Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 Umræða DV By Mikael Wulff & Anders Morgenthaler Ungir, skynsamir ormar —'mmmm~~~~~~~———— * HVAÐ BAR HÆSTIVIKUNNI? Alvarleg húsnæðisstaða „Að mínu mati er stærsta frétt vikunnar hin sterku viðvörunarorð Standard og Poor's, sem ráðherrar í ríkisstjóm segja að sé ekkert að marka og hafa þar með hunsað orð þessa félags og Seðlabankans. En ég verð að taka undir með þessum aðilum því mér finnst gríðarleg óvissa í efnahagsmálum þjóðarinnar og ríkisstjómin virðist fljóta sofandi að feigðarósi í þessum efnum. Þá finnst mér stórfrétt hin alvarlega staða sem blasir við á húsnæðismarkaðnum. Ungt fólk getur varla keypt eða leigt sér húsnæði. Við reyndum í þinginu að knýja fram svör frá félagsmálaráðherra um það hvort standi til að létta undir með þessu fólki, en því miður hafa engin svör borist. Reyndar er sagt að málið sé í nefnd, en sú nefnd átti að ljúka sínum störfum fyrir þremur vikum. Eg heyri það í kringum mig að fólk getur ekki beðið í það óendanlega og einfaldlega hætt að kaupa húsnæði eins og forsætisráðherra leggur til. Veröldin er ekki svo einföld." Birkir Jón Jónsson, alþingismaður Þurfum síst annað REI-mál „Það er tvennt sem stendur upp úr í fréttavikunni í mínum huga og hvort tveggja varðar hagsmuni almennings andspænis þeim valdhöfum sem við höfum falið að gæta þeirra. Hið fyrra er af innlendum vettvangi, sem sé spurningin um það hvort enn einu sinni hafi eigum okkar, í þessu tilfelli húseignum á Keflavíkurílugvelli, verið ráðstafað með óeðlilegum hætti. Enn er þetta aðeins spurning, en við henni þurfa að fást óyggjandi svör í stað undanbragða á borð við „þetta er svo lítið þjóðfélag". Síst af öllu þurfum við annað bankagjafa- eða REI- mál. Hið síðara er af erlendum vettvangi, þar sem er fréttin af ótrúlegu hvarfi persónugagna um alla barnabótaþega í Bredandi. Eru borgararnir sffellt með lífið í lúkunum á kerfisköllum?" Árni Þórarinsson, rithöfundur og blaðamaður Jarðskjálfti íkjölfar bókalesturs „Jarðskjálftinn á Suðurlandi kom svolítið við mig vegna þess að ég var að lesa upp úr bókinni minni á Selfossi þegar skjálftinn reið yfir. Hann var nokkuð öflugur og það opnuðust meðal annars skápar. Ég varð samt hissa á því hvað fólkið var rólegt því það hristist nokkuð duglega. Það er auðvitað stutt síðan stóru skjálftarnir riðu yfir og því hefur þetta vakið slæmar minningar hjá sumum. Svo fannst mér merkileg fréttin um að nota jurtaolíu sem eldsneyti og framleiða úr henni repjur til eldsneytisnotkunar. Ég er mikill áhugamaður um umhverfisvernd og fannst þetta áhugavert. Það er kominn tími á að við hættum að spúa út í loftið. Svo finnst mér alltaf gaman að fylgjast með unga fólkinu í Skrekk og það kviknar alltaf trú á ff amtíðinni þegar maður sér hvað þessir krakkar eru efnilegir." Bergþór Pálsson, söngvari Uggvænleg þróun fíkniefnamála „Jarðskjálftar á Selfossi, vaxandi sviftyks- mengun í Reykjavík og 2 milljarða króna rekstrarafgangur á Aðalsjóði Reykjavíkur- borgar. Þetta vakti athygÚ mína í innlendum fréttum. Þá fannst mér furðuleg fréttin um að Bandaríkjamenn skuli hafa ædað að beita Icelandair viðskiptaþvingunum fyrir að nota flugvélar framleiddar í Bandaríkjunum til þess að fljúga með ferðamenn til Kúbu. Fjórðungsfjölgun fíkniefnabrota er lfka umhugsunarefni. Vera kann að lögreglan upplýsi fleiri mál en áður - en það er líka hugsanlegt að tílefnunum sé að fjölga. Það er uggvænlegt. Af því sem ég hef sjálf verið að bardúsa stendur lfldega hæst menningardagskrá á sunnudag um vestfirsku skáldin sem ég tók þátt í að skipuleggja ásamt fleirum í Holtí í Önundarfirði. Hún tókst afar vel og var vel sótt" Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur Jólin Roma snemma i ár.... Ertu búinn aÖ fá þér jólasKóna.... I l l l L 'h SAMSUNC mob'l* www.joiutherji.is Ármúla 36 - s. 588 1560 Jói útherji KNATTSPYRNUVERSLUN •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.