Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2007, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007
Helgarblað DV
TÖLVUI&EIKIR
/ B
\
Umsjón: Dóri DNA Netfang: dori@dv.is
UORIDNASEGIR:
Kíktuáþessa
Call of Duty 4: Modern Warfare -
PS3/XBOX 360
Assasins Creed - PS3/XBOX360
Super Mario Galaxy - wii
Dead Head Fred - psp
Simpsons the Game - allt
LEIKIATÖLVUR
Samkvæmt heimasíðunum vgchartz.
com og nexgenwars.com sem
sérhæfa sig i sölutölum leikjatölva
hefur Wii selst best af þriðju
kynslóðar vélunum, eða Wii, PS3 og
Xbox 360. Þegar Wii kom á markað
hafði Xbox 360 selst í um 10
milljónum eintaka og verið í ár á
markaði. Síðan þá hefur Wii selst i
um rúmlega 14 milljónum eintaka en
Xbox 360 er komin í rúmlega 13
milljón eintök. Þá rekur PS3 lestina
með rúmlega 5 milljónir eintaka
seldar en búast má við miklum kipp
um jólin í kjölfarið á ódýrari útgáfu
PS3 sem er komin á markað.
HAL0BÓKGERIR
ÞAÐG0TT
Bókin Halo: Cantact Harvest, skáldsaga
sem byggð er á leiknum selst ansi vel um
þessar mundir. Bókin er nýkomin út og
komst strax Iþriðja sæti á kiljumetsölu-
lista New YorkTimes. Aðra vikuna datt
bókin niður um eitt sæti, en ljóst er að
ansi margir hyggjast fylla vit sín af Halo-
skáldskap fyrir jólin. Þær bækur sem eru
á undan Halo-bókinni á listanum eru
ekki af verri endanum, en það eru Love
in the Time of Cholera, Water for
Elephants og Flugdrekahlauparinn.
Samkvæmt heimasíðunni gamerank-
ings.com, sem er samansafn af
tölvuleikjadómum alls staðar frá i
heiminum, er Super Mario Galaxy
besti leikur allra tima. í þeim skilningi
að hann er með hæstu einkunn allra
tíma, eða 97,7% af 100. Mario slær
þar með Zelda ref fyrir rass því
leikurinn Zelda: Ocarina of Time sem
kom út á Nitendo 64 hafði setið í
þessu sæti um árabil með einkunnina
97,6%. Fleiri dómar eiga eftir að
reiknast inn í tölu Marios þannig að
staða hans er ekki endanlega tryggð.
En aftur á móti gæti hún einnig
styrkst. Þá seldust 500.000 eintök af
leiknum fyrstu vikuna hans á
markaði.
Hasarleikurinn The Club er væntanlegur á PC, Playstation 3 og Xbox 360 snemma á
næsta ári. í leiknum fara spilarar í hlutverk harðsvíraðra glæpamanna sem keppast við
að drepa aðra bófa fyrir peninga. Sýnishorn úr leiknum líta afar vel út.
SKYLMINGAÞRÆLAR
. % W
Leikurinn The Club frá Bizarre
Creations kemur út á næstu miss-
erum. Leikurinn gerist ínánustu fram-
tíð í ótrúlega svölum heimi þar sem
allt snýst um „klúbbinn", undarlegan
og harðsvíraðan félagsskap glæpa-
manna, þar sem veðjað er á bardaga
á milli kaldrifjaðra morðingja.
Morðingjarnir sjálfir eru aðeins
peð í leiknum en auðkýfingar sem
kunna ekki aura sinna tal tryggja að
klúbburinn sé starfræktur. Leikmenn
fá þó að velja úr átta persónum til
þess að spila, en hver persóna hefur
sína galla og kosti, sem gætu skilið
á milli feigs og ófeigs á átakastöðum
í klúbbnum. Leikurinn mun vera
einhvers konar blanda af fyrstu og
þriðju persónu skotleikjum, en þó
með „combó" og stiga tengdum
bardögum eins og sést hafa í leikjum
á borð við Devil May Cry. Þeir sem
prófað hafa leikinn eru ansi hrifnir og
segja að grafík, stýringar og sagan séu
til fýrirmyndar. Borð leiksins eru mörg
og mismunandi, stútfull af góðum
stöðum sem henta til skotbardaga
eða slagsmála. Leikmenn fá því fleiri
stig sem þeir eru sneggri að koma
andstæðingi sínum fýrir kattarnef,
en það er víst tilgangur leiksins. Það
var höfundurinn Gordon Rennie,
sem á að baki sögurnar um Judge
Dredd, sem var fenginn til þess að
sníða persónur leiksins. En allar átta
aðalpersónurnar hafa mikla dýpt og
ætti því hver og einn að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Þá má finna allt frá þýskum
járnverksmiðjum yfir í breska
herragarða í leiknum, en höfundar
hans ferðuðust um heiminn
þveran og endilangan til þess að
finna viðeigandi staði, sem hægt
væri að gera upp á nýtt. Þá hefur
ennþá ekki verið tilkynnt um hin
ýmsu leikafbrigði sem hægt verður
að velja í leiknum. The Club er
væntanlegur á PC, PS3 og Xbox
360 snemma á næsta ári.
HEIÐUR AÐ SPILA ÞENNAN LEIK
Ég hef nánast beðið eftir þessum
djöfli allt mitt líf. Almennilegur leik-
ur þar sem maður þeysist um vígvelli
nútímans. Byssukúlur fljúga í kring-
um mann, leyniskyttur, menn með
hríðskotabyssur, þyrlur sveimandi
yfir svæðið dælandi blýi í allt kvikt,
alfa, charlie, bravó. Call of Duty er
fyrstu persónu skotleikur af bestu
sort. Grafíkin er nánast óaðfinn-
anleg, allt frá áferðinni á byssunni
manns yfir í ryklagðar stéttir Mið-
Austurlanda. Leikmenn skiptast á
að spila fyrir bresku sérsveitina SAS
eða einhverja af þeim bandarísku.
Sagan sem er sögð er skemmtileg,
en þar eru leikmenn á höttunum eft-
ir brjáluðum byltingarmanni sem
hatar Vesturlönd eins og þau hefðu
stolið af honum eiginkonunni. Hins
vegar er sagan nokkuð stutt og kom
það mér nokkuð á óvart þegar ég sá
fyrir endalok leiksins. Það sem bæt-
ir það aftur á móti upp er stórkost-
leg netspilun. Þar sem maður fær
xp-punkta fyrir hvern leik og hækkar
í tign eftir því. Þeir sem eru svo hærri
í tign hafa aðgang að betri vopnum
og meiri skemmtun. Á köflum var ég
sannfærður um að þessi leikur myndi
eyðileggja fyrir mér lífið, svo góður
er hann. Og þegar kærastan, vinkona
hennar og eitt stykki vinur eru öll
límd við skjáinn að stara á mig, grá-
an fyrir járnum, í miðri eldlínunni,
áttaði ég á mig á þremur hlutum: 1)
Að horfa á svona góðan leik er ansi
líkt því að horfa á góða bíómynd. 2)
Það getur ekki verið langt í það að
kvikmyndir verði hreinlega teiknað-
ar og áhorfendur fái tækifæri til þess
að taka þátt í þeim. 3) Ef þessi fær
ekki fimm stjörnur, hver þá?.