algildisskólinn
og félagslega hugsmíðahyggjan, eru þó ekki jafn andstæðir og virðist við
fyrstu sýn. Nýlegar rannsóknir á taugaferlum tilfinninga í manninum hafa
leitt í ljós margbrotið og flókið samspil taugalíffræðilegs kerfis einstaklings
annars vegar og umhverfis hans hins vegar þegar kemur að tilfinninga-
legum viðbrögðum og hegðun. Rannsóknir heila- og taugasérfræðings-
ins Antonio damasio á heilaskaða og tilfinningahegðun gefa til kynna
að tilfinningaviðbrögð séu áunnin (og því félagsleg) hegðun sem byggi
á líffræðilegum grunni; þ.e.a.s. hið innbyggða og meðfædda taugakerfi
sem miðlar tilfinningum mótast af umhverfi, samfélagsvenjum og þörfum
einstaklingsins.17 Sjálft taugakerfið tekur því ákveðnum breytingum og
lagar sig að þörfum lífverunnar og kröfum umhverfis, jafnvel þó ákveðnir
grunnþættir tilfinningahegðunar séu fyrirframgefnir og bundnir í erfða-
efni mannsins.
damasio skilgreinir tilfinningar sem „samsafn breytinga á líkams-
ástandi sem tengist ákveðnum hugrænum myndum sem hafa virkjað sér-
stök kerfi í heilanum“.18 Manneskjan upplifir þessar tilfinningar hins vegar
í gegnum „reynsluna af slíkum breytingum samhliða þeim hugrænu mynd-
um sem hófu hringferlið.“19 Tilfinningar eru því, samkvæmt damasio,
greinanlegar í gegnum breytingar sem verða á líkamsástandi (t.d. hjart-
slætti, blóðþrýstingi o.s.frv.) sem hafa aftur áhrif á skynjum og meðvitund
um ferlið sem túlkað er sem tilfinningar. Hann greinir á milli tilfinninga í
formi geðshræringa (e. emotions) og tilfinninga sem skynjunar (e. feelings)
og bendir á að allar geðshræringar leiði af sér tilfinningar, en tilfinningar
séu hins vegar ekki allar upprunar í geðshræringum.20 damasio bendir á
16 „Internal mechanism of emotions’ production“, (sama heimild , bls. 837).
17 Antonio damasio, Descartes’ Error.
18 „Collection of changes in body state connected to particular mental images that
have activated a specific brain system“, (sama heimild , bls. 145).
19 „The experience of such changes in juxtaposition to the mental images that initiated the
cycle“, (sama heimild, bls. 145, setningin í heild er skáletruð í frumtexta, skáletrun
í þýðingu er hins vegar mín).
20 Sama heimild, bls. 143. Bergljót Kristjánsdóttir notast við hugtökin „geðshrær-
ing“ og „tilfinning“ í grein sinni „„Ég get ekkert sagt“: Skáldskapur og hrun“,
Ritið 2/2011, bls. 53–66, sjá bls. 53–54. Hér verður almennt notast við „tilfinning“
fyrir „emotion“ í áframhaldandi umfjöllun þar sem „geðshræring“ felur í daglegu
máli í sér vísun í tilfinningar tengdar miklum eða sterkum hughrifum sem er að
einhverju leyti afvegaleiðandi. Hins vegar er „geðshræring“ viðeigandi að því leyti
HUGRÆN FRÆðI, TILFINNINGAR OG MIðALdIR