Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007
HelgarblaB DV
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
bladamadur skrifar
Hlutabréfamarkaðurinn síðasta árið
hefur einkennst af miklum sveifl-
um. íslensk fyrirtæki hafa ekki far-
ið varhluta af þessum breytingum
og hafa hlutabréf í mörgum stærstu
fyrirtækjum Islands lækkað umtals-
vert. íslenski hlutabréfamarkaður-
inn hefur vaxið gríðarlega á síðustu
íimm árum en í þeirri niðursveiflu
sem einkennt hefur markaðinn
ganga verðmætin til baka. Titringinn
má rekja til Bandaríkjanna en síð-
asta sumar hófu þarlendir bankar að
veita hundrað prósenta lán til fast-
eignakaupa. Afleiðingin varð sú að
fjárfestar fóru að halda að sér hönd-
um sem leiddi til þess að fjármögnun
bankanna varð erfiðari.
Erfiðir tímar
Tryggvi Þór Herbertsson, hag-
ffæðingur og forstjóri Askar Capi-
tal, segir að nú séu erfiðir tímar í
fjármálalífi heimsins. Hann segir að
áhættusæknin sem einkennt hefur
fjármálalífið undanfarin ár sé á und-
anhaldi og í staðinn séu fjárfestar
áhættufælnir. Þessir umbrotatímar
byrjuðu síðasta sumar þegar bank-
arnir fóru að lána efnaminna fólki
fjármagn til fasteignakaupa í aukn-
um mæli. Þá hafi menn dregið að sér
hendurnar sem leiddi til þess
að fjármögnun bankanna
varð erfiðara og útlán
þar af leiðandi erfið-
Ásgeir Jónsson Fyrirtæki hafa grætt það mikið að lækkunin núna ætti ekki að hafa mikil áhrif, segir Ásgeir.
ari. Það hafði ekki einungis áhrif í
Bandaríkjunum en erfiðara varð að
fá lánað fyrir þá fjárfesta sem byggt
höfðu á lánum frá bönkunum. Þessi
samdráttur varð því til þess að fram
fóru að koma lækkanir á hlutabréf-
um.
Tryggvi Þór segir að ekki sé tíma-
bært að segja til um hvenær ástandið
muni breytast. „Ég held að ef maður
skoðar íslenska fjármálakerfið, þá eru
undirstöðurnar mjög góðar. Það ætti
að geta staðið af sér ansi margt. Það
er samt hægt að
beygja öll tré þangað til þau brotna,"
segir Tryggvi.
Dómínó-áhrif
Ekki er sjálfgefið að þau fyrirtæki
sem hafa verið hvað mest áberandi í
útrásinni séu að tapa mestu. Hluta-
bréfalækkunin síðasta árið hefur haft
víðtæk áhrif og hafa heimili lands-
ins ekki farið varhluta af þróuninni.
Þannig má rekja hækkun vaxta á
húsnæðislánum beint til lækkun-
arinnar á hlutabréfamarkaðnum.
Áhrifanna er ekki einvörðungu að
gæta á íslandi heldur finna öll
hagkerfi sem tengd
\W
eru alþjóðafjármálamörkuðum fyrir
lækkuninni. Það eru ekki nema ein-
angruð hagkerfi hjá þjóðum á borð
við Norður-Kóreu sem finna ekki fyr-
ir lækkuninni. Þau hagkerfi sem eru
samþætt inn í heimshagkerfið verða
vör við breytinguna.
Hagnaður síðustu ár
Ásgeir Jónsson hjá Greiningar-
deild Kaupþings segir að þó útlitið sé
þannig að sum fyrirtæki hafi verið að
tapa sé það alls ekki þannig. „Frá ár-
inu 2004 hefur markaðurinn hækkað
mikið. Þeir sem hafa verið með pen-
ingana sína í hlutabréfum hafa hagn-
ast verulega á því. Þeir sem hyggjast
fjárfesta í hlutabréfum verða að líta
á það sem langtímafjárfestingu og
eiga að líta yfir fjárfestinguna á löngu
tímabili. Þess vegna er það ekki skyn-
samlegt að selja þegar markaðurinn
tekur dýfur. Kaupþing hefur til að
mynda hækkað gríðarlega og það
sama má segja um fyrirtæki á borð
við Landsbankann og Actavis frá
Þetta hefur því ekki jafn
víðtæk áhrif ef litið er til sfð-
ustu þriggja ára," segir Ás-
geir.
Ásgeir segir að hluta-
bréfamarkaðurinn hafi ein-
kennst af taugaóstyrk undan-
farið. Þegar svona lækkanir komi
Viröi hlutabréfa hefur sveiflast mikið á undanförnum árum og
hafa íslensk fyrirtæki og íslenskir neytendur ekki farið varhluta
af því. Ekki er útséð hvenær lækkunin gengur til baka. Tryggvi
Þór Herbertsson, hagfræðingur og forstjóri Askar Capital, segir
að nú séu erfiðir tímar í fjármálalífi heimsins.
MARKAÐSVIRÐI
FYRIRTÆKJA
Oags.
Bakkavör
22. nóv 2006
22. feb 2007
22. mal 2007
22. ágú 2007
21.okt2007
Markaðsvirði*
127
142
155
147
122
BAKKAVÖR
Exista
22. nóv 2006
22. feb 2007
22. maí 2007
22. ágú 2007
21.okt2007
-EXIST/V
228
306
382
386
295
FL Group
22. nóv 2006
22. feb 2007
22. maí 2007
22. ágú 2007
21. okt 2007
Glitnir
22. nóv 2006
22. feb 2007
22. ma( 2007
22. ágú 2007
21. okt 2007
Kaupþing
22. nóv 2006
22. feb 2007
22. maí 2007
22. ágú 2007
21. okt 2007
264
232
206
312
385
401
424
365
534
728
818
868
665
Landsbankinn
22. nóv 2006
22. feb 2007
22. ma( 2007
22. ágú 2007
21.okt2007
292
345
408
457
409
Straumur-Buröarás
22. nóv 2006
22. feb 2007
22. ma( 2007
22. ágú 2007
21. okt 2007
178
214
221
215
162
•Allar tölur eru f milljörðum króna